Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 40
SIRKUS
Ég var að heyra...
4
Hljómsveitin Á móti sól, sem kallar sig nú: Magni og Á
móti sól, kemur fram á morgun á stórdansleik á
Broadway. Í auglýsingum fyrir dansleikinn er auglýst að
með sveitinni komi fram sérstakur Rock Star-gestur.
Sirkus er bæði ljúft og skylt að upplýsa að þessi sérstaki
gestur er náttúrulega engin önnur en hin suðurafríska
Dilana. Þetta verður í þriðja skiptið sem Dilana kemur
hingað til lands á skömmum tíma en í viðtali við Sirkus
fyrir skömmu sagðist hún ástfangin af landi og þjóð. Hún
lýsti sérstakri hrifningu sinni á íslensku skyri sem hún
sagði allra meina bót.
„Mig langar að baða mig í því,“ sagði hún meðal annars í
viðtalinu.
Flutningur Dilönu á Police-laginu um vændiskonuna Roxanne hefur náð talsverð-
um vinsældum hér á landi en ekki fer neinum sögum af frekari landvinningum í
Bandaríkjunum eftir að sýningum á Rock Star-þáttunum lauk.
Miðinn á tónleikana kostar 2.500 krónur og forsala stendur yfir á broadway.is.
ÁSTFANGIN AF ÍSLANDI
Dilana á Broadway
Leikaraparið Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn
Thors eiga von á sínu fyrsta barni. Fréttir þess
efnis berast nú um leikarastéttina eins og eldur
um sinu. Þetta eru að sjálfsögðu gleðitíðindi
enda Björn og Unnur fallegt og hæfileikaríkt fólk
og því efnilegur frumburður á leiðinni.
Skötuhjúin héldu gleðileg jól í Sviss
þetta árið ásamt foreldrum Björns og
herma heimildir að þar skemmti þau sér á
skíðum.
Þegar þeirri ferð er lokið tekur leiklistin
aftur við en Björn og Unnur vinna nú að
uppsetningu leikritsins Killer Joe. Það mun
verða faðir Unnar, Þjóðleikhússtjórinn
fyrrverandi Stefán Baldursson, sem
leikstýrir verkinu og verður það sýnt í
Loftkastalanum snemma á nýja árinu.
HÉLDU JÓL Í SVISS
Unnur ólétt
Að nýja gellan í Kast-
ljósinu Erla
Tryggvadóttir sé
að deita
pródúsent á
sjónvarpinu
sem heitir
Helgi.
Að lögfræðingurinn ungi Villi Vill sé kominn
á nýjan fimm milljóna króna Bens.
Að Eiður Smári hafi tekið árlegan jólabolta
með félögum sínum úr
Breiðholtinu í vikunni.
Að enginn hafi
þorað að tækla
hann nema
Sveppi.
Að Ragga á Bylgj-
unni sé orðin
einhleyp.
Að Ásgeir Friðgeirsson
sé að flytja til Lund-
úna þar sem hann
mun sjá um ýmis
verkefni fyrir
Björgólfsfeðga
og Eggert
Magnússon.
Að Eyrún Magnús-
dóttir, sem var í
Kastljósinu, muni taka við af honum hér
heima.
Að Hannes Smárason sé búinn að bóka öll
herbergin á hótelinu á Flúðum fyrir partí
sem hann ætlar að halda á gamlárskvöld.
Að fyrirmyndin að hinum kostulega karakter
Frímanni Gunnarssyni sé enginn annar en
faðir Gunnars Hanssonar, Hans Kristján
Árnason.
Að hin fyrirmyndin
sé Jón Óttar
Ragnarsson.
Að Ingó Idol og
hljómsveitin
hans, Veðurguð-
irnir, hiti upp fyrir
Basshunter hér á
landi.
Að Flex.is verði með klúbbakvöld hjá Atla
skemmtanalöggu á Yello í Keflavík í kvöld.
„Þetta er sko áramótakaka en ekki terta,
það er mun skemmtilegra enda geta flestir
búið til köku,“ segir Ásgeir Kolbeinsson um
áramótaþátt Sirkuss. Ásgeir mun stjórna
þættinum ásamt Hálfdáni Steinþórssyni og
verða þeir félagar í fjögurra tíma beinni
útsendingu á milli 14 og 18 á gamlársdag.
„Þetta er eina beina útsendingin á
gamlársdag held ég og pælingin er að hafa
þetta létt og skemmtilegt.“
Strákarnir ætla að skoða það helsta frá árinu
auk þess sem hljómsveitir kíkja í heimsókn.
„Einnig verða þarna galdrakallar með
kanínur og fleira skemmtilegt. Það má segja
að landsliðið í skemmtilegheitum mæti til
okkar. Einnig getur fólk úti í bæ tekið þátt í
útsendingunni í gegnum netið og síma.
Beðið um óskalög og annað,“ segir Ásgeir
sem er spenntur fyrir þættinum.
Ásgeir hefur mikla trú á Hálfdáni félaga
sínum sem hann segir skemmtilegan strák
sem sé ekki of alvarlegur eða formfastur.
„Það er akkúrat það sem svona þáttur þarf
á að halda.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Ásgeir er í beinni útsendingu en strákurinn
er alvanur frá árum sínum á Popptíví.
Þeir ætla að blanda saman ólíku fólki sem
ræðir alls konar málefni. „Einnig munum við
skoða mistök í sjónvarpi og útvarpi og svo
ætlar Gassi að gera símaat í beinni.
Baggalútur mun kíkja á okkur sem og
Magni og strákarnir úr Á móti sól.“
Ásgeir hvetur fólk til þess að stilla á
áramótakökuna á meðan verið er að
ryksuga eða gera flugeldana klára á
gamlársdag á milli 14 og 16.
ÁSGEIR KOLBEINSSON OG HÁLFDÁN STEINÞÓRSSON
TAKA HÖNDUM SAMAN Á GAMLÁRSDAG
Fjögurra tíma áramótakaka
í beinni á Sirkus
FLOTTIR Ásgeir og Hálfdán verða í
miklu stuði á gamlársdag.
4