Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 46
SIRKUS29.12.06
10 tíska
Það hefur sýnt sig þennan veturinn að það er allra
veðra von. Ég mæli því með því að ef þú átt ekki góða
úlpu skaltu fjárfesta í einni slíkri. Þegar kalt er þarftu
ekki að klæðast fimm peysum, ullarbrók og lambhús-
hettu ef þú átt góða úlpu. Vertu í skvísugallanum og
skelltu þér í úlpuna góðu, þá ertu fín og flott í öllum
veðrum.
Allra veðra von
Skartgripir eru að verða ómissandi hluti af heildar-
myndinni. Hringir, hálsfestar, eyrnalokkar og armbönd
eru orðin ódýr og í lagi að þetta séu ekki ekta
demantar sem endast heilu áratugina. Allt er leyfilegt
og best er að blanda öllu saman, kúlum, gulli, silfri,
perlum, efni, fjöðrum og bara því sem þér dettur í
hug. Ekki skemmir það fyrir að við eigum íslenskan
„heimsfrægan“ skartgripahönnuð, Hendrikku Waage.
Nýtt skart
Árið 2006 breyttist allt í svarthvíta mynd.
Bæði fatnaður og heimili fólks urði svart hvít.
Meira að segja tók nýi flatskjárinn minn upp
á því að sýna svarthvíta mynd frá fyrsta degi
og enginn gat fundið út hvað var að!!
Svarthvít tíska er mjög þægileg, eiginlega of
þægileg og ég verð að segja alveg
leiðinlega einhæf. Ég mæli því með á nýju
ári að fólk taki Borat sér til fyrirmyndar og
noti sem flesta liti. Út með svarthvíta tísku
og húsgögn og ég tala nú ekki um nýja
svarthvíta flatskjáinn.
Engir litir!
Árið sem há mitti og blöðrupils ruddust yfir píparar-
assa og mínipils. Há mitti og blöðrupils eru komin til
að vera, ekki vera hrædd við þessar skemmtilegu
breytingar því þær verða ennþá eldheitar á árinu
2007.
Ný form
Margar nýjar verslanir opnuðu á árinu. Ekki bara nýjar heldur spennandi verslanir með hátískuvörum sem ekki hafa sést hér á landi
áður. Þar má nefna lífsstílsbúðina 3 hæðir á Laugavegi og nýja verslun Nonna og Hrafnhildar, Liborius á Nýlendugötu.
Nýjar verslanir
HELGU ÓLAFSDÓTTUR
tískumolar