Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 63
Íútvarpinu á dögunum var rætt við kaupmann á landsbyggðinni
um veðrið. Tilefni viðtalsins var
að veðrið var hagstætt fyrir versl-
un. Í íþróttafréttum er West Ham
orðið áhugavert vegna þess að
íslenskir kaupsýslumenn hafa
keypt félagið. Útrás íslenskra
banka og annarra stórfyrirtækja
hefur orðið til þess að nýjar þjóð-
hetjur hafa orðið til hér heima,
mennirnir sem kaupa upp fyrir-
tæki í útlöndum. Ísland samtím-
ans er orðið gegnsýrt hugmynda-
fræði um mælanlega skilvirkni og
árangur og þá er um leið gerð
krafa um einfaldan og auðskilinn
tölulegan mælikvarða. Í þessu
virðumst við elta ítrustu útgáfur
vestrænnar markaðshyggju,
þannig að lítið jafnvægi er í gildis-
mati og viðhorfum. Hin samfé-
lagslega athygli og áhersla er á
samanburð og samkeppni frekar
en félagslega ábyrgð og uppeldi.
Gildin sem eru í forgrunni eru
peningar, tíska og útlit. Ekkert
virðist marktækt lengur nema
hægt sé að festa við það prósentu-
eða krónutölu. Eiður Smári Guð-
johnsen er ekki fremstur íslenskra
knattspyrnumanna vegna þrot-
lausra æfinga, hæfileika og skiln-
ings á leiknum, heldur vegna þess
að hann er dýrastur og spilar í
deild þar sem miklir peningar eru
í húfi. Stórfyrirtæki og milljóna-
mæringar eru merkilegir og
áhugaverðir vegna þess að þeir
eiga svo mikla peninga. Fréttastof-
ur telja sig ekki geta sleppt því að
segja okkur hvernig þróunin er í
Kauphöllinni í öllum almennum
fréttatímum jafnvel þótt ekkert sé
þar að gerast, en þróun grunnskól-
ans eða leikskólans er þá og því
aðeins fréttaefni að mannekla eða
verkföll séu í þann veginn að trufla
daglega rútínu foreldra.
Jafnvel bráðsnjöll og uppbyggi-
leg hugmynd eins og Íþróttaálfur-
inn í Latabæ, sem stuðla á að hreyf-
ingu og hollum lífsháttum er nú
gengin í björg markaðsvæðingar.
Íþróttaálfurinn er orðinn mikil-
virkur aðgöngumiði banka og stór-
fyrirtækja að nýjum markaðshópi
– litlum börnum. Börnum sem sitja
límd og hreyfingarlítil fyrir fram-
an skjáinn. Hefði verið fráleitt að
hugsa sér Álfinn sem talsmann
jákvæðrar uppbyggingar aðstöðu
fyrir íþróttir og hreyfingu?
Ástæða er til að velta fyrir sér
hvort þetta séu í raun þau gildi og
það lífsviðhorf sem við viljum ala
börn okkar upp við. Firring mark-
aðsvæðingarinnar, sem gerir alla
hluti að varningi með einhvers
konar verðmiða, er gengin lengra
en margur heldur. Fegurð og útlit
er nú markaðsett með svipuðum
hætti og gert var áður en vakning
varð í kvenréttindamálum á seinni
hluta síðustu aldar. Veruleikaþætt-
ir og tónlistarmyndbönd yfirkeyra
neikvæðar staðalímyndir telpna og
drengja þannig að útlitsleg saman-
burðarfræði er orðin allsráðandi.
Hugmyndir um að útlitið skipti
ekki öllu virðast álíka úreltar og
trúbadúrinn Gylfi Ægisson, sem
samdi á sínum tíma Minningu um
mann, þar sem „fegurðin að innan
þykir best“.
Efnahagsleg velgengni er vissu-
lega þakkarverð, en ástæða er til
að minnast Mídasar konungs. Hann
áttaði sig ekki fyrr en of seint á
dekkri hliðum þeirrar efnahags-
legu velgengni sem fólst í þakkar-
gjöf Díonysosar. Væri það ekki
skelfileg tilhugsun ef snerting
okkar breytti börnum okkar í skyn-
lausar gullstyttur líkt og þegar
Mídas snerti dóttur sína?
En spyrja má: Á hvað á þá að
leggja áherslu og hvaða gildi eiga
að vera í brennidepli? Engin ástæða
er til að fylgja fordæmi Mídasar
konungs og gerast algerlega frá-
hverf veraldlegum gæðum. Hins
vegar er þetta spurning um jafn-
vægi og að við köstum ekki grund-
vallargildum um virðingu og til-
litssemi fyrir róða. Við þurfum að
bera virðingu fyrir okkur sjálfum
og hvert fyrir öðru, en ekki síst að
reyna að miðla þeirri virðingu og
þeirri tillitssemi til barna okkar.
Foreldrar og heimili eru í lykilhlut-
verki við að efla þroska barnsins og
því er ekki hægt að framselja þá
ábyrgð alfarið til skólans eða upp-
eldisstofnana að rækta þau gildi
sem efla félagsþroska. Það er mik-
ilvægt að byrja þetta ræktunar-
starf strax í leikskóla og halda því
áfram upp grunnskólann – í sam-
starfi heimila og skóla – með upp-
byggingu jákvæðs umhverfis að
leiðarljósi. Það er gríðarlega mikil-
vægt fyrir framtíðarvelferð og vel-
sæld landsmanna, að byggja upp
jákvætt hugarfar virðingar, vináttu
og tillitssemi hjá æskunni. Skamm-
sýnn dans í kringum gullkálfa og/
eða gullálfa mun hins vegar engu
skila nema vandræðum.
Hermundur Sigmundsson er
prófessor í sálfræði við Háskól-
ann á Akureyri og Birgir Guð-
mundsson er lektor í fjölmiðla-
fræði við sama skóla.
Dansað kringum
gullálfinn
8.500,-
4.200,-
2.500,-
3.500,-
3.000,-
5.000,-
5.000,-
6.500,-
NÚ VERÐA LÆTI!
FJÖLSKYLDUPAKKAR
GOS
DRAUGAKÖKUR
risakökur og ísskápar
Sölustaður
KR-heimilið við Frostaskjól
Afgreiðslutími
28.12. kl. 13–22
29.12. kl. 10–22
30.12. kl. 10–22
31.12. kl. 9–16
200,-400,-
200,-
1.300,-
800,-
350,-
6.000,-
KR-flugeldar bjóða að vanda magnaða
flugelda í ótrúlegu úrvali og á frábæru verði.
Þú tryggir pottþétt áramót með heimsókn til okkar.