Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 69
Í kvöld mun hiphop-hljómsveitin
Forgotten Lores halda upp á
útgáfu annarrar plötu sinnar, Frá
heimsenda, með útgáfutónleikum
í Þjóðleikhúskjallaranum. Gleð-
skapurinn byrjar kl. 22.00 og
munu Earmax og DJ Magic sjá um
að koma mannskapnum í stuð,
áður en kónarnir í Forgotten Lores
stíga á svið. Glöggir minnast þess
jafnvel að undanfarin tvö ár hafa
FL-liðar efnt til jóla- og nýárstón-
leika í Þjóðleikhúskjallaranum,
við góðar undirtektir þeirra
sem mætt hafa. Plata
Forgotten Lores, Frá
heimsenda, hefur hlot-
ið einróma lof gagn-
rýnenda en platan
fékk fimm stjörnur hjá gagnrýn-
anda Fréttablaðsins sem og Morg-
unblaðsins. Síðasta plata sveitar-
innar, Týndi hlekkurinn, kom út
árið 2003 en síðan þá hefur sveitin
getið sér góðs orðs fyrir líflega
framkomu á tónleikum. Miða er
hægt að nálgast á www.midi.is, í
verslunum Skífunnar á kr. 900 og
einnig verða miðar seldir við inn-
ganginn á þúsund krónur stykkið.
Fimm stjörnu
útgáfutónleikar
Líkurnar á að skáldsagnapersónan
Harry Potter lifi af í nýjustu bók-
inni eru hverfandi að mati veð-
mangara. Talið er nær öruggt að
Potter láti lífið í Dauðaköllunum
og er illmennið Voldemort talinn
líklegasti morðinginn. Margir
hafa einnig veðjað á að Harry
verði sjálfum sér að bana í því
skyni að tortíma Voldemort.
Höfundur bókanna um Potter,
J.K. Rowling, hefur gefið það
sterklega í skyn að aðalpersónan
láti lífið í þessari síðustu bók serí-
unnar. Snape, Draco Malfoy og
Ron Weasley eru einnig nefndir
sem líklegir banamenn Harrys.
Veðmangarar hafa áður boðið
upp á veðmál af þessu tagi, en ráð-
gátan um hver skaut JR Ewing í
sjónvarpsþáttunum vinsælu, Dall-
as, varð tilefni þess að miklum
upphæðum var eytt í veðmál á átt-
unda áratugnum.
Harry Potter feigur
„Ég var bara í einu atriði, svona
grínatriði,“ segir Pétur Jóhann
Sigfússon leikari, en mikil leynd
hvílir yfir efnistökum og innihaldi
Áramótaskaups Ríkissjónvarps-
ins. „Þetta er ekkert leggjast-í-
gólfið fyndið atriði, en ég hef ekki
séð nein önnur svo að ég veit ekk-
ert. Ég bara mætti þarna klukkan
tíu um morguninn og við Ilmur
Kristjánsdóttir lékum hjón.“
Pétur segir atriðið ekki hafa
fjallað um einstakan atburð í þjóð-
lífi ársins. „Þetta er vísun í eitt-
hvað sem áhorfendur skaupsins
kannast við að einhverju leyti,“
segir Pétur og hlær. „Ég gef ekki
mikið upp en samt hefur örugg-
lega enginn annar tjáð sig jafn
mikið um Skaupið og ég.“
„Við megum bara ekkert segja,
það er í samningnum að þetta er
hernaðarleyndarmál,“ segir Ari
Eldjárn, einn handritshöfunda.
„Ég er nú ekki búinn að sjá endan-
lega útkomu, en það var lögð
áhersla á það við okkur frá byrjun
að þetta væri algjört leyndar-
mál.“
Ari vildi heldur ekkert tjá sig um
hvort skaupið yrði fyndið í ár eður
ei.
Dulir um efnistök
Skaupsins
Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma vínbúða er að finna á vinbud.is
11:00 - 20:00
LOKAÐ
Lau. 30. des
Sun. 31. des
Reykjavík og nágrenni
Opnunartími vínbúða helst óbreyttur nema ofangreinda daga.