Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 72
!
Úthlutun úr Minningar-
sjóði Karls J. Sighvatsson-
ar tónlistarmanns var á
miðvikudag og féll styrk-
ur sjóðsins í ár til ungs
organista eins og í þau
fjórtán skipti sem styrk-
urinn hefur verið veittur.
Að þessu sinni var það
Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir sem hlaut styrkinn.
Minningarsjóðurinn
var stofnaður árið 1991
skömmu eftir að Karl fórst í
hörmulegu slysi á Hellisheiði. Er
stofn sjóðsins aflafé af tónsmíðum
Karls, auk þess sem félagar hans
úr tónlistarbransanum hafa í tví-
gang efnt til tónleikahalds sjóðn-
um til styrktar.
Sigrún Magna er stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri og
stundaði nám við Tónlistarskólann
á Akureyri og síðar hjá Herði
Áskelssyni í Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar. Hún starfaði sem
organisti í Breiðholts-
kirkju og Bessastaða-
kirkju og stundar nám
við Konunglega tónlist-
arskólann í Kaupmanna-
höfn.
Það var bróðir Karls,
Sigurjón Sighvatsson,
sem afhenti styrkinn og
gat þess í ræðu sinni að
Minningarsjóðurinn
yrði efldur á næstu
misserum og að styrkveitingar
hans muni í framtíðinni ná til fleiri
sviða, en sjóðurinn hefur til þessa
einskorðað sig við styrkveitingar
til einstaklinga, framlög til kaupa
og viðgerða á kirkjuorgelum auk
þess að kosta útgáfu á kennsluefni
í organleik.
Formaður úthlutunarnefndar
sjóðsins er Haukur Guðlaugsson,
organisti og fyrrum söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar.
Úthlutað úr sjóði Karls
Kl. 16.30.
Gjörningaklúbburinn Einhleypingur
mun flytja verk sitt „sí sí“ á Lækjar-
torgi í dag. Ár er síðan Einhleyping-
ur sýndi gjörning sinn hér á landi en
meðlimir hópsins hafa starfað á víð
og dreif um allan heim síðastliðið ár.
Í kvöld verður fyrsti flutn-
ingur á Landnámssetrinu
í Borgarnesi á dagskrá
– söngatriði með spjalli
eða eintali með innskotum
og tónlist – þar sem KK og
Einar Kárason rifja upp
feril þess fyrrnefnda. Þar
byggja þeir á samstarfi
sínu fyrir nokkrum misser-
um þegar Einar skráði sögu
KK, Þangað sem vindurinn
blæs.
Landnámssetrið varð til
í Borgarnesi að frum-
kvæði Kjartans Ragn-
arssonar, leikstjóra og
leikritaskálds, og Sig-
ríðar Margrétar Guð-
mundsdóttur, leikstjóra
og fréttakonu. Þar
hafa þegar verið
settar upp
nokkrar sýn-
ingar, en til-
gangurinn
með setrinu
er að segja
sögu land-
náms hér
á landi
með sýn-
ingahaldi
og lifandi
sagna-
hefð
íslenskra
fornbók-
mennta.
Saga KK er
með viss-
um hætti
ný Íslend-
ingasaga:
Einar seg-
ist hafa dregið fjölskyldusögu
hans og þeirra systkina aðallega
upp úr bróður hans og hún sé
miklu lengri í bókinni en hún
verður þennan klukkutíma sem
Einar stendur fyrir í Setrinu. Um
annan klukkutíma til sér KK, en
þar bætir í sögu Einars að nú
heyra menn tóndæmi, lög og stef
úr þroskasögu KK. Sagan hefst
þegar foreldra KK taka sig upp
og flytja til Ameríku 1956 og
henni lýkur tveimur áratugum
síðar þegar KK snýr heim. Þeir
sem kunnugir eru hinni maka-
lausu skráningu Einars á þess-
ari örlagasögu þurfa ekki að
lesa meir, hinir sem ekki
þekkja söguna geta
kynnt sér hana af
verki þeirra félaga,
Þangað sem vind-
urinn blæs, eða
skundað í
Borgarnes
og heyrt stuttu gerðina í flutningi
þeirra félaga.
Landnámssetrið er í tveimur
samtengdum gömlum húsum í
Borgarnesi, Pakkhúsinu sem er
frá aldamótunum 1900 sem var
geymsla fyrir verslun Jóns á
Akri, og Búðarkletti sem var
verslunarhús Jóns. Þar eru veit-
ingasalir. Í tengslum við veitinga-
reksturinn og sýningarsali um
landnám Skallagríms er aðstaða
til minni leiksýninga: þar sýndi
Benedikt Erlingsson Egils sögu
sína fyrir fullu húsi fram eftir
hausti og er væntanlegur aftur að
vori, en þangað til munu
sagnamenn af guðs
náð, KK og Einar
Kárason, verma
beð og hjörtu með
list sinni.
Ein þekktasta hljómsveit ‘68 kynslóðarinnar ásamt Eiríki Haukssyni leikur alla helstu „sixties“ smellina
á nýársfagnaði í Súlnasal Hótel Sögu á nýárskvöld. Einnig koma fram Óperuídívurnar og Bítl.
Húsið opnar kl. 19 fyrir matargesti,
matur borinn fram kl. 20.
Fyrir gesti á dansleik opnar húsið kl. 24.
Verð: Matur og skemmtun, 12.900 kr.
Verð á dansleik 3.800 kr.
Pantanir og upplýsingar í síma 525 9950
og á hotelsaga@hotelsaga.is
POPS og Eiríki Haukssyni
Nýársfagnaður með
Í Súlnasal Hótel Sögu nýárskvöld
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
9
3
4
Pantað
u miða
núna!