Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 73

Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 73
F í t o n / S Í A Undanfarið hafa borist af því fréttir að sala á tónlist gegnum iTunes sé langt undir væntingum og að flestir hlustendur kjósi enn geisladiska fram yfir niðurhal af netinu. Þetta eru athyglisverð tíðindi og verður fróðlegt að sjá hvernig málin þróast næstu misserin. Það hefur nefnilega komið í ljós að iTunes-markaðurinn er um margt einstakur. Nýlegar kannanir sýna t.d. að ungt fólk notar netið í ríkum mæli til að sækja sér klassíska tónlist. Í geisladiskaverslunum er klassísk tónlist ekki nema 3-4 prósent af heildarsölu, en hlutfallið er 12 prósent á iTunes. Þá sýna kannanir að þeir sem kaupa klassíska tónlist gegnum iTunes eru flestir tiltölulega ungir og vita ekki mikið um tónskáld og flytjendur. Þeir eru hins vegar forvitnir og nota tækifærið til að kynna sér, fyrir lágt verð, tónlist sem þeir myndu ekki kaupa á geisladiski að svo komnu máli. Eftir súrrealísk uppgangsár frá því að geisladiskurinn kom til sögunnar hafa klassísku útgáfufyrirtækin barist í bökkum um nokkurt skeið. Markaðurinn var orðinn mettaður, sögðu menn; engan langar í fleiri geisladiska með sömu gömlu verkunum. En eftir að iTunes kom á markaðinn hafa ótrúlegustu hlutir gerst. Í fyrra gaf útgáfufyrirtækið Decca út Árstíðir Vivaldis með hollenska fiðluleikaranum Janine Jansen og dreifði upptökunum einnig á iTunes. Og viti menn: Árstíðirn- ar fóru í 19. sæti bandaríska iTunes-listans og yfir 80 prósent af heildarsölunni hafa farið fram gegnum niðurhal. Í breskum blöðum hlaut Jansen viðurnefnið „Queen of the Download“ eða Drottning niðurhalsins, og nú bendir allt til þess að þessi 27 ára gamli fiðlari verði næsta stórstjarna klassíska tónlistarheimsins. Það eru ekki bara stúdíóupptökur sem hafa slegið í gegn á netinu. Hljómsveitin Fílharmónía var ein fyrsta sinfóníuhljómsveitin til að bjóða upp á svonefnt „podcast“ þar sem tónleikar sveitarinnar voru aðgengilegir til niðurhals á netinu. Á innan við ári höfðu tónleikarnir verið sóttir 600.000 sinnum, og forsvarsmaður hljómsveitarinnar fullyrti að netið myndi í framtíðinni gegna grundvallarhlutverki þegar kæmi að því að ala upp framtíðarhlustendur klassískrar tónlistar. Það leið heldur ekki á löngu þar til útgáfurisinn Deutsche Grammophon sá sér leik á borði og stofnaði DG Concerts með samn- ingi við tvær fremstu hljómsveitir Bandaríkjanna: Fílharmóníuhljóm- sveitirnar í New York og Los Angeles. Á hverju ári eru hljóðritaðir fernir tónleikar með hvorri hljómsveit og þeim dreift á iTunes. Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum enda er úr frábæru efni að velja, m.a. bandarískri nútímatónlist undir stjórn hins þrótt- mikla finnska stjórnanda Esa-Pekka Salonen, og síðustu sinfóníum Mozarts undir stjórn Lorin Maazel (www.deutschegrammophon.com). Decca hóf nýverið samskonar röð með fjórum fremstu hljómsveitum Evrópu. Fyrstu „podcast“-tónleikarnir þar á bæ voru helgaðir Robert Schumann í tilefni þess að 150 ár voru frá andláti hans, og einleikarinn var argentínska píanógyðjan Martha Argerich (www.decca.com). Það virðist semsagt ástæða til bjartsýni. Ungt fólk hefur aldrei átt jafngreiðan aðgang að klassískri tónlist og nú. Stóra spurningin er samt hvort það tekst að nýta tækifærið til að vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á því að sækja klassíska tónleika. Sumir vilja meina að það gildi einu hvort maður hlustar á tónlist í geislaspil- ara eða í tónleikasal, og mun ég fjalla nánar um það mál allt í næsta pistli. Það hlýtur samt að vera hverjum manni ljóst að það lifir engin hljómsveit, einleikari eða listahátíð á geisladiskaupptökum, útvarpsútsendingum eða niðurhali. Tónleikahald er spurning um lífsafkomu fjölmargra hljómsveita og einleikara um allan heim. Með það fyrir augum að nota iTunes-æðið til að hvetja ungt fólk til að sækja tónleika er Carnegie Hall farið að senda út á netinu dagskrá þar sem skærustu stjörnur klassískrar tónlistar leika í hinu sögu- fræga tónleikahúsi, en tjá sig einnig um listsköpun sína, verkin sem flutt eru og margt fleira (www.carnegiehall.org). Með iTunes hefur skapast einstakt tækifæri til að brjóta niður múra og kynna klassíska tónlist fyrir gríðarlegum fjölda fólks. Hvernig væri að Ríkisútvarpið sýndi frumkvæði á tæknisviðinu og færi að „podcasta“ tónleikum Sinfóníunnar? Varla getur það verið svo flókið mál að semja um réttindi ef þess þarf með. Myndu ekki allir hlutaðeigandi græða á því ef hundruð eða þúsundir íslenskra unglinga – svo ekki sé nú talað um alla hina iPod notendurna um allan heim – færu að ganga um með Melabandið í vasanum? iTunes og klassíkin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.