Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 76

Fréttablaðið - 29.12.2006, Side 76
Plötuútgefendur voru lengi á þeirri skoðun að netið væri versti óvinur tónlistarinnar. Miklum fjármunum hefur verið mokað í baráttu fyrir því að stöðva niðurhal á tónlist í gegnum svokölluð skráarskiptikerfi (p2p). Sú barátta hefur engu skilað. Það er hins vegar alltaf að koma betur og betur í ljós hvað netið er frábær vettvangur fyrir kynningu á tónlist. Það hefur opnað ótal nýja möguleika bæði fyrir tónlistarmenn og tónlistaráhuga- menn. Í dag gegnir netið mikilvægu hlutverki fyrir þá sem fylgjast með tónlist. Tónlist er mjög áberandi á MySpace (150 milljón skráðir notendur) og Youtube (7 milljón vídeó í boði) og netmiðlar eins og Pitchforkmedia og Drowned in Sound hafa mikil áhrif á heimsvísu. Tónlistarblogg- síðum hefur fjölgað mikið. Þar er mikið um ötula einyrkja eins og til dæmis Egil Harðar, en líka stórar síður eins og Fluxblog og The Hype Machine þar sem maður getur fundið allt það sem hugurinn girnist – nýtt dót, tónleikaupptökur og fágætt efni. Og tónlistarbloggarar eru fljótir að taka við sér ef eitthvað markvert gerist. Nú keppast til dæmis allir við að setja inn lög með James Brown í minningu meistarans... Það er óhætt að mæla með síðunni gorillavsbear.blogspot.com sem er sambland af öflugri tónlistarbloggsíðu og netmiðli með glás af flottum tenglum og bedazz- led.com sem hefur að geyma safn af sjaldgæfum tónlistarmyndbönd- um. Netið er ómissandi fyrir þá sem vilja uppgötva nýja tónlist, en það er líka öflugur bandamaður þeirra sem vilja grúska í fortíðinni. Ég nefni tvö dæmi: hyped2death.com sem sérhæfir sig í pönki frá árunum 1977–1984 og wolfgangsvault.com sem býður upp á nokkur hundruð tónleika í fullri lengd með listamönnum eins og David Bowie, The Clash, The Who, Blondie, Neil Young og 10cc svo örfáir séu nefndir. Þú getur hlustað á alla þessa tónleika án þess að borga krónu og að auki skoðað lagalistann og lesið ýmsa fróðleiksmola. Ekki galið … Er netið besti vinur tónlistarinnar? Árið er liðið í aldanna skaut eins og gömul klisja segir. Nýtt tónlistarár fer því brátt að hefjast og þess vegna fór Steinþór Helgi Arnsteinsson á stúf- ana og athugaði komandi útgáfur. Árið 2006 var því miður ár með- almennskunnar, tónlistarlega séð. Einum of mikið af fínum plötum en sárvantaði allar frá- bærar plötur. Komandi tónlist- arár lítur hins vegar mun betur út á pappírunum. Mikið af stór- um útgáfum og heill haugur af sveitum stefna á útgáfu sem spennandi verður að fylgjast með. Strax í janúar er von á nokkrum áhugaverðum plötum, til dæmis með Clap Your Hands Say Yeah, Deerhoof, The Shins, Noruh Jones og nýjustu sveit Damons Albarn, The Good, the Bad and the Queen. Einnig er ekki langt í að ný breiðskífa frá Modest Mouse, We Were Dead Before The Ship Even Sank, líti dagsins ljós en hún átti upphaf- lega að koma út í byrjun desem- ber. Stóru nöfnin í bransanum huga að útgáfu á árinu eins og áður. Bæði Metallica, Vel- vet Revolver og Green Day hafa sagt í nýlegum viðtölum að sveitirnar væru á leið í upptöku- verið og ekki minni nöfn en Avril Lavigne, REM, Black Eyed Peas, 50 Cent, Queens of the Stone Age og Maroon 5 eru víst öll með plötu uppi í erminni. Plötu frá Radiohead hefur verið beðið í einum of langan tíma en hún er loksins væntanleg. Gamlar stjörn- ur ætla líka að rísa úr dvala árið 2007. The Stoo- ges ætla að gefa út The Weirdness í lok mars, Guns N’ Roses koma von- andi loksins plöt- unni Chinese Dem- ocracy út í sama mánuði, Roxy Music stefna á endurkomu, einn- ig Smashing Pumpkins sem og Portishead og The B-52’s og eru það stórtíð- indi. Svo má líka minnast á plötu Yoko Ono, Yes, I’m a Witch, sem kemur út í febrú- ar og hinn stórskrýtni Michael Jackson hefur lengi hótað nýrri plötu. Megin- straumur- inn er langt frá því sá eini sem ætlar sér stóra hluti á árinu. Fjölmargar hljómsveitir sem hafa nær einokað árslista tónlistar- rýna undanfarin ár ætla sér að gera slíkt hið sama með nýjustu skífum sínum. Má þar til dæmis nefna ekki minni spá- menn en Wolf Parade, Arcade Fire, The Go! Team, Interpol, Archit- ecture in Helsinki, Wilco, Blonde Redhead, Kings of Leon, The Bra- very, Spoon, Animal Coll- ective, Shellac og Black Rebel Motorcycle Club. Listi sem gæti litið vel út í árs- uppgjörinu. Ekki má heldur gleyma Bretunum en þar ætla Bloc Party, Kaiser Chi- efs, Travis og Art Brut að halda uppi heiðri bresks rokks. Nú reyndar nýlega bár- ust einnig þær fregnir að Cold- play ætlaði að hætta við fyrirhug- að frí og ný plata gæti dottið í hús í lok árs. Mun erfiðara er hins vegar að spá fyrir um íslenska útgáfu þar sem langflestar plöturnar koma út rétt fyrir jól og eru því í vinnslu á bilinu ágúst til október. Nokkur lykilnöfn hafa heyrst nefnd í þessu samhengi: Mugi- son, Jakobínarína, Mínus, Appar- at Organ Quartet, Ghostigtal og Reykjavík! en frumburður þeirra þótti sá besti á árinu að mati ráð- gjafa Fréttablaðsins. Barði Jóhannsson hefur einnig lofað tveimur plötum á árinu. Síðan verður forvitnilegt að fylgjast með hvort eitthvað verður úr íslensku elektróbylgjunni sem var svo áberandi á síðustu Air- waves. Plötur sveita á borð við Sprengjuhöllina og Amiina gætu líka slegið í gegn og miðað við frammistöðu sína á plötu Skúla Sverrissonar, Seríu, gæti frum- burður Ólafar Arnalds verið meira en lítið áhugaverður. Önnur stúlka sem gefur góð fyr- irheit er Hrund Ósk Árnadóttir sem stelur senunni á jólaplötu Mannakorna sem kom út fyrir þessi jól. Ofangreind umfjöllun er að sjálfsögðu ekki tæmandi upptaln- ing og auðvitað má heldur ekki gleyma öllum nýliðunum sem gætu slegið í gegn. Áhugasömum er þó bent á heimasíðurnar met- acritic.com og insound.com en þar má finna lista yfir væntan- legar plötuútgáfur. Kanadíska hljómsveitin The Arcade Fire hlóð vitlausu lagi inn á iTunes á annan í jólum. Áætlað hafði verið að lagið Intervention yrði sett í sölu á síðunni 28. desember og átti ágóðinn að renna til góðgerða- mála. Í staðinn gátu aðdá- endur sveitarinnar nælt sér í lagið Black Wave/ Bad Vibrations. Bæði lögin verða á annarri breiðskífu Arcade Fire sem gefin verður út í lok mars eða byrjun apríl. Win Butler, aðal- sprauta Arcade Fire, skrifar um þetta á heimasíðu sinni og segir að ekki sé um alvarleg mistök að ræða. Hann segir enn fremur að lög af breið- skífunni, sem kallast Neon Bible, hafi þegar lekið út á Netið og muni halda áfram að leka. Þau muni þó ekki heita réttum nöfn- um þar. „Það er ekki hægt að koma í veg fyrir að lögin leki út einhvern tímann. Þess vegna settum við sjálf um hundrað lög á Myspace undir mismunandi nöfnum, völdum þau sem voru vinsælust og gerðum plötuna Neon Bible!“ Settu vitlaust lag á iTunes

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.