Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 80

Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 80
!óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu !óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Borgarbíó merktar með rauðu Frábær ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna!MEÐ ÍSLENSKU TALI Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók Þegar myrkrið skellur á... hefst ævintýrið! Klikkuð grínmynd þar sem Jack Black og Kyle Gass fara á kostum í leit að Örlaganöglinni. Stútfull af frábærri tónlist. SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 KÖLD SLÓÐ kl. 3.40, 5.50, 8.20 og 10.30 B.I. 12 ÁRA ERAGON kl. 3, 6, 8.20 og 10.40 B.I. 10 ÁRA ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3 og 6 TENACIOUS D kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA CASINO ROYALE kl. 10.20 B.I. 14 ÁRA MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 8 B.I. 12 ÁRA SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3 KÖLD SLÓÐ kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 1.30, 3.40 og 5.50 ERAGON kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 10 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 1 og 3.20 CASINO ROYALE kl. 8 og 10.50 B.I. 14 ÁRA HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 1.30 HÁTÍÐ Í BÆ kl. 1.30, 3.40 og 5.50 BORAT kl. 10.20 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6 TENACIOUS D kl. 8 og 10 ERAGON kl. 3.50 B.I. 10 ÁRA 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi SPENNUMYND EFTIR BJÖRN B. BJÖRNSSON ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS - ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN... Sveitin með eitt lengsta nafn rokk- sögunnar, … And You Will Know Us By the Trail of Dead (hér eftir ein- göngu kölluð Trail of Dead), hefur undanfarin ár sent frá nokkrar af ferskustu plötum sem bandarískt rokk hefur boðið upp á. Sérstaklega var platan Source Tags & Codes ánægjuleg og hlaut hún einróma lof. Sömu sögu er ekki að segja um síð- ustu breiðskífu kappanna, Worlds Apart, sem leit dagsins ljós árið 2005. Sú plata var nokkuð stórt stökk frá Source Tags & Codes (fram eða aftur, um það er deilt. Ég kýs að kalla þetta hliðarstökk): hávaðinn minni, lagasmíðarnar flóknari og öll umgjörð í fimmta veldi. Svolítið brogað hliðarstökk. Seldist illa og fékk falleinkunn víðast hvar sem að mínu mati var ósanngjarnt. Á nýjustu plötu sinni halda Trail of Dead-liðar áfram að feta sömu braut og á Worlds Apart. Hljómur- inn er íburðarmikill en ekki ofskreyttur. Takturinn er yfirleitt gríðarlega vel sleginn og dynjandi gítarriffin ná oft fljúgandi hæðum. Oft reyndar skil ég ekki hvers vegna Trail of Dead er ekki frægari en hún er. Tónar sveitarinnar eru mun frambærilegri en þekktra háskólarokksveita en hún rúmast samt vel innan allra poppmarkaðs- skilgreininga. Textar einkennast til dæmis af tilvistarkreppu og ein- hvers konar sjálfhverfu, afar egó- sentrískir. Inn á milli má síðan heyra fallegar kassagítarsballöður sem ættu að fá hvaða bandaríska tattóveraðan háskólagaur sem er til þess sýna á sér mjúku hliðarnar. Trail of Dead vantar samt sem áður ískyggilega mikið almennileg- an slagara. Ekki að það sé slæmt að pæla í heildinni, þvert á móti, en þá er alltaf gaman og í raun nauðsyn- legt þegar ákveðin lög standa upp úr á breiðskífum. Sú er ekki raunin á So Divided sem er þó prýðisgrip- ur. Háskólarokk fyrir lengra komna Leikstjórinn Gus Van Sant sem þekktastur er fyrir kvikmyndina Good Will Hunting var tekinn af lögreglunni rétt fyrir jól. Gus var drukkinn undir stýri og hafði hvorki kveikt á framljósum bílsins né heldur virti hann stöðvunar- skyldu. „Augu hans voru rauð og þrútin, hann var þvoglumæltur og lyktaði alveg hræðilega,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Oregon, þar sem Van Sant var handtekinn. Í kjölfar handtökunnar var leik- stjórinn sendur í blóðprufu sem sýndi að hann hefði keyrt ölvaður. Búið er að ákæra Van Sant og þarf hann að mæta fyrir rétt 17. janúar. Gus Van Sant er ekki eini leikstjór- inn í Hollywood sem hefur verið tekinn ölvaður undir stýri upp á síðkastið, en þeir Oliver Stone og Mel Gibson hafa einnig gerst brot- legir. Stútur við stýrið Ísleifur B. Þórhallsson hef- ur ákveðið að setja aukinn kraft í dreifingarfyrirtæki sitt Græna ljósið, sem sér- hæfir sig í óháðum kvik- myndum. Á nýju ári stefnir hann á að sýna eina til tvær slíkar myndir í hverjum mánuði. Ísleifur hefur rekið Græna ljósið, sem sérhæfir sig í óháðum mynd- um hvaðanæva úr heiminum, í nokkur ár en hyggst nú setja meiri kraft í starfsemina og bjóða upp á reglulegar sýningar allan ársins hring. „Það er kannski of snemmt að kalla þetta klúbb en markmiðið er vissulega að búa til vettvang, eins konar samfélag kvikmynda- áhugamanna, og fá fólk sem er hætt að fara í bíó aftur í kvikmyndahús- in,“ segir Ísleifur. Hann segir að á heildina litið sé úrvalið í kvikmyndahúsum hér á landi gott. „Hinu gagnstæða er oft haldið fram en ég er ósammála því, í ár og í fyrra voru til dæmis marg- ar óháðar myndir sýndar hér á landi. Málið er að þessar myndir eru sýndar í törnum á kvikmynda- hátíðum og þar fram eftir götunum, en það er bara aðferð sem er notuð til að koma þessum myndum út. Inn á milli koma hins vegar tímabil þar sem úrvalið er einsleitara og því vil ég breyta með því að sjá til þess að það sé ein eða tvær óháðar myndir í bíó í hverjum mánuði.“ Ísleifur mun ekki aðeins leitast við að flytja inn gæðamyndir heldur vill hann að bíóferðin sem slík verði hin ánægjulegasta í alla staði og hefur því samið hinar þrjár gullnu reglur Græna ljóssins. „Í fyrsta lagi verður ekkert hlé á sýningum Græna ljóssins. Þá verða færri aug- lýsingar þannig að myndin byrjar fyrr og eftir að sýning hefst verður ekki hægt að kaupa miða inn þannig að þeir sem eru í salnum verða fyrir sem minnstri truflun.“ Hann segir að vissulega verði fyrirtækið af tekjum vegna þessa en ætlar ekki að bæta það upp með hærra miða- verði. „Við viljum höfða til áhorf- enda sem leggja mikið upp úr gæðum og viljum að þeir geti treyst því að þær myndir sem sýndar eru á vegum Græna ljóssins höfði til þeirra og séu þess virði að sjá.“ Hinn 5. janúar verður hin róm- aða Little Miss Sunshine sýnd á vegum Græna ljóssins, sem markar hið nýja upphaf fyrirtækisins. Höf- uðstaður Græna ljóssins verður í Regnboganum en myndirnar verða einnig sýndar í öðrum kvikmynda- húsum þegar svo ber undir. Af öðrum myndum sem Ísleifur hefur tryggt sér réttinn á má nefna Inland Empire eftir David Lynch, Notes on a Scandal með Judi Dench og Cate Blanchett í aðalhlutverkum og hina kínversku Bölvun hins gullna blóms eftir leikstjórann Yimou Zhang.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.