Fréttablaðið - 16.01.2007, Page 21
Fjöldi geðhjúkrunarfræðinga fer
nú um Aceh-hérað í Indónesíu
og hjálpar fólki sem á við geð-
ræn vandamál að stríða.
Um 150 geðfatlaðir einstaklingar
sem annað hvort eru hafðir í
hlekkjum eða í búrum hafa fund-
ist í Aceh-héraði í Indónesíu eftir
að borgarastríði lauk fyrir rúmu
ári.
Þrátt fyrir að miklar fjárhæðir
hafi borist til héraðsins í kjölfar
flóðbylgjunnar miklu sem fór yfir
landið fyrir tveimur árum er heil-
brigðiskerfið enn hálf lamað. Í
eina geðsjúkrahúsi héraðsins er
notuð raflostsmeðferð án svæf-
ingar, sem er ólögleg á Vestur-
löndum. Aðeins einn geðlæknir
starfar á sjúkrahúsinu en sjúk-
lingar eru 300.
Áætlað er að um 400 þúsund af
220 milljónum íbúa Indónesíu þjá-
ist af geðsjúkdómum. Sumar fjöl-
skyldur þar í landi geyma geð-
sjúka fjölskyldumeðlimi lokaða
inni á heimilunum og oft í hlekkj-
um eða búrum til að koma í veg
fyrir að þeir meiði sjálfa sig og
aðra.
Fjöldi geðhjúkrunarfræðinga
fer nú um héraðið og leitar uppi
fólk sem þeir geta hjálpað. Hjúkr-
unarfræðingarnir eru hluti af hópi
heilbrigðisstarfsfólks sem mynd-
aður var til að takast á við geðheil-
brigðisvandamál í Aceh. Það er
kaldhæðnisleg staðreynd að ekki
var unnt að koma slíku verkefni af
stað fyrr en eftir flóðbylgjuna
sem varð um 131 þúsund manns að
aldurtila. Hins vegar hafa hamfar-
irnar leitt til þess að friður komst
á í héraðinu.
Geðfatlaðir í búrum og hlekkjum
Bretar innbyrða mun fleiri
aukefni en þeir halda sjálfir.
Bretar innnbyrða að meðaltali 20
mismunandi aukefni í matvælum
á hverjum degi og sumir allt að
því 50. Flestir telja hins vegar að
þeir borði mun minna, samkvæmt
rannsókn sem gerð var af Bird´s
Eye-matvælaframleiðandanum í
Bretlandi.
Aukefni í matvælum eru skil-
greind sem efni sem er bætt í
mat í einhverjum ákveðnum til-
gangi, til dæmis til að breyta lit
eða áferð matarins eða til að hann
geymist betur. Flestir töldu að
með því að elda sjálfir kæmust
þeir hjá flestum aukefnum en
rannsóknin sýnir að þeir sem
elda sjálfir í staðinn fyrir að
kaupa tilbúinn mat fækka ekki
aukefnunum um nema eitt.
Breskir vísindamenn segja að
fæst þessara aukefna valdi bein-
um skaða enda væru þau þá ekki
í matvælum en margir áhuga-
menn um heilsu eru ósammála
því. Einnig er verið að rannsaka
áhrif slíkra efna á börn með tilliti
til sjúkdóma eins og ofvirkni og
athyglisbrests.
Fjöldi auk-
efna á dag