Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 1
68% 40% 37% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006. Þriðjudagur LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA allt landið B la ð ið B la ð ið 30 20 10 50 40 0 60 70 80 Í tuttugu og fimm ára gömlum gönguhópi Sveinn Jónsson er félagi í tuttugu og fimm ára gömlum göng hó hlaupið íð Farið á fjöll [ SÉRBLAÐ UM JEPPA – ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 ] NISSAN PATHFINDERReynsluakstur BLS. 2 KÖTTURINN Í SEKKNUMÁstandsskoðun BLS. 4 METINGUR JEPPAMANNAFjallasport BLS. 6 ÞORRABLÓT Á FJÖLLUM4x4 ferðaklúbburinn BLS. 8 BREYTTIR BÍLAR Í KASAKASTANArctic Trucks BLS. 10 ÞAÐ BORGAR SIG AÐHALDA KYRRU Í BÍLNUMÖryggisatriði í ferðum BLS. 12 GLAÐUR MEÐ GÓÐAN BÍLBjörn Hl EFNISYFIRLITBreyttir jeppar til Kasakstan Allt upp í loft á HM Mun færri vilja sjá Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn eftir næstu kosningar, en í sam- bærilegri könnun sem gerð var 26. ágúst 2006, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem unnin var síðastliðinn laugar- dag. Nú segjast 28,7 prósent þeirra sem taka afstöðu vilja sjá Fram- sóknarflokkinn í ríkisstjórn, en hlutfallið var 38,7 prósent í ágúst. Sá flokkur sem helst vinnur á er Frjálslyndi flokkurinn. Í nýju könnuninni segjast 22,6 prósent vilja ríkisstjórn þar sem flokkur- inn á aðild, en í ágúst var hlutfallið 14,8 prósent. Aðrir flokkar standa svipað að vígi hvað þetta varðar og í ágúst. 50,4 prósent vilja Sjálfstæðisflokk- inn í ríkisstjórn eftir kosningarnar í vor, sem er 3,3 prósentustigum minna en í ágúst. Það dregur held- ur minna úr stuðningi við Samfylk- inguna í ríkisstjórn, 46,8 prósent vilja ríkisstjórn með aðild flokks- ins, samanborið við 48,2 prósent í ágúst. Vinstri græn bæta við sig 1,5 prósentustigum og vilja 46,6 prósent landsmanna sjá VG í ríkis- stjórn. Stuðningur við að núverandi ríkisstjórnarflokkar, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur, haldi samstarfinu áfram að lokn- um kosningum hefur minnkað frá því sem var í ágúst. Í könnuninni sagðist 26,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu vilja sjá þá flokka áfram í ríkisstjórn. Þetta er 6,1 prósentustigi minna en í ágúst, þegar 32,2 prósent vildu að ríkis- stjórnarsamstarfið héldi velli. Þjóðin er þó langt frá því ein- huga um hvaða flokka hún vill að myndi ríkisstjórn að loknum kosn- ingum. Þriggja flokka stjórn með flokkum stjórnarandstöðunnar; Samfylkingu, vinstri grænum og Frjálslyndum; nýtur hylli 22,6 pró- senta, sem er 14,8 prósenta munur frá könnuninni í ágúst. Þessi þróun er athyglisverð og sýnir fram á að tveir valkostir blasi við kjósendum, segir Baldur Þórhallsson, prófessor við stjórn- málafræðiskor Háskóla Íslands. Þetta sýni að stjórnarandstaðan hafi skilgreint sig sem skýrari val- kost. „Það er ekki svo mikið bil á milli þeirra sem vilja áframhald- andi stjórnarsamstarf Framsókn- ar og Sjálfstæðisflokks og þeirra sem vilja að stjórnarandstaðan í heild sinni taki við.“ Hlutfall þeirra sem vilja sam- starf Sjálfstæðisflokks annars vegar og Samfylkingar eða Vinstri grænna hins vegar hefur jafnast út; nú vilja um tólf prósent lands- manna hvort samstarfsmynstrið. Stjórnarandstaðan orðin skýrari kostur Færri vilja sjá Framsóknarflokk í ríkisstjórn nú en í ágúst á síðasta ári. Helm- ingur svarenda í könnun Fréttablaðsins vill Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. Um 26 prósent vilja að núverandi ríkisstjórnarflokkar haldi samstarfinu áfram. Úrvalsvísitala Kauphall- ar Íslands endaði í 6.930 stigum í gær sem er hæsta gildi hennar frá upphafi. Eldra met, 6.925 stig, var sett þann 15. febrúar í fyrra. Árið fer vel af stað á innlend- um hlutabréfamarkaði en vísitalan hefur hækkað um 8,1 prósent frá áramótum. FL Group (+15,3%), Teymi (+13,1%), Actavis (+10,5%) og Kaupþing (+10,3%) hafa hækkað mest á árinu. Greiningardeildir bankanna spá því að Úrvalsvísitalan hækki um 20-25 prósent á árinu. Metið féll í Kauphöllinni Foreldrar í Minnesota hafa stofnað félags- skapinn „Afmæli án þrýstings“ til að stemma stigu við metingi og samkeppni um íburðarmestu afmælisveislurnar fyrir börnin. Þessa tilhneigingu kalla þau „vígbúnaðarkapphlaup um afmælisveislur“. Samtökin stinga upp á því að foreldrar fylgi nokkrum grunn- reglum, sem stuðli að hógværari og streitumminni veislum. Í fyrsta lagi eigi ekki að gefa gjafir, heldur biðja gjafmilda að styrkja góðgerðarsamtök. Þá skuli látið af „þemaveislum“. Börnin eigi frekar að fara út í garð í leiki. Íburðarminni afmælisveislur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.