Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 38
 { farið á fjöll } 10 Ekki þarf að eiga jeppa til að geta notið þeirra. Sumir hafa ekki efni á slíkum farkosti á meðan aðrir hafa einungis not fyrir þá einu sinni á ári. Hægt er að leigja jeppa á flestum bílaleigum. Kostnaðurinn er mis- munandi en miðað við ótakmarkað- an akstur (því enginn tekur jeppa á leigu til að keyra minna en 100 km) og kaskótryggingu (því ef maður hefur ekki efni á jeppa hefur maður ekki efni á að rústa einn í eigu ann- arra) er kostnaðurinn á bilinu 5.500 kr. dagurinn og upp í 22.000 kr. Eðlilega fer verð jeppanna eftir stærð og gæðum þeirra. Ódýrast er að leigja jeppling eða lítinn jeppa og svo hækkar verðið eftir því sem bíllinn stækkar. Bestu kjörin eru hjá Budget þar sem hægt er að fá stóra jepplinga á 5.500 kr. daginn en þá verður maður að vera heppinn því ekki er hægt að panta ákveðna jeppategund fyrirfram. Hjá Hertz kostar Toyota Land Cruiser 90 15.800 kr. dagurinn, en vilji maður fá stóra bróður snýr maður sér til Avis. Land Cruiser 100 kostar þar öðru hvoru megin við 20.000, eftir því hversu lengi hann er leigður. Ef leggja á út í stórræði er Höldur ef til vill besti staðurinn. Þar er hægt að fá Land Rover Defender fyrir 22.000 kr. Jeppi tekinn á leigu HÆGT ER AÐ NÁLGAST JEPPA Á FLESTUM BÍLALEIGUM. Flestir tengja fyrirtækið Arctic Trucks við breytta jeppa í fjalla- ferðum á hálendi Íslands. Þetta er vissulega sá grunnur sem fyrir- tækið byggir á en það sem færri vita er að starfsemin er mun víðfeðm- ari. Svo víðfeðm reyndar að bílar breyttir af Arctic Truck keyra nú meðfram risavöxnum olíuleiðslum á sléttum Kasakstans. „Við höfum breytt bílum fyrir ýmsa aðila sem flestir nota þá sem björgunartæki,“ segir Loftur Ágústsson, markaðs- stjóri Arctic Trucks. „Þar með talið olíufyrirtæki í Kasakstan og norski herinn svo eitthvað sé nefnt.“ Farartækjum fyrir erlend fyrir- tæki og stofnanir er flestum breytt í Noregi þar sem Arctic Trucks eru með verkstæði. „Það er ódýrara að vinna bílana þar en hér, þó að Nor- egur sé langt í frá ódýrasta landið til að gera svona hluti,“ segir Loftur og hlær. „Þar er líka skriffinnskan mun auðveldari og einfaldara að athafna sig.“ Hérlendis felst starfsemin fyrst og fremst í breytingum á jeppum fyrir almenning. „Það er mjög mis- munandi hvað fólk er að biðja um,“ segir Loftur. „Sumir eru að leita að tækjum til að fara á fjöll í alvöru ferðir, á meðan aðrir vilja líta vel út. Við reynum að hvetja fólk eftir megni að nota jeppana í ferðalög því það er ekkert fallegra, í raun ekkert sem kemst í hálfkvist við það, að sjá yfir snævi þakið landið í góðu skyggni frá fjallstindi.“ Stöðugt er verið að bæta aðferð- irnar sem notaðar eru við breyt- ingar á bílum. Menn reyna nýja hluti sem annaðhvort ganga upp eða ekki, og þegar nýir bílar koma á sjónarsviðið eru bifvélavirkjarn- ir hjá Arctic Trucks ekki lengi að byrja að úthugsa hvernig best sé að hækka þá. Nýjasta dæmið er 38˝ breyting fyrir Nissan Navarra pickup jeppann sem kynntur var á síðasta ári. Það þarf ekki að koma á óvart að þessi bíll hafi orðið fyrir valinu því á fyrsta söluári hans seldust alls 220 bílar. Ýmsu er búið að breyta en af öðru ólöstuðu virð- ist framdrifið hafa verið erfiðasta viðfangsefnið að leysa. Uppruna- lega framdrifið var ekki talið nægj- anlega sterkt fyrir 38˝ dekk og því var gripið til þess ráðs að skipta framdrifinu alveg út fyrir nýtt drif sem er af gerðinni Dana44, sömu gerðar og afturdrifið. Þessi lausn er ekki sú einfaldasta en hún er aftur á móti ein sú sterkasta. „Það eru alltaf einhver vanda- mál sem þarf að leysa,“ segir Loftur Ágústsson. „Svoleiðis er bara jeppa- mennskan. Vandamál sem menn leysa í sameiningu til að komast á áfangastaðinn.“ - tg Breyttir bílar í Kasakstan Arctic Trucks breytir bílum bæði fyrir heimamarkað og hinn stóra heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.