Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 37
37 { heiti sérblaðs } 9
Hugmyndabíll Hyundai, HCD10
Hellion, hefur vakið nokkra athygli
á bílasýningunni í Detroit fyrir
frakkt útlit. Bíllinn er eins konar
blanda af litlum þriggja dyra sport-
bíl og jeppa, og er ætlað að sameina
bestu þætti beggja heima. Innblást-
ur að ytra byrði bílsins er fenginn
úr heimi skordýra, nánar tiltekið frá
ytri skel þeirra, og mynda þrjú „rif“
öryggisgrind utan um farþega.
Rifin, ásamt léreftsblæjunni (sem
er algjörlega handvirk) og utaná-
liggjandi húddlæsingum, vísa til
frönsku braggabílanna samkvæmt
hönnuðum bílsins.
Bíllinn er búinn nýjustu kynslóð-
inni af ESP-stöðugleikastýringu,
sjálfvirkum skriðstilli, 20˝ teflón-
húðuðum álfelgum, tvöföldu króm-
pústi, þráðlausu internetsambandi
(sem er frábært ef maður vill skrifa
tölvupóst á Miklubrautinni) og inn-
byggðu DVD-afþreyingarkerfi. Bíll-
inn er fjórhjóladrifinn með 3 lítra
236 hestafla V6 CRDi-dísilvél.
Skordýr á hjólum
Leitað var til móður náttúru við hönnun hins nýja hug-
myndabíls Hyundai. Pólýhúðum allt frá hillum upp
í utanhússklæðningar.
Pólýhúðun er sterk, hagkvæm og umhverfisvæn.
Pólýhúðun
Smiðjuvegi 1 • s. 544-5700 • www.polyhudun.is