Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 64
„Ég held að þetta sé
með ótrúlegri leikjum landsliðs-
ins,“ sagði glaðbeittur Guðjón
Valur Sigurðsson skömmu eftir
leik en hann var heldur hressari
en daginn áður.
„Samt sem áður verð ég að
segja að það sem maður sagði að
væri ömurlegt og heimskulegt
eftir Úkraínuleikinn er frábært í
dag. Það er til skammar að við
séum ekki samkvæmari sjálfum
okkur. Við getum spilað svona vel.
Við verðum samt að halda báðum
fótum á jörðinni en liðið sýndi í
dag að það getur gert ansi góða
hluti.Við náðum ekki að klára leik
þar sem við erum betra liðið og
það er ekki nógu gott að menn
blómstri ekki fyrr en ljóst er að
við séum að detta úr leik,“ sagði
Guðjón Valur, sem skoraði 5 mörk
úr sex skotum í leiknum og varð
annar markahæsti leikmaður
riðlakeppninnar.
Þetta gerist ekki á hverjum degi
Ísland-Frakkland 32-24
Franska liðið Lyon hefur
fest kaup á tékkneska sóknar-
manninum Milan Baros frá Aston
Villa. Útlit er fyrir að hinn norski
John Carew fari öfuga leið.
Baros var kynntur hjá Lyon í
gær en þar hittir hann knatt-
spyrnustjórann Gerard Houllier
sem var stjóri hans hjá Liverpool
á sínum tíma. Eftir að honum
tókst ekki að festa sig í sessi á
Anfield keypti Villa hann á 6,5
milljónir punda í ágúst 2005.
Milan Baros skoraði aðeins eitt
mark í þeim sautján leikjum sem
hann spilaði í ensku úrvalsdeild-
inni á þessu tímabili og hefur nú
verið seldur.
Frá Villa og til
Frakklands
Leikur Íslands gegn
Frökkum í gær var eins góður og
leikurinn gegn Úkraínu var léleg-
ur. Ísland sýndi allar sínar bestu
hliðar og hreinlega pakkaði hinu
öfluga liði Frakka saman í leik þar
sem Frakkarnir sáu aldrei til sólar.
Frammistaða liðsins var slík að
áhorfendur stóðu upp og klöppuðu
fyrir liðinu síðustu mínúturnar.
Þessa leiks verður minnst sem
eins besta landsleiks Íslands fyrr
og síðar.
Fyrri hálfleikur hjá Íslandi í
gær fer í bækurnar sem einn besti
hálfleikur í sögu landsliðsins. Það
fullyrði ég. Leikur liðsins í fyrri
hálfleik var nánast fullkominn og
það gekk allt upp. Sama hvar grip-
ið er niður.
Það mátti sjá á andlitum strák-
anna að þeir voru mættir grimmir
til leiks enda engu að tapa og allt að
vinna. Vörnin byrjaði vel með Alex-
ander Petersson fremstan í flokki
jafningja. Birkir Ívar varði eins og
berserkur fyrir aftan, hraðaupp-
hlaupin komu í kjölfarið og liðið
byrjaði að raða inn mörkum.
Áður en Frakkar voru vaknaðir
var Ísland komið með 5-0 forystu
og Onesta, þjálfari Frakka, tók
leikhlé. Liðið skoraði sitt fyrsta
mark í leiknum eftir það og mark-
ið kom þegar tæpar 7 mínútur
voru liðnar. Sóknarleikur Íslands
var einnig agaður og góður og
mun meiri hraði en gegn Úkraínu.
Strákarnir völdu skot sín vel og
frönsku markverðirnir vörðu ekki
skot fyrr en eftir 11 mínútur.
Ísland hélt áfram að stækka
forskotið eftir því sem leið á hálf-
leikinn. Breytti engu þótt liðið
væri einum eða tveim færri á vell-
inum. Það datt allt með liðinu og
það kristallaðist í skoti Markúsar
Mána sem skaut í stöng og þaðan
fór boltinn í franska markvörðinn
og inn. Þetta var eins og í lyga-
sögu.
Ólafur Stefánsson kom Íslandi í
tíu marka forystu, 18-8, skömmu
fyrir hlé og áhorfendur stóðu upp
í kjölfarið og klöppuðu fyrir liðinu
en þeir studdu íslenska liðið með
ráðum og dáð allan tímann. Þetta
reyndust hálfleikstölur leiksins og
svo sannarlega verk að vinna fyrir
Frakkana að vinna upp tíu marka
mun Íslands.
Frakkar freistuðu þess að
hleypa leiknum upp með því að
taka Ólaf Stefánsson úr umferð í
upphafi síðari hálfleiks og gekk
það vel fyrir þá þar sem fát kom á
sóknarleik íslenska liðsins. Frakk-
ar skoruðu fjögur mörk í röð og
minnkuðu muninn í sjö mörk, 21-
14.
Þá tók íslenska liðið við sér á
ný og munurinn var níu mörk, 25-
16, þegar fimmtán mínútur lifðu
leiks. Þá prófuðu Frakkar maður á
mann vörn. Það skilaði engu því
íslenska liðinu hélt áfram að vaxa
ásmegin og það náði fljótt aftur
tíu marka forystu, 27-17.
Þá gáfust Frakkar nánast upp
og íslenska liðinu var klappað lof í
lófa allt til enda.
Það er hreinlega ósanngjarnt
að taka einhvern leikmann út því
þetta var sigur liðsheildarinnar og
allir leikmenn lögðu lóð sín á vog-
arskálarnar. Það var hvergi veik-
an hlekk að finna. Íslenska liðið
hefur áður sýnt að það er þetta
gott og getur klárlega gert veru-
lega góða hluti á þessu móti og
möguleikarnir á að komast langt á
stórmóti hafa sjaldan eða aldrei
verið betri.
Ísland vann ótrúlegan sigur á Frökkum í gær, 32-24, og er komið áfram í milliriðil með tvö stig. Frammi-
staða íslenska liðsins í leiknum var með hreinum ólíkindum.
Ísland verður í
milliriðli eitt á HM en þrjú lið í
honum hefja leik með tvö stig.
Ásamt Íslandi verða það Slóvenía
og Pólland.
Auk þess verða Þýskaland,
Frakkland og Túnis í riðlinum en
þau lönd hefja keppni án stiga. Í
hinum milliriðlinum verða
Króatía, Spánn, Króatía, Ung-
verjaland, Rússland, Danmörk og
Tékkland. Þrjú fyrrnefndu liðin
taka með sér tvö stig.
Fyrsti leikur Íslands verður
gegn Túnis á morgun en Ísland
spilar síðan gegn Póllandi á
fimmtudag, Slóveníu á laugardag-
inn og Þýskalandi á sunnudag.
Þrjú lið taka
með sér tvö stig
Með ótrúlegri leikjum