Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 24

Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 24
Ilmkjarnaolíur hafa verið nýttar frá dögum Kleopötru til að fegra og lækna. Olíurnar eru mikið notaðar á Íslandi og nú eru námskeið í boði fyrir þá sem vilja kynna sér fræðin betur. „Ilmkjarnaolíur vinna heildrænt með líkamann og hafa meðal ann- ars jákvæð áhrif á tauga- og stoð- kerfi, auk þess að fyrirbyggja ýmsa kvilla,“ segir Rúna Björk Smáradóttir líf- og ilmkjarnaolíu- fræðingur. Rúna Björk hefur unnið með ilmkjarnaolíur í um sex ár og heldur námskeið fyrir almenning auk þess að kenna fræðin í Fjöl- brautaskólanum í Ármúla. „Ilm- kjarna-olíur hafa verið notaðar í mörg hundruð ár. Á tímum Kleó- pötru voru plönturnar lagðar í fitu til að ná úr þeim virkum efnum en síðan uppgötvuðu gullgerðar- menn eimingaraðferðina og eim- uðu allt sem hönd á festi,“ segir Rúna Björk brosandi. Enn þann dag í dag eru ilmkjarnaolíur unnar með eimingu og eru síðan nýttar í snyrtivörur, ilmvötn og til nátt- úrulækninga. „Eimingarframleiðslan er flók- ið ferli sem er ekki á færi leik- manna. Við fáum olíurnar tilbún- ar og blöndum ýmsar uppskriftir gegn mismunandi kvillum,“ segir Rúna Björk. Óhefðbundnar lækningar fær- ast sífellt í vöxt og Rúna Björk segir að ilmkjarnaolíur nýtist vel við ýmsum kvillum. Hún nefnir svefnleysi og vöðvabólgu sem dæmi. „Það getur verið gott að nota olíurnar í bakstra gegn minni háttar tognun í stað verkjalyfja og ég veit um dæmi þar sem olíurnar eru notaðar við svefnleysi á spítöl- um og hafa gefið góða raun,“ segir Rúna Björk og leggur áherslu á mikilvægi þess að nota hágæða- olíur. „Falsaðar olíur virka ekki og geta í versta falli verið skaðlegar.“ Á námskeiðinu kennir Rúna Björk hvernig hægt er að blanda mismun- andi ilmkjarnaolíu- uppskriftir, hvaða olíur eru í boði og við hverju þær gagnast. Næsta námskeið verður haldið í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla föstudags- kvöldið 26. janúar klukkan 20.00-22.00 og laugardaginn 27. janúar klukkan 11- 14. Verð er 15.900 krónur og innifalið í því er vegleg nám- skeiðsmappa með uppskriftum, lýs- ingum á ilmkjarnaolíum og áhrif- um þeirra á líkama, huga og fleira. Einnig eru efni og áhöld til blöndunar á námskeiðinu innifal- in. Hægt er að skrá sig með tölvu- pósti á palmarosa@palmarosa.is (vinsamlegast gefið upp nafn, símanúmer og tölvupóstfang) eða í síma 691 3129 (Rúna). Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Rúnu Bjarkar, www. palmarosa.is. Ilmandi góð vellíðan

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.