Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Skref í rétta átt Ef við ætlum að skilja veröldina sem börnin okkar hrærast í verð- um við að vera þátttakendur í henni. Þetta segir María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, sem hefur hleypt af stað herferð sem miðar að öruggari netnotkun og bættu siðferði á net- inu. Til þess að auðvelda fólki leið- ina að því markmiði verður vakn- ingaverkefnið SAFT með auglýsingar sem eiga að kynna fimm lykilorð sem hjálpa börnum og full- orðnum að bæta netsam- skipti sín. Markmiðið segir María vera að hvetja til heilbrigðari samskipta þar inni en hún segir fólk í aukn- um mæli leita ráða vegna þess sem það hefur orðið fyrir eða vitni að í netheimum. María segir áhyggjuefni að venjulegt siðferði og samskipti virðast ekki hafa færst yfir á sam- skipti fólks á netinu, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna. Ljótt orðbragð, nafnlausar sví- virðingar og einelti og séu dæmi um slíkt. „Það kemur allt of oft fyrir að fullorðnir gleyma að það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Dæmi um það eru svívirð- ingarnar sem maður getur séð á spjallrásinni barna- landi.is og svo kynlífsmynd- bönd,“ segir María. Hún minnir fólk á að erf- itt sé að hindra fólk í að setja efni á netið á meðan ráðamenn sjá ekki tilefni til að setja lagasetningar um það. Á meðan verði það að hafa grunda- vallarsiðareglur í huga og sýna því sem börnin þeirra eru að gera á netinu áhuga. Verðum að skilja veröld barnanna Vopnfirðingurinn Þórhalla Þor- steinsdóttir fylgist með dúfunum sínum sem eru úti í dúfnakofa í gegnum sjónvarpið. Synir Þór- höllu settu upp vídeómyndavél í dúfnakofanum úti í garði og tengdu við sjónvarpið hennar þannig að nú þarf hún ekki að fara út að fylgjast með dúfunum nema einu sinni á dag. Þá fer hún út til að gefa þeim. Þórhalla hefur alltaf verið mikill dýravinur enda ættuð frá Borgarfirði eystri og hefur átt ketti og kanínur, kindur og endur, gæsir, páfagauka og hamstra svo að það helsta sé talið. Hún hefur séð um hesta fyrir syni sína og svo hefur hún verið með dúfur í fjölda ára. Dúfurnar hafa lengst af verið í fjárhúsum en ekki er langt síðan þær voru fluttar í nýjan dúfna- kofa úti í garði. Þórhalla er með fjórtán stórar og fallegar íslenskar dúfur í dúfnakofanum sínum, alveg upp við íbúðarhúsið. „Þessar eru flest- ar dökkar en sumar þeirra eru svolítið skræpóttar,“ segir hún og kveðst fegin því að dúfurnar fari aldrei í önnur hús nema stundum á barnaskólann í nágrenninu. „Þau eru orðin svo vön þessu börnin og líta stundum eftir þeim,“ segir hún og hefur aldrei orðið vör við að hundar, kettir eða önnur dýr sæki í dúfurnar enda séu þær dug- legar að fljúga á milli. Þórhalla hefur haft mikla ánægju af dýrunum sínum og leyf- ir nú krökkum að fara inn í gesta- herbergi til að horfa á dúfurnar í sjónvarpinu og svo sjái hún þær sjálf þar. „Hún hefur gaman af því að eyða tímanum fyrir framan sjónvarpsskjáinn og svo fer hún alltaf út einu sinni á dag til að gefa þeim,“ segir Bjarki Björgólfsson, sonur Þórhöllu. Bjarki segir að móðir sín hafi eitt sinn fengið gefins álftarunga sem hafi verið orðinn tæp átta kíló um haustið. Hún hafi alltaf gefið unganum og svo hafi hann einu sinni komið röltandi inn í eldhús á eftir einhverjum gestum og teygt sig upp á ísskápinn. Álftarunginn átti heima í fjárhúsunum og varði þar sitt svæði með kjafti og klóm. „Kindurnar komust ekki að fjárhúsunum, álftarunginn stökk upp á hausinn á þeim til að verja sitt svæði,“ segir Bjarki. Hann bætir við að um haustið hafi álftin því miður ruglast í ríminu og ráð- ist á húsmóður sína svo að séð hafi á henni. Fylgist með dúfunum á sjónvarpsskjá í stofunni Kæri Jón Öfug forgangsröðun Að endurgera 18. aldar manninn Katrín Edda Svansdóttir - sölumaður í þjónustuveri RV Skrifstofuvörur á janúartilboði Á tilboði í janúar 2007 Bréfabindi, ljósritunar-pappír, merkipennar, töflutússar og veggklukka Merkipennar, bláir, svartir, rauðir og grænir, 12 stk í pk. 898kr. pk. R V 62 22 A Mopak ljósritunar- pappír, 5x500 blöð í ks. 1.240kr. ks. Bréfabindi A4, 5cm og 8cm kjölur. 148kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.