Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 10
Smiðjuvegi 5 200 Kópavogur www.skola. is Sími 585 0500 Opið virka daga 9-18 og laugardaga 10-14 O D D I H Ö N N U N P O 6. O O .2 96 Stórútsala á prjónagarni og hannyrðavörum allt að 0%6 „Ég á bara vinnuföt- in eftir sem ég var í úti á sjó og svo náttúrlega það sem þau stálu,“ segir Magnús Ásgeirsson sjómað- ur, en íbúð hans í Þorlákshöfn brann til kaldra kola aðfaranótt síðastliðins laugardags. Par á þrítugsaldri var á sunnu- dag úrskurðað í gæsluvarðhald vegna gruns um að þau hefðu kveikt í íbúð Magnúsar eftir að hafa brotist inn í hana. Maðurinn var handtekinn þegar hann reyndi að nota greiðslukort Magnúsar síðdegis á sunnudag. Í kjölfarið gerði lögregla húsleit hjá unnustu hans og fannst þar þýfi úr innbrot- inu. Auk parsins hafa þrír aðrir verið handteknir í tengslum við verknaðinn. Tveimur þeirra var sleppt að loknum yfirheyrslum en ákvörðun vegna gæsluvarðhalds- kröfu lögreglunnar yfir þeim þriðja lá ekki fyrir síðdegis í gær. Magnús segir að um mikið til- finningalegt tjón sé að ræða enda hafi allir persónulegir munir hans horfið í eldhafinu. „Þau stálu bara veskinu og einhverju tölvudóti. Það er náttúrlega mjög óskemmti- leg tilfinning að lenda í svona.“ Hann segist þekkja til tveggja þeirra sem handteknir voru fyrir verknaðinn en hann hafi ekki átt neitt sökótt við þá. „Ég skulda þeim ekkert eða neitt svoleiðis. Það er ekkert þannig í gangi. Þetta er ekkert persónulegt gagnvart mér.“ Magnús var ekki heima þegar fólkið braust inn þar sem hann hafði farið út til veiða klukkan fjögur um nóttina. Hann segist ekki hafa komist strax í land eftir að hann fékk fregnirnar af brun- anum. „Við vorum búnir að leggja svolítið af línu þannig að við þurft- um að draga það upp. Ég var kom- inn í land um hálfellefuleytið og búinn að landa svona hálftíma síðar. Þegar ég fór svo heim var bara verið að negla fyrir glugg- ana. En maður á marga góða að. Öll fjölskyldan býr hérna. Það hjálpar auðvitað alveg helling.“ Þó að Magnús hafi ekki verið heima voru nágrannar hans, kona og tvö börn, sofandi í áfastri íbúð. Þau sluppu ómeidd eftir að annar nágranni varð var við reykjarlykt og gerði þeim viðvart. Rannsóknar- deild lögreglunnar í Reykjavík var á vettvangi í gær við að reyna að staðfesta eldsupptök. Magnús vildi sjálfur ekki útiloka neitt fyrr en rannsókninni væri lokið. „Mér finnst það samt nokkuð ólíkleg atburðarás að það hafi verið brot- ist inn og svo kviknað óvart í. En það er verið að rannsaka málið. Það er náttúrlega ekki búið að sanna íkveikju.“ Eldurinn tók allt nema vinnufötin Magnús Ásgeirsson missti nánast allt sem hann átti utan fatanna sem hann var í þegar íbúð hans í Þorlákshöfn brann til kaldra kola. Talið er að kveikt hafi verið í heimili hans. Tvennt situr í gæsluvarðhaldi grunað um verknaðinn. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, telur mögu- leika á samstarfi Íslendinga og Indverja um nýtingu hreinna orkulinda svo sem jarðhita. Þetta kom fram í ræðu hans í gær á setningarathöfn á alþjóðlegri ráð- stefnu um sjálfbæra þróun sem haldin er í Delí á Indlandi. Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um hættuna á varanlegum loftslagsbreytingum og áhrif þeirra á lífshætti og lífsskilyrði í heiminum, þróun orku- mála í veröldinni og hlutverk end- urnýjanlega orkugjafa, ekki síst með tilliti til Indlands og Kína, vatnsbúskap í Asíu og Afríku, tækninýjungar og baráttuna gegn fátækt. Í ræðu sinni útlistaði Ólafur einnig hvernig hann teldi að Ísland gæti orðið miðstöð fyrir samræður, rannsóknir og ákvarðanir á sviði hreinnar orku og stuðlað þannig að breyttri orkunýtingu á heimsvísu um leið og hamlað yrði gegn hætt- um vegna loftslagsbreytinga. Fjölmargir indverskir forystu- menn, þekktir vísindamenn, fræði- menn, forstjórar alþjóðlegra stór- fyrirtækja, leiðtogar á sviði umhverfismála og forystumenn stofnana og samtaka eru á ráð- stefnunni auk stjórnmálamanna og stendur hún fram á miðvikudag. Kjördæmaþing verður haldið hjá framsóknarmönnum í Suðurkjördæmi laugardaginn 27. janúar og verður þá farið yfir stöðu mála eftir úrslitin í prófkjörinu um helgina. „Við erum ekkert sáttir við að hafa ekki náð tilsettum markmið- um en það er fullt af góðu fólki á listanum,“ segir Arngrímur Guðmundsson, formaður fulltrúa- ráðs Framsóknarfélaganna á Suðurnesjum, „og við munum að sjálfsögðu styðja þann lista sem verður settur upp. Það er fullt af glæsilegu fólki þarna þó að það séu alltaf vonbrigði að missa sinn þingmann út,“ segir hann. Eins og kunnugt er hafnaði Hjálmar Árnason, þingmaður Reyknesinga, í þriðja sæti og lýsti því þá yfir að hann hygðist hætta í stjórnmálum. Segir fullt af glæsilegu fólki Einn helsti leiðtogi íslamista í Sómalíu, Sheikh Sharif Sheikh Ahmed, hefur gefið sig fram við bandarísk og kenýsk stjórnvöld og dvelur núna undir þeirra vernd í Nairobi, höfuðborg Kenýa. Ahmed, sem telst til hófsamari leiðtoga íslamista, er talinn geta spilað lykilhlutverk í sáttaviðræð- um milli íslamista og stjórnvalda í Sómalíu og með því komið í veg fyrir uppreisnarástand sem marg- ir leiðtogar íslamista hafa hótað víða í landinu. Stjórnarhermenn Sómalíu og Eþíópíu hröktu íslamista úr höfuð- borg Sómalíu og mestum suður- hluta landsins í desember en átök hafa verið að brjótast út síðan milli ættbálka og vegna óánægju íbúa með veru Eþíópíuhers í landinu. Stjórnvöld í Sómalíu fengu byr í seglin á laugardag þegar sá síð- asti af helstu stríðsherrum Sómal- íu, Mohamed Dheere, afhenti stjórnarhernum vopn sín og liðs- afla. Hótanir bárust þó samdæg- urs frá vígamönnum íslamista um áframhaldandi árásir þangað til ríkisstjórnin samþykkti viðræður og Eþíópíuher hyrfi úr landinu. Ráðherraráð Evrópusambands- ins hvatti í gær stjórnvöld í Sómal- íu til að hefja viðræður við hópa í landinu og finna varanlega friðar- lausn. Afrísku friðargæsluliði hefur verið boðið til Sómalíu. Íslamistaleiðtogi gefur sig fram Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt reglur um starfsemi dómstólanna sem eiga að fjalla um mál fanganna í Guantanamo á Kúbu. Nýju reglurnar hafa sætt gagnrýni fyrir ýmis ákvæði, þar sem brotið þykir á réttindum. Meðal annars er umdeilt að við réttarhöldin megi notast við óstaðfestan orðróm eða vitnis- burð sem fenginn er með þvingunum, auk þess sem hægt er að halda sönnunargögnum leyndum fyrir sakborningum. Deila um reglur Bæjarráð Akraness mótmælti því á fundi á fimmtu- dag að tekið yrði gjald af öku- mönnum sem keyrðu í gegnum ný fyrirhuguð Hvalfjarðargöng. Karen Jónsdóttir, einn af þremur fulltrúum bæjarráðs, segir að ekki sé rétt að fólk þurfi að greiða fyrir að fara um nýju göngin þegar búið sé að borga þau gömlu niður. „Við viljum að ríkið taki yfir rekstur ganganna og að þau verði gjaldfrjáls.“ Karen fagnar viðræðum um fyrirhugaðar framkvæmdir við tvöföldun vegar á Kjalarnesi og í Hvalfjarðargöngum. Fólk borgi ekki í nýju göngin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.