Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 26
Heilsukvíði er flokkaður sem líkömnunarröskun og
aðaleinkenni heilsukvíða er ótti eða fullvissa um að
vera með alvarlegan sjúkdóm. Þessi ótti eða fullvissa
er til staðar þó engin merki um sjúkdóm sjáist við
ýtarlegar rannsóknir og þrátt fyrir fullyrðingar
lækna um að enginn sjúkdómur sé til staðar. Óttinn
tengist skynjun hversdagslegra líkamlegra einkenna
sem túlkuð eru sem einkenni alvarlegs sjúkdóms.
Hverslags eðlileg líkamleg einkenni geta orðið til-
efni til mikils kvíða hjá þeim sem er með heilsukvíða.
Það getur verið hraður hjartsláttur, sviti, lítil sár,
hósti eða höfuðverkur.
Þannig getur sá sem haldinn er heilsukvíða túlkað
höfuðverk sem ótvírætt merki þess að hann sé með
heilaæxli. Þó að viðkomandi sé fullvissaður um það
af lækni sínum eftir að hafa farið í ítarlega læknis-
skoðun og heilaskönnun að engin merki sjáist um
heilaæxli dugir sú hughreysting skammt og eftir
stuttan tíma er hann eða hún oft komin til annars
læknis til að athuga hvort sá finni ekki heilaæxlið.
Fólk með heilsukvíða getur orðið kvíðið um eigin
heilsu af því að lesa um eða heyra um alvarlega sjúk-
dóma eða ef einhver sem það þekkir greinist með
sjúkdóm. Lesi sá sem er með heilsukvíða til dæmis
um alvarlegan sjúkdóm þar sem eitt af einkennunum
er doði í útlimum fer sá hinn sami strax að athuga
hvort hann finni fyrir doða í útlimum. Geri hann það
túlkar hann það sem einkenni þessa alvarlega sjúk-
dóms og kvíðinn eykst til muna. Þess má geta í þessu
sambandi að leiti fólk að ákveðnum líkamlegum ein-
kennum hjá sér er ekki ólíklegt að það finni þau en
tæki að öðrum kosti ekki eftir þeim. Athyglin gerir
það að verkum að fólk tekur eftir ýmsum tilfinning-
um í líkamanum sem það alla jafna tæki ekki eftir.
Þeir sem vilja geta sannreynt þetta með því að beina
athygli og sjón að lófa sínum í eina til tvær mínútur
og athugað hvað gerist. Venjulega finnur fólk til doða
eða seyðings í lófanum við þetta.
Áður fyrr gekk heilsukvíði undir nafninu ímynd-
unarveiki (hypochondriasis), það nafn er reyndar
enn við lýði en heilsukvíði þykir lýsa röskuninni
betur. Að kalla röskunina ímyndunarveiki gefur
nefnilega til kynna að einkennin sem fólk finnur
fyrir séu ímyndun ein. Einkennin eru það þó ekki,
þau eru til staðar, en kvíðinn sem þau valda er óeðli-
legur.
Talið er að um 1 til 5 prósent fólks sé með heilsu-
kvíða. Heilsukvíði getur byrjað á hvaða aldri sem er
en algengast er að hann byrji snemma á fullorðinsár-
um og sé langvinnur. Kvíðinn getur verið mismikill
og er venjulega meiri þegar álag í lífi fólks er mikið.
Heilsukvíði er ekki lífshættulegur sjúkdómur en
fólk sem hefur verið með heilsukvíða í langan tíma
er í talsvert meiri sjálfsvígshættu en aðrir.
Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að
hugræn atferlismeðferð gagnist vel við heilsukvíða
en það er háð því að fólk sé tilbúið að skoða þann
möguleika að þau líkamlegu einkenni sem það finnur
fyrir stafi af öðru en alvarlegum eða lífshættulegum
sjúkdómi.
Trönuberjasafi og ákveðnar
gerðir af grænmeti draga úr
eitrunaráhrifum áfengis.
Flestir sem bragða áfengi hafa
reynslu af því að þessi munaðar-
vara taki sinn toll daginn eftir og
ýmsum ráðum hefur verið beitt til
að koma í veg fyrir það. Það skyn-
samlegasta af öllu er eflaust að
læra að skemmta sér án þess að
hafa áfengi um hönd, en ekki eru
allir tilbúnir til þess.
Til að koma í veg fyrir að eitr-
unaráhrifin frá áfenginu hafi of
mikil áhrif á líkamsstarfsemina er
hægt að jafna álagið á ýmsan
hátt.
Til dæmis ætti fólk að sleppa
því að drekka áfengi sem inniheld-
ur gervisætuefni. Slíkir drykkir
gera það að verkum að áfengið fer
um fjörutíu prósentum hraðar út í
blóðrásina og erfiðara verður að
hafa stjórn á áhrifunum og eftir-
köstunum þar með. Trönuberja-
safi hefur góð áhrif á líkamann á
margvíslegan hátt og þá sér í lagi
ef það er hreinn og ósætur trönu-
berjasafi. Að drekka trönuberja-
safa hálftíma til klukkutíma áður
en áfengi er haft um hönd styrkir
lifrina og hjálpar henni að vinna
úr áfenginu.
Trönuberjasafi inniheldur and-
oxunarefni sem reynast lifrinni
svo vel að henni tekst að hreinsa
áfengið úr blóðrásinni allt að tólf
sinnum hraðar en ef trönuberja-
safanum væri sleppt.
Að lokum má benda á að hrátt
grænmeti hefur fleiri kosti í för
með sér en að halda línunum í lagi.
Í hráu grænmeti á borð við brokk-
ólí, blómkál og gulrótum er mikið
magn af glutahione-amínósýrum.
Þessar amínósýrur draga úr eitr-
unaráhrifum áfengisins og minnka
þannig líkurnar á slæmum timbur-
mönnum, „fráhvörfum“, næsta
dag.
Með gulrót gegn-
um gleðinnar dyr
Gleymirðu að taka pilluna eða
önnur lyf?
Pilluáminningin er tilraun sem
læknanemar standa fyrir og er
aðaláherslan lögð á getnaðar-
varnarpillur kvenna.
Einnig er hægt að nýta áminn-
inguna fyrir önnur lyf eða aðra
hversdagslega hluti sem geta
gleymst í amstri dagsins.
Þjónustan er opin öllum og
ókeypis. Nán-
ari upplýs-
ingar má fá
hjá Félagi
um for-
varnar-
starf lækna-
nema.
Nánari
upplýsing-
ar: www.
astradur.is
Áminning
pöntuð: www.
p.molar.is
Pilluáminn-
ing á SMS
Hjartavernd nýtur góðs af
Reykjavíkurmaraþoni Glitnis.
Nýr hjartariti hefur verið tekinn í
notkun hjá Hjartavernd en hann
var keyptur fyrir áheitafé sem
safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni
Glitnis síðasta sumar. Eftir að
áheit voru gerð upp komu um átta
hundruð þúsund krónur í hlut
Hjartaverndar.
Hjartaritinn, sem er frá Gener-
al Electric, var afhentur af starfs-
fólki Glitnis sem hét á Hjarta-
vernd með maraþonhlaupi sínu.
Nýr og betri
hjartariti
www.svefn.is