Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 8
Veldu létt og mundu eftir ostinum! Mikil mildi Forseti Serbíu skoraði í gær á lýðræðissinnaða stjórnmála- flokka landsins að leggja ágrein- ingsmál sín til hliðar og taka höndum saman um að mynda samsteypu- stjórn, eftir að flokkur her- skárra þjóðern- issinna varð stærsti flokkur- inn á þingi sam- kvæmt niður- stöðum kosninga sem fram fóru í landinu á sunnudag. Hið mikla kjörfylgi þjóðernis- sinna, sem fengu 28,3 prósent atkvæða, er ekki síst rakið til þess að spurningin um framtíð Kosovo- héraðs er nú mjög ofarlega á dag- skrá. Strax í næstu viku er von á sérlegum erindreka Sameinuðu þjóðanna til Belgrad til að skila af sér tillögu að framtíðarfyrirkomu- lagi á þjóðréttarlegri stöðu Kosovo. Kosovo-Albanar, sem eru í yfir- gnæfandi meirihluta íbúa í hérað- inu, vilja fullt sjálfstæði en serb- neskir þjóðernissinnar líta á héraðið sem óaðskiljanlegan hluta Serbíu. Bozidar Djelic, sem talinn er líklegasta forsætisráðherraefni lýðræðisflokkanna, lagði á það áherslu í gær að birting SÞ-tillagn- anna gæti spillt fyrir ríkisstjórnar- myndun, og ef þær gengu út á að Kosovo hlyti sjálfstæði myndu þær aðeins verða til að efla þjóðernis- sinna enn frekar. Fastlega er reikn- að með að tillögurnar hljóði upp á skilyrt fullveldi Kosovo til handa. Að hinni eldfimu Kosovodeilu frátalinni eru fleiri mál sem auð- veldlega geta gert stjórnarmynd- unarumleitanir erfiðar. Þar á meðal er hvernig taka skal á framsali á eftirlýstum meintum stríðsglæpamönnum, svo hvaða leiðir skuli reynt að fara til að rjúfa einangrun Serbíu og mjaka landinu nær því að fá að hefja aðildarviðræður við Evrópusam- bandið. „Nýja ríkisstjórn verður að mynda hið snarasta,“ sagði Boris Tadic, forseti Serbíu, en Lýðræð- isflokkur hans fékk flest atkvæði, 22,6 prósent, að frátöldum flokki þjóðernissinna sem heldur hug- myndafræði Slobodans Milosevic heit- ins í hávegum. Tadic sagði að hann myndi fela þeim stjórnarmynd- unarumboðið sem bestar horfur hefði á því að ná árangri í að koma saman meirihlutastjórn lýðræðisaflanna. Leiðtogi þjóðernissinna, Tom- islav Nikolic, sagði í gær að Tadic ætti að fela stærsta flokknum á þingi stjórnarmyndunarumboðið. „En ég veit að hann mun ekki gera það,“ sagði Nikolic og spáði því að kosið yrði á ný áður en þetta ár væri úti þar sem „hinir svoköll- uðu lýðræðissinnar geta ekki komið sér saman um nokkurn hlut, hvað þá um nýja ríkisstjórn“. Vill samvinnu lýðræðisafla Flokkur herskárra þjóðernissinna varð stærsti flokkurinn í þingkosningum í Serbíu. Forseti lands- ins skorar á lýðræðisflokkana að mynda ríkisstjórn áður en skýrsla SÞ um framtíð Kosovo verður birt. Innritun í símum 588-3630 og 588-3730, eða í skólanum að Síðumúla 17, tölvu- póstur: ol-gaukur@islandia.is Í boði er fjölbreytt nám með vönduðu námsefni fyrir alla aldursflokka, bæði byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér. Nánari upplýsingar um skólann og námsleiðir er að fá á heimasíðunni: www.gitarskoli-olgauks.is eða í skólanum á innrit- unartíma, en innritað er alla virka daga kl. 14:00 til 17:00. ww w.g itar sko li-o lga uks .is Hægt að fá leigða HEIMAGÍTARA kr. 3500 á önn INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 G A U K U R – G U T E N B E R G Heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is 588-3630 588-3730 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Karlmaður á þrítugs- aldri var dæmdur í tveggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir þjófnað. Hann stal pening- um, tölvu og flatskjá auk annarra hluta úr húsnæði Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi þegar hann starfaði sem öryggisvörður Securitas. Brotin voru framin vorið 2006, en maðurinn hafði aðgang að húsnæðinu vegna vinnu sinnar. Maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og líkamsárás, en þrátt fyrir það var hann ráðinn hjá Securitas í ágúst 2005. Samkvæmt reglum Securit- as þurfa allir sem sækja um starf að skila hreinu sakavottorði. „Ég held hérna á vottorðinu sem hann skilaði og þar segir að hann hafi engin brot framið,“ segir Árni Guðmundsson, forstöðumað- ur gæslusviðs Securitas. „Ég veit ekki hvernig stendur á þessu.“ Maðurinn játaði þjófnaðinn og sagðist hafa verið í fíkniefna- neyslu þegar hann framdi brotin. Góssið hafi verið selt til þess að fjármagna neysluna. Árið 1997 gekkst hann undir sátt fyrir ölvunarakstur og árið 2002 var hann dæmdur til 25.000 króna sektar fyrir líkamsárás. Auk skilorðsbundnu fangavist- arinnar var hann dæmdur til að greiða Mjólkursamsölunni 180 þúsund krónur í skaðabætur. Sakamaður með hreint vottorð Hvað heitir fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar sem gengið hefur til liðs við Frjálslynda flokkinn? Hverjir slasast oftast í hesta- slysum? Hvaða bandaríski leikari hvatti bandarísk stjórnvöld til að biðjast afsökunar á stríðinu í Írak við upphaf Sundance-kvik- myndahátíðarinnar? Átján ára piltur var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur til 40.000 króna sektargreiðslu fyrir að brjótast inn í hjólhýsi í júlí 2005. Pilturinn braut plastrúðu í hjólhýsinu, sem stendur í þyrpingu slíkra farartækja rétt utan við Laugarvatn, og stal þaðan slökkvitæki, einum kassa af Prins Póló súkkulaði og töluverði magni af áfengi. Hann mætti ekki fyrir héraðsdóm og því féll dómurinn að honum fjarstöddum. Hann hefur tvívegis áður hlotið dóma fyrir þjófnaðarbrot. Stal slökkvitæki og Prins Póló
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.