Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 60
Britney Spears er búin að sparka kærastanum sínum, fyrirsætunni Isaac Cohen. Þau höfðu verið á föstu í tvær vikur en bandarískir fjölmiðlar segja Britney hafa feng- ið nóg á fimmtudaginn í síðustu viku. „Við erum ekki lengur saman,“ var það eina sem fékkst upp úr hinni 25 ára einstæðu móður. Þrátt fyrir þetta sást til Britney á föstudagskvöldið í samræðum við umræddan Cohen. Hætt með kærastanum Leikkonan Kiera Knightley hefur höfðað mál gegn breska dagblað- inu The Daily Mail vegna fréttar þar sem er gefið í skyn að hún hafi sagt ósatt þegar hún vildi ekki viðurkenna að hún þjáðist af átröskun. Blaðið birti grein um stúlku sem lést af völd- um átröskunar og með greininni fylgdi mynd af hinni 21 árs Knightley á strönd þar sem rætt var um þyngd hennar. Knightley er þekkt fyrir myndir á borð við Bend It Like Beck- ham og Pirates of the Caribbean. Höfðar mál Kvikmyndin Foreldrar, seinni helmingur sam- vinnuverkefnis Ragnars Bragasonar og leikhóps Vesturports, var frumsýnd í Háskólabíói á föstudag. Var þar margt góðra gesta og var almennt gerður góður rómur að myndinni. Ljós- myndari Fréttablaðsins var á staðnum. Kvikmyndirnar Basic Instinct 2 og Little Man hafa verið tilnefnd- ar til sjö Razzie-verðlauna, sem verða afhent hinn 24. febrúar, degi á undan óskarsverðlaunun- um. Verðlaununum er ætlað að endurspegla það versta sem kvik- myndaborgin Hollywood bauð upp á á síðasta ári. Ævintýramyndin Bloodrayne hlaut sex tilnefningar, spennu- myndin The Wicker Man fimm og Lady in the Water eftir M. Night Shyamalan hlaut fjórar. Tilnefndar sem verstu leik- konurnar voru Sharon Stone fyrir Basic Instinct 2, Lindsay Lohan fyrir Just My Luck, Kristanna Loken fyrir Bloodrayne, systurn- ar Hilary og Haylie Duff fyrir Material Girls og Jessica Simp- son fyrir Employee of the Month. Stone hefur áður hlotið tvenn Razzie- verðlaun, fyrir The Specialist og Intersect- ion. Bræðurnir Shawn og Mar- lon Wayans voru tilnefndir sem verstu leik- ararnir fyrir Little Man, Rob Schneider fyrir Benchwarmers, Nicolas Cage fyrir Wicker Man, Larry the Cable Guy fyrir Larry the Cable Guy: Health Inspector og Tim Allen fyrir hlutverk sín í mynd- unum The Santa Clause 3, The Shaggy Dog og Zoom. Athygli vakti að Sylvester Stallone, sem hefur hlotið þrjátíu Razzie-tilnefningar og tíu verð- laun, var ekki tilnefndur í þetta sinn fyrir myndina Rocky Bal- boa. „Í byrjun ársins hefðirðu ekki getað sannfært mig um að hún myndi ekki keppa um Razzie- verðlaunin,“ sagði John Wilson, upphafsmaður Razzie, um Rocky Balboa. „Mig langar að segja það opinberlega að Stallone bjó til góða mynd.“ Basic Instinct 2 efst á blaði Leonardo DiCaprio íhugaði að hætta að leika eftir að hann lék í hinni vinsælu Titanic árið 1997. DiCaprio var hylltur sem mikið kyntákn eftir myndina, sem var einmitt sú ímynd sem hann hafði reynt að forðast áður. „Það var erfitt þegar fólk leit á mig þannig. Mig langaði að hætta að leika í smá tíma,“ sagði hann í viðtali við Newsweek. „Hlutverkið breytti lífi mínu á marga vegu en á sama tíma veitti það mér tækifæri. Með því gat ég ráðið ferli mínum sjálf- ur.“ Síðan þá hefur DiCaprio leikið í mörgum vel heppnuðum mynd- um og er mjög sáttur við sitt. Íhugaði að hætta Hasarmyndahetjan Steven Seagal er farin á tónleikaferð um Bret- land með blúshljómsveit sinni Thunderbox. Seagal, sem hefur leikið í myndum á borð við Under Siege og The Patriot, hefur spilað á gítar síðan hann var 12 ára. Sveitin mun halda 37 tón- leika og stendur ferðin yfir í tvo mánuði. Auk þess að leika í hasarmyndum hefur Seagal einnig vakið athygli fyrir áhuga sinn á umhverfisvernd og búddatrú. Tónleikaferð um Bretland Kvikmyndin Little Miss Sunshine var valin besta myndina á Produc- ers Guild of America-verðlaunun- um sem voru afhent um síðustu helgi. Verðlaunin þykja gefa góða vís- bendingu um hvaða mynd eigi eftir að vegna vel á óskarsverð- laununum. Myndirnar sem hlutu ekki náð fyrir augum dómnefnd- arinnar voru Babel, The Depart- ed, The Queen og Dreamgirls. Ellefu myndir af þeim sautján sem hafa unnið Producers Guild- verðlaunin hafa verið kjörnar bestu myndirnar á óskarnum. Little Miss kjörin best „Nei, ég hef nú ekki lent í því að fólk hafi efast um hver ég væri en sumir hafa ekki alltaf kveikt á perunni,“ segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær leikur hann í auglýsingu fyrir Auðkennislykil sem á að tryggja öryggi bankaviðskipta á netinu. Í auglýsingunni er gert út á að þótt menn séu þekktir á þessari eyju skipti það litlu máli á netinu. „Mér finnst þetta gott málefni enda nota ég netið mikið sjálfur. Og það er aldrei nógu mikið gert til að tryggja öryggið þar,“ segir söngv- arinn. Björgvin kvaðst vera afar sátt- ur við starfsfólkið frá Filmus og auglýsingastofunni Hvíta húsinu og sagði að tökuliðið hefði verið ákaflega fagmannlegt. Hann hrós- aði Björgvin Franz Gíslasyni í hás- tert en leikarinn bregður sér í líki Bó í auglýsingunni. „Nafni minn er einhver besti skemmtikraftur- inn sem við eigum um þessar mundir og ég var ákaflega ánægð- ur þegar ég heyrði að hann hefði verið ráðinn til verksins,“ segir Björgvin. Sjálfur hefur stórsöngvarinn gert lítið af því að leika en hefur þó komið fram í kvikmyndum á borð við Djöflaeyjuna og kvikmyndinni Gullsandur. „Að leika hefur alltaf kitlað mig en ég hef ekki gert mikið af því að koma fram í auglýsing- um,“ segir Björgvin, sem mundi þó eftir kaffiauglýsingu frá Ó. John- son & Kaaber sem birtist fyrir all- mörgum árum. Björgvin ruddi þar brautina fyrir íslenska poppara í auglýsingum en þeir eru ófáir tón- listarmennirnir sem hafa fetað í þau spor. Bó berst fyrir bættu öryggi á netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.