Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 12
Niðurstöður
könnunar Fréttablaðsins gefa enn
frekari vísbendingu um erfiða
stöðu Framsóknarflokksins, segir
Baldur Þórhallsson, prófessor við
stjórnmálafræðiskor Háskóla
Íslands. Hann segir niðurstöðurn-
ar enn fremur benda til þess að
kjósendur sjái flokkinn ekki fyrir
sér í öðru ríkisstjórnarsamstarfi
en með Sjálfstæðisflokki.
„Í þessu samhengi er athyglis-
vert að sjá að það er minni stuðn-
ingur við núverandi ríkisstjórnar-
samstarf en áður. Það er augljóst
að Framsóknarflokkurinn á ekki
upp á pallborðið hjá kjósendum,“
segir Baldur.
„Þriggja flokka
samstarf stjórnar-
andstöðuflokkanna
vex verulega, og
það er nokkuð
athyglisvert,“ segir
Baldur. „Ég held að
þetta sýni að stjórn-
arandstaðan hefur
sett sig fram sem
skýrari valkost.
Það er ekki svo mikið bil á milli
þeirra sem vilja áframhaldandi
stjórnarsamstarf Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks, og þeirra sem
segjast vilja að stjórnarandstaðan í
heild sinni taki við.“
Baldur segir að stjórn og
stjórnarandstaðan standi hnífjafnt,
en staða Sjálfstæðisflokksins sé
afar sterk. „Þess vegna getum við
átt von á spennandi kosningabar-
áttu og spennandi kosningum.“
Baldur segir það athyglisvert
að sjá að fleiri vilji sjá Frjálslynda
flokkinn í ríkisstjórn en segist
ætla að kjósa hann, og út frá því
megi draga þá ályktun að flokkur-
inn geti átt eitthvað inni.
„Samfylkingin á trúlega einnig
nokkuð fylgi inni hjá kjósendum,
ef miða má við að hún missir tals-
vert fylgi, en heldur nokkurn veg-
inn velli þegar kemur að því að
velja flokka til ríkisstjórnarsam-
starfs,“ segir Baldur.
Stuðningur bæði
framsóknarmanna og sjálfstæðis-
manna við áframhaldandi ríkis-
stjórnarsamstarf flokkanna minnk-
ar samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar Fréttablaðsins á
laugardaginn.
Í könnuninni nú vildu 68 prósent
þeirra sem sögðust myndu kjósa
Framsóknarflokkinn, og tóku
afstöðu tóku til ríkisstjórnarsam-
starfs að loknum kosningum, halda
samstarfinu áfram. Sambærileg
tala fyrir stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins er 53,4 prósent.
Í könnun sem gerð var 26. ágúst
2006 sögðust 72,1 prósent fram-
sóknarmanna vilja áframhaldandi
ríkisstjórnarsamstarf, en 62,3 pró-
sent þeirra sem sögðust ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Í könnun Fréttablaðsins í ágúst
á síðasta ári vildu um 14,5 prósent
sjálfstæðismanna samstarf Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks að
loknum kosningum, en 10,7 prósent
vildi samstarf við Vinstri græn. Nú
virðist áhuginn á samstarfi við VG
næstum tvöfaldast, og vilja 20,3
prósent sjálfstæðismanna nú helst
samstarf við VG, en 10,8 prósent
vilja samstarf við Samfylkingu.
Í könnuninni sem unnin var síð-
astliðinn laugardag vildu flestir
stuðningsmanna Samfylkingarinn-
ar, 40,5 prósent þeirra sem tóku
afstöðu, þriggja flokka samstarf
Samfylkingar, VG og Frjálslynda
flokksins, en 21,4 prósent vildu
samstarf Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks að kosningum lokn-
um. Þriðji kosturinn var svo meiri-
hlutasamstarf með VG, sem 20,2
prósent vildu helst.
Áhugi stuðningsmanna VG á
tveggja flokka samstarfi með Sam-
fylkingu að loknum kosningum
hefur minnkað mikið. Í könnun í
ágúst síðastliðnum vildu flestir
stuðningsmenn VG slíkt samstarf,
45,5 prósent þeirra sem tóku
afstöðu. Í könnuninni sem gerð var
á laugardag vildu einungis 25,4 pró-
sent slíkt samstarf. Fleiri en áður
vildu þó þriggja flokka stjórn VG,
Samfylkingar og Frjálslyndra, alls
38 prósent. Í könnuninni á laugar-
dag sögðust 22,5 prósent stuðnings-
manna VG vilja í stjórnarsamstarf
við Sjálfstæðisflokkinn, sem er
aukning um 9,5 prósentustig frá
ágúst á síðasta ári.
Áhugi stuðningsmanna Frjáls-
lynda flokksins á að mynda þriggja
flokka stjórn með hinum stjórnar-
andstöðuflokkunum virðist aukast
mikið milli kannana. Í könnun
Fréttablaðsins í ágúst síðastliðnum
vildi þriðjungur stuðningsmanna
Frjálslyndra slíka þriggja flokka
stjórn, en í könnuninni sem unnin
var síðastliðin laugardag hafði hlut-
fallið aukist í 59 prósent. Varhuga-
vert er þó að lesa of mikið í þær
tölur þar sem fjöldi þeirra sem
liggur að baki er ekki mikill, sem
eykur skekkjumörkin verulega.
Hringt var í 800 kjósendur laug-
ardaginn 20. janúar og skiptust
svarendur jafnt milli kynja og hlut-
fallslega eftir kjördæmum. Spurt
var: Eftir næstu kosningar, hvaða
stjórnmálaflokkar vilt þú að myndi
næstu ríkisstjórn? 58,6 prósent
aðspurðra tóku afstöðu til spurn-
ingarinnar.
Vilja að stjórnarand-
staðan vinni saman
Stuðningsmenn stjórnarandstöðu vilja hana helst alla saman inn í ríkisstjórnar-
samstarf. Sjálfstæðismenn vilja helst óbreytt ríkisstjórnarmynstur, en áhugi
þeirra á samstarfi við Vinstri græna eykst verulega.
Yasin Hayal, herskár
tyrkneskur þjóðernissinni, hefur
játað að hafa skipulagt morðið á
armensk-tyrkneska ritstjóranum
Hrant Dink á föstudaginn.
Hayal, sem var dæmdur árið
2004 fyrir sprengjuárás á
McDonald‘s-veitingastað, sagðist
hafa útvegað unglingnum sem
játaði á sig morðið byssu og
peninga.
Margir telja að Dink hafi verið
myrtur vegna skrifa sinna um að
Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á
Armenum í byrjun 20. aldarinnar.
Þjóðernissinnar telja slíkt móðgun
við heiður Tyrklands og hafði
Dink fengið líflátshótanir.
Herskár þjóð-
ernissinni játar
Unnið var að því í
gær að fjarlægja olíu úr franska
flutningaskipinu Napoli sem
strandaði við Devonshire í
Suðvestur-Englandi á sunnudag
eftir að hafa laskast í slæmu
veðri. Öllum 26 áhafnarmeðlim-
um var bjargað heilum á húfi.
Eitthvað af olíu hafði lekið í
sjóinn og hafði nokkrum fuglum
verið bjargað úr olíubrák.
Frönsk stjórnvöld sögðu að 1.700
af þeim 41.700 tonnum sem
skipið flutti væru talin hættuleg
og innihéldu rafgeymasýru,
sprengiefni og eldfim efni. Af
2.400 gámum féllu að minnsta
kosti 200 útbyrðis.
Hætta talin á
mengunarslysi
Neytendasamtökin
hafa tekið saman lista yfir þær
hækkanir heildsala og innlendra
framleiðenda, sem tekið hafa
gildi síðan 1. desember síðastlið-
inn.
Í tilkynningu frá samtökunum
segir að þetta sé meðal annars
gert til að neytendur geti betur
áttað sig á því hvað er að gerast í
matvöruversluninni. Virðisauka-
skattur lækkar 1. mars, sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjórnar.
Listann má finna á vefsíðu
samtakanna, ns.is. Neytenda-
samtökin hvetja framleiðendur
og seljendur til að halda aftur af
sér í verðhækkunum.
Birta lista yfir
verðhækkanir
Átakshópur öryrkja
samþykkti með miklum meirihluta
atkvæða á fundi í fyrradag að
hefja viðræður við framboðshóp
eldri borgara um sameiginlegt
framboð til alþingiskosninga
næsta vor. Arnþór Helgason,
fyrrverandi framkvæmdastjóri og
formaður Öryrkjabandalagsins,
segir hópana eiga fjölda sameigin-
legra hagsmunamála að gæta,
sameiginlegur vilji sé til að
stórefla almannatryggingakerfið
og draga úr kostnaðarhlutdeild
sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
Baldur Ágústsson, talsmaður
aldraðra, segir aldraða taka
ákvörðun um sameiginlegt
framboð á fundi í kvöld. „Ég er
bjartsýnn á framhaldið,“ segir
hann.
Bjartsýnir á
samstarfið
Bandarísk og norður-
kóresk stjórnvöld hyggjast hefja
á ný viðræður um kjarnorkuáætl-
un Norður-Kóreu, en seinustu lotu
þeirra lauk í desember án
teljanlegs árangurs. Auk Banda-
ríkjanna og Norður-Kóreu eiga
Japan, Kína og Suður-Kórea aðild
að viðræðunum.
Christopher Hill, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagðist vonast til þess að áætlun
sem samþykkt var árið 2005
kæmi til framkvæmda. Sú áætlun
felur í sér að Norður-Kóreumenn
hætti kjarnorkutilraunum í
skiptum fyrir fjárhagsaðstoð og
öryggistryggingar.
Nýjar kjarnorku-
viðræður af stað