Fréttablaðið - 23.01.2007, Page 23

Fréttablaðið - 23.01.2007, Page 23
Ný og glæsileg sundlaug hefur verið opnuð við Hrafnagils- skóla í Eyjafirði. „Þetta er glæsileg sundlaug og mikil breyting frá gömlu lauginni, það er eiginlega ekki hægt að líkja þeim saman,“ segir Orri Stefáns- son, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Eyjafjarðarsveitar, en ný sund- laug var opnuð að Hrafnagili í mánuðinum. Nýja sundlaugin er 25 m á lengd auk heits potts, vað- laugar, glæsilegrar rennibrautar og eimbaðs. Nemendur í Hrafna- gilsskóla, sem eru um 200 talsins, nota laugina auk þess sem laugin stendur almenningi til boða. „Við höfum fengið mjög góðar viðtökur, hingað koma margir að skoða og gestir eru almennt ánægðir með aðstöðuna. Ég hef í það minnsta ekki fengið neina kvörtun,“ segir Orri og bætir við að vonast sé eftir fleiri ferða- mönnum í sumar. „Þetta er mikil bylting frá því sem var enda er þetta aðstaða eins og hún gerist best í sundlaugum. Það er því um að gera fyrir Akureyringa og aðra að keyra hingað og skella sér í sund. Hingað eru allir velkomnir og svo er jafnvel hægt að gera sunnudagsrúnt úr þessu, byrja í sundi hjá okkur og koma svo við í blómaskálanum Vín og fá sér ís á leiðinni heim.“ Nýja laugin bylting frá því sem var Fullorðnir: Börn: Þriðjudaga kl. 19:00 Þriðjudaga kl. 18:00 Fimmtudaga kl. 19:00 Fimmtudaga kl. 18:00 Laugardaga kl. 10:30 Byrjendanámskeið eru að hefjast hjá Taekwondo deild ÍR. Æfingar fara fram í ÍR-heimilinu, Skógarseli 12 Nánari uppl. í síma 896-1168 og www.irtaekwondo.net

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.