Fréttablaðið - 23.01.2007, Page 42
{ farið á fjöll } 14
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson
er meðal fremstu leikara þjóðarinn-
ar í dag. Hann er einn af stofnend-
um leikhúshópsins Vesturports og
hefur sýnt færni sína bæði á sviði
og á hvíta tjaldinu. Farartækið sem
hann ekur á er ekki af verri endan-
um en það er kolsvartur Wrangler
sem hefur verið að gera góða hluti
síðustu vikurnar þegar snjóþyngslin
á höfuðborgarsvæðinu hafa verið
sem mest.
„Það er mjög stórt stökk að fara
yfir á svona jeppa, sérstaklega núna
þegar snjórinn er svona mikill þá er
þetta alveg frábært. Maður kemst
allt sem maður vill. Maður hefur
bara átt einhverjar japanskar tíkur
og þarf því að venjast því aðeins
hvað þessi eyðir miklu,“ sagði Björn
Hlynur, sem fann þennan Wrangler
á Egilsstöðum.
„Ég hef aldrei verið mikill
jeppakall en alltaf þó verið veikur
fyrir þessari tegund, hún hefur allt-
af verið í uppáhaldi hjá mér. Svo
var ég á ferðalagi í sumar og keyrði
framhjá bílasölu á Egilsstöðum. Ég
er ekki alveg týpan sem er alltaf
á bílasölum en ég sá þennan kol-
svarta Wrangler og ég bara keypti
hann. Frændi minn sem er einnig
mikill Wrangler-aðdáandi fór aust-
ur og sótti hann fyrir mig,“ sagði
Björn, sem hefur þó ekki farið í nein
sérstök ferðalög á jeppanum.
„Ég veit nú ekki hvort þetta sé
beint eitthvað hálendistæki en hann
virkar vel í sköflunum hér í borg-
inni. Það er gaman að vera ánægð-
ur með bílinn sinn, maður þarf ekki
að vera einhver bílasjúklingur til
þess,” sagði Björn Hlynur Haralds-
son að lokum. - egm
Á kolsvörtum
kagga í snjónum
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson keyrir um á kolsvört-
um Wrangler og hefur vakið talsverða athygli á götum
borgarinnar. Hann segist ekki vera bílasjúklingur en er
ánægður með farartækið sitt.