Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 58
Kl. 20.00
Goethe-Institut stendur fyrir kvik-
myndasýningu í Fyrirlestrarsal
Landsbókasafnsins. Mynd kvöldsins
er Níundi dagurinn eftir leikstjór-
ann Volker Schlöndorff frá árinu
2004. Myndin er með þýsku tali og
enskum undirmálstexta. Aðgangur
er ókeypis.
Nýsmíðar í Listasafni Íslands
Bjarni Haukur er aftur
kominn á fjalirnar. Alþjóð
man þegar hann stóð á sviði
Gamla bíós misserunum
saman og flutti þar íslenska
staðfærslu á amerískum
einleik eða uppistandi sem
kallað var Hellisbúinn.
Sýningin lenti á endanum inni á
topp tíu listanum yfir fjölsóttustu
sýningar á Íslandi, yfir 260 sýning-
ar voru á verkinu og dró dilk á
eftir sér: framleiðendur keyptu
sér bar – Prikið – og síðan sjón-
varpsstöð – Skjá einn. En það er
önnur saga.
Bjarni Haukur lagði svo fyrir
sig sjónvarpsleik á Skjá einum, fór
síðan til Noregs og lagðist í víking,
framleiddi og samdi sjónvarps-
þætti fyrir norskar og sænskar
sjónvarpsstöðvar, leikstýrði leik-
ritum og söngleikjum. Hann var
um tíma aðili að framleiðslufyrir-
tækinu 3 sagas en dró sig út úr því,
stofnaði sitt eigið fyrirtæki sem
stendur að leiksýningunni sem á
fimmtudag verður frumsýnd í
Iðnó.
Bjarni segir Pabbann eiga sér
rætur í þeim tíma þegar hann var
langdvölum erlendis. Það eru nú
þrjú ár síðan hann tók að vinna
texta fyrir svið um föðurhlutverk-
ið og hvernig það hefur breyst á
síðustu árum. Hann segir þá Sig-
urð Sigurjónsson leikstjóra hafa
legið yfir verkinu síðustu misseri:
„Föðurhlutverkið hefur breyst svo
mikið á síðustu tveimur áratugum.
Verkið er raunar bara hugleiðing
um það: það er ungt par að fara að
búa saman, það er meðganga og
fæðing, og það breytist allt.“
Leikritið Pabbinn verður heims-
frumsýnt í Iðnó á fimmtudag: það
er einleikur eða „one-man-show“
þar sem Bjarni Haukur bregður
sér í ýmis líki og veltir því fyrir
sér hvað það er að vera pabbi:
„Pabbinn er drepfyndið og hjart-
næmt nýtt íslenskt leikrit sem
fjallar um það sem skiptir einna
mestu máli í lífinu,“ segir í til-
kynningu framleiðandans svo
nærri má geta að hér er slegið á
ýmsa strengi.
Auk þeirra Sigurðar Sigurjóns-
sonar leikstjóra og Bjarna koma
að sýningunni Egill Eðvarðsson
sem gerir leikmynd, Árni Bald-
vinsson sem lýsir og Þórir Úlfars-
son sem gerir tónlist. Sýningar
verða í Iðnó. Og hvernig þykir
Bjarna að vera kominn þar á svið
frammi fyrir 160 áhorfenda sal?
„Það er náttúrlega bara „dream
come true“ gamall draumur sem
rætist. Hér var maður að sniglast
sem krakki, kom hingað og fékk
leigða búninga hjá Áróru Hall-
dórsdóttur. Það er eitthvað seið-
magnað hér í loftinu og maður
andar að sér sögu allan tímann.
Það verður spennandi að leika
fyrir áhorfendur í þessu húsi.“
20 21 22 23 24 25 26
Tilkynnt var í gær um
úthlutun úr Tónlistar-
sjóði sem tónlistarráð
menntamálaráðuneytis er
til ráðgjafar um. Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra veitir
styrki úr sjóðnum. Fjárþörf
reyndist að þessu sinni
langt umfram það sem til
boða stóð, en sjóðurinn mun
veita aðra eins fjárhæð,
rúmar tuttugu milljónir,
síðar á árinu.
Áttatíu og tvær umsóknir bárust
sjóðnum og var sótt um ríflega 80
milljónir. Úthlutað er 21 milljón
sem deilist á rúm 53 verkefni.
Stærsta styrkinn, 5 milljónir, fær
Samtónn, en það eru heildarsam-
tök tónlistarinnar í landinu og
rennur hann til reksturs Útflutn-
ingsskrifstofu íslenskrar tónlistar
sem hefur hönd í bagga með utan-
ferðum íslenskra tónlistarmanna.
Raunar eru margir styrkjanna
vegna utanfara og líka vegna
vinnslu hljóðritana og útgáfu.
Annar stærsti styrkurinn, 2 millj-
ónir, rennur til þeirrar miklu hátíð-
ar sem Tónskáldafélagið stendur
fyrir þessa dagana, Myrkra músík-
daga. Sigur Rós fær milljón í styrk
vegna ferða og kynningar, sömu
upphæð þiggur Kirkjulistahátíðin
sem Listvinafélag Hallgrímskirkju
hefur staðið fyrir um langt árabil.
Styrki til útgáfu fá nokkrir ein-
staklingar og tónlistarhópar: Aton,
Sumartónleikar í Skálholti, Védís
Hervör, Ragnheiður Árnadóttir,
Sverrir Guðjónsson, Hallfríður
Ólafsdóttir, Kristján Orri Sigur-
leifsson, Haraldur Leví Gunnars-
son, Gestur Guðnason og þau
Kenya Kristín Emilíudóttir og
Jason Nemor Harden. Flestir
styrkjanna eru 100 þúsund.
Tónleikahald af ýmsu tagi er
betur styrkt: Tónlistarhátíðin Við
Djúpið sem haldið hefur til við Ísa-
fjarðardjúp fær 800 þúsund,
Sumartónleikar við Mývatn 400
þúsund, Tónvinafélag Laugaborgar
sem hefur verið duglegt við tón-
leikahald í Eyjafirði fær 500 þús-
und, Reykholtshátíðin annað eins,
sem og Þjóðlagahátíðin á Siglu-
firði. Múlinn fær 400 þúsund,
Kammersveitin Ísafold 200 þúsund
til að koma á fót tónlistarhátíð og
Adapter og Isnord sömuleiðis. Að
ógleymdu Aton með hátíðina frum.
Kammermúsíkklúbburinn er enn
upp á árleg tillegg kominn en hann
fær 500 þúsund.
Mörg stök verkefni eru styrkt:
Trabant fær ferðastyrk, Sumartón-
leikar í Skálholti fá styrk til nótna-
útgáfu og tónlistarsmiðju fyrir
börn. Marta Guðrún Halldórsdóttir
fær 300 þúsund til að vinna við
íslenska miðalda- og endurreisnar-
tónlist og Hörður Áskelsson 200
þúsund vegna Hallgrímspassíu.
Hér eru á garði svokallaðir klass-
ískir tónlistarmenn með poppinu:
Gunnar Kvaran og Mammút, KK
og Maggi Eiríks sitja við sama borð
og Hnúkaþeyr - blásaraoktettinn.
Fræg er saga formannsins sem
stóð við bátinn í naustinu og sagði
við áhöfn sína: Eigum við að setja?
Svo stóðu allir og biðu. Tónlistar-
sjóður veitir mönnum styrk til að
setja fleyið á sjó. Þá er að sigla.
Tónlistarpeningar
NLP Námskeið
Neuro - Linguistic - Programming
- Er sjálfstraustið í ólagi?
- Langar þig í betri líðan?
- Finnst þér að fáir skilji þig?
- Er eitthvað í fari þínu sem þú vilt vinna bug á?
- Finnst þér að öðrum gangi betur í lífinu en þér?
- Gengur illa að klára verkefni sem þú byrjar á?
- Finnst þér erfitt að höndla gagnrýni?
Með NLP aðferðum getur þú auðveldlega breytt lífi
þínu og skapað þína eigin framtíð.
NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð
frábærum árangri í lífinu.
NLP Námskeið verður haldið
9.-11. og 16.-18. febrúar.
Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP.
Upplýsingar í síma: 894-2992
Netfang: kari@ckari.com
Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com
!