Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 72

Fréttablaðið - 23.01.2007, Side 72
Þó að yngsta barnið á heimilinu hafi ekki enn verið vanið af brjósti hefur næstyngsta hnátan fengið þá fínu hugmynd að eign- ast eitt systkini í viðbót. Þetta er vegna þess að hún er á hinum bjartsýna leikskólaaldri. Aðferð- in til að afgreiða svona pantanir er að humma annars hugar og benda svo snarlega út um glugg- ann á eitthvað áhugavert eins og sjúkrabíl. Ennþá er eftirfylgni barnsins viðráðanleg en tilhugs- unin ein um fleiri lítil börn vekur ýmsar kenndir. Eins dásamleg, yndisleg og unaðsleg sem þau annars eru. heimilisins er hinsvegar af hinni opinskáu, með- vituðu fyrstu kynslóð barna sem hafa notið virkra lýðræðisrétt- inda innan fjölskyldu sinnar. Þannig hefur hún komist upp með allskyns hortugheit í nafni mál- frelsis. Eitt sinn þegar ég kvart- aði um magapínu eftir hversdags- legt ofát mældi hún móður sína út sem væri hún viðurkennd dræsa og spurði hvort ég væri nú enn orðin ólétt. konu þekki ég sem ekki hefur ótal sinnum verð spurð hvort ekki eigi nú bráðum að koma með eitt lítið. Enga móður sem ekki hefur silljón sinnum fengið spurninguna sívinsælu hvort barnunginn þurfi nú ekki bráðum að eignast systkini. Töfra- talan virðist samt vera þrír. Þegar þeim barnafjölda er náð verða spurningar meira á þá lund hvort við séum nú kannski hætt? Nán- ari vinir brydda upp á elskuleg- um fróðleik um ýmsar aðgerðir sem hægt er að grípa til í varnað- arskyni. Hugleiðingar um að setj- ast í helgan barneignastein fela samt í sér dálítinn söknuð til með- göngunnar. Aldrei er tilfinningin um eigið mikilvægi sterkari en þá. miðaldra krísa helgast kannski af þeirri staðreynd að um helgina fór ég í fertugsafmæli vinkonu minnar. Þar sem við erum jafnöldrur þýðir það að fljótlega verð ég því miður ekki lengur þrjátíuogeitthvað, heldur líka komin á hinn virðulega fimm- tugsaldur. Bara orðið eitt og sér hljómar eins og fáránlegt grín í tengslum við kornunga mann- eskju eins og sjálfa mig. Að bara eftir örfáa mánuði muni ég þurfa að fara í lagningu og fá mér vel- úrgalla, því það er svo viðeigandi fyrir svona eldri frúr. Bráðum neyðist ég líka loks til að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Allt búið? AFL OG HAGKVÆMNI SAMEINAST TÆKNIUNDRIÐ TDI® DÍSILVÉLIN EYÐIR AÐEINS 4,9 LÍTRUM SIMPLY CLEVER GullnaStýrið Skoda Octavia hefur meðal annars hlotið Gullna stýrið, einhver eftirsóttustu bílaverðlaun heims. SkodaOctavia Skoda Octavia með 1,9 lítra TDI® dísilvél sannar að afl og hagkvæmni getur farið saman. Vélin skilar 105 hestöflum en eyðslan er einungis 4,9 lítrar í blönduðum akstri á hverja 100 km. Svo er Octavia TDI® einnig fáanleg fjórhjóladrifin og meira en tilbúin í átök vetrarins. Hvort sem hindrunin er háir snjóskaflar eða hátt eldsneytisverð þá ertu í toppmálum á Skoda Octavia TDI®. Í ágúst 2006 tókst Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra FÍB blaðsins, að ná eyðslu bílsins í 3,63 lítra þegar hann ók rúmlega hringveginn, alls 1.515 km, í áheitaakstri HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. LANGAR ÞIG Á HM Í HANDBOLTA? Komdu þá og reynsluaktu Skoda og þú gætir unnið miða fyrir tvo á úrslitaleikinn á HM í handbolta í Þýskalandi 4. febrúar, flug með Icelandair og gistingu á glæsihóteli. HEKLA er stuðningsaðili HSÍ – ÁFRAM ÍSLAND! Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alla daga - Lifið heil

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.