Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 2

Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 2
2 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR Spurning dagSinS VeRðbReyTinGARnAR Breytingarnar á matarverði voru komnar til fram- kvæmda í kassakerfum verslana þegar verslanir voru opnaðar í gærmorgun. Verslunarmenn voru þó í sumum tilvikum ennþá að breyta hillumerkingum í búðum. Neytendur voru flestir ánægðir með verðlækkunina. Þröstur Karlsson, verslunar- stjóri í Nettó í Mjódd, segir að breytingar á hillumerkingum hafi að langmestu leyti verið komnar til framkvæmda þegar verslunin var opnuð klukkan tíu enda hafi verið búið að undirbúa breytinguna í nokkra daga og formerkja það sem hægt var. „Tölvukerfið var búið að gera upp um fimmleytið í gærmorgun og senda nýtt verð á alla búðar- kassa. Við mættum þá nokkrir verslunarmenn til að breyta verð- inu á hillumiðum og það gekk mjög hratt. Þegar viðskiptavinirnir komu í búðina klukkan tíu gátu þeir verslað á réttu verði,“ segir Þröst- ur. Katrín Jóhannsdóttir, starfs- maður í mötuneyti, var að kaupa í matinn í Nettó í gær. Hún segir að sér finnist skattalækkunin mjög góð. Hún hafi fundið fyrir því í Bónus um síðustu helgi að verðið hafði lækkað umtalsvert. „Þetta minnkar útgjöld heimilanna,“ segir hún. Lækkunin á virðisaukaskatti kemur ekki bara fram í vöruverði heldur líka í rúmlega sex prósenta lægra verði á bókum, tímaritum og geisladiskum. Þórunn Sigurðar- dóttir, verslunarstjóri hjá Eymunds- son í Austurstræti, segir að verð- breytingin hafi verið á hreinu í kössunum í gærmorgun og það hafi skipt mestu máli. Hún vonast til að viðskiptavinir sýni þolinmæði í dag og næstu daga meðan verið er að handmerkja allar vörur bókabúða upp á nýtt. Helga Jónsdóttir, áttræð kona í Breiðholti, var að skoða bækur í Eymundsson í Mjódd. Helga er tor- tryggin á skattalækkunina og ótt- ast að hún endist ekki. Hún spáir því að vöruverðið hækki aftur í vor. „Ég finn fyrir lækkuninni í dag en ég hef ekki trú á að hún endist. Það er ekki vaninn. Varan hækkar allt- af aftur,“ segir Helga og telur reynslu liðinna ára sýna þetta. Verðlagseftirlit ASÍ hefur fylgst með verðlaginu síðustu mánuði og Henný Hinz, forstöðumaður Verð- lagseftirlitsins, segir að sú starf- semi verði öflug áfram næstu mán- uði. ghs@frettabladid.is Rétt verð tilbúið í kössum verslana Verslanir voru tilbúnar með rétt verð í kössum þegar skattalækkunin tók gildi í gærmorgun. Hillumerkingum var breytt fram eftir degi. Í bókabúðum báðu menn um smá þolinmæði. Neytendur voru bæði ánægðir og tortryggnir. ÞröStur KarlSSon Verslunarstjórinn í Nettó var í hópi þeirra sem mættu til hillumerkinga í gærmorgun. Fréttablaðið/heiða Matvara læKKaði í gær Matur lækkaði í verði í verslunum í gær. Sumir neytendur óttast þó að breytingin endist ekki og að verðið hækki aftur í vor. Fréttablaðið/heiða Katrín JóhannSdóttir Starfsmaður í mötuneyti, segist hafa fundið fyrir því í bónus um síðustu helgi að verð á matvöru hefði lækkað umtalsvert. Fréttablaðið/heiða Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS FORD FOCUS C-MAX 2.0 Nýskr. 03.06 - Sjálfskiptur - Ekinn 7 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð á ður: 2. 380.0 00- Tilboð : 1.980. 000.- Sigurður, gelta klámhundar ekki? „Nei, ekki einu sinni að kindarlegum bændum.“ aðstandendur vefsíðunnar klam.is ætla að efna til þögulla mótmæla fyrir framan hótel Sögu til að mótmæla illri meðferð á erlendum klámhundum sem ætluðu að koma til landsins. UmhVeRFiSmál Evrópusamtök atvinnulífsins lýsa yfir áhyggjum af því að ekkert liggi fyrir um hvernig eigi að ná háleitum markmiðum Evrópusambandsins á sviði orku- og loftslagsmála. Samtökin leggja á það áherslu að einhliða aðgerðir af hálfu ESB geti einfaldlega haft þau áhrif að draga úr samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs. ESB hefur sett sér markmið um að minnka losun gróðurhúsaloft- tegunda um tuttugu prósent fyrir árið 2020 og að hlutfall endurnýj- anlegra orkugjafa í orkunotkun innan sambandsins verði orðið tuttugu prósent. Hlutfallið er nú um sjö prósent. Á Íslandi er hlutfallið nú 72 prósent. - shá Evrópusamtök atvinnulífsins: Áhyggjur af loftslagsmálum veðurKortaMynd erfitt verður að ná markmiðum í loftslagsmálum sem sett hafa verið. DómSmál „Það getur vel komið til greina að fara í mál en við bíðum vitanlega eftir dómi Hæstaréttar í málinu [máli Sigurðar Hreins- sonar gegn Keri] sem myndi skipta hugsanlega sköpum fyrir málsókn okkar,“ segir Styrmir Haukdal leigubílstjóri en hann íhugar nú, ásamt fleiri leigubíl- stjórum, að fara í mál við olíufélögin Skeljung, Olís og Ker, áður Olíufélagið. Myndi málsóknin öðru fremur byggja á því að samráð olíufélag- anna, á árunum 1993 til 2001, hafi leitt til yfirverðs sem hefði skilað sér í verri kjörum til viðskipta- vina olíufélaganna. - mh Málaferli gegn olíufélögum: Leigubílstjórar bíða eftir dómi FASTeiGnAlán Ingibjörg Þórðar- dóttir, formaður Félags fasteigna- sala, telur að hækkað lánshlutfall í 90 prósent og hámarkslán hjá Íbúðalánasjóði upp á 18 milljónir hafi ekkert sérstaklega mikla þýðingu fyrir fasteignamarkað- inn. Verið sé að færa kerfið til sama horfs og var fyrir 1. júlí í fyrra. Ingibjörg bendir á að 18 milljónir dugi rétt til kaupa á þriggja herbergja íbúð þar sem lánshlutfallið er 90 prósent af kaupverði. Á höfuðborgarsvæð- inu séu fáar eignir þar sem þetta nýtist. Viðmiðunarreglurnar séu þannig. Þeim þurfi að breyta þannig að Íbúðalánasjóður hafi sömu möguleika og bankarnir. - ghs/ sjá síðu 12 Félag fasteignasala: Kerfið fært til sama horfs ingibJörg Þórðardóttir bAnDARíkin, AP „Við höfum sóað miklu af dýrmætasta fjársjóði okkar, sem er líf Bandaríkjamanna,“ sagði repúblikaninn John McCain í sjónvarpsþætti Davids Letterman á þriðjudagskvöldið. McCain hefur aldrei hvikað frá stuðningi sínum við stríðið í Írak, en hefur á hinn bóginn harðlega gagnrýnt það hvernig George W. Bush forseti hefur staðið að stríðinu. Það vakti mikla athygli þegar hann sagði í sjónvarpsþættinum að lífi bandarískra hermanna hefði verið „sóað“ undanfarin fjögur ár í Írak. Demókratar segja nú eðlilegt að hann biðjist afsökun- ar á þessu orðalagi, þar sem Barack Obama, sem sækist eftir að verða forsetaefni demókrata, baðst afsökunar á sambærilegum ummælum nýverið. McCain notaði annars tækifærið í sjónvarpsþætt- inum og tilkynnti að hann ætlaði að sækjast eftir að vera forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins árið 2008. Hann sagðist ætla að lýsa því formlega yfir í apríl næstkomandi, í beinu framhaldi af ferð sinni til Íraks. McCain sóttist einnig eftir því að verða forsetaefni flokksins árið 2000, en þá bar George W. Bush sigur úr býtum. - gb John McCain staðfestir að hann sækist eftir að verða forsetaefni repúblikana: Segir lífi hermanna sóað í SJónvarpSÞætti letterManS John McCain ákvað að stað- festa framboðsáform sín í sjónvarpsþætti Davids letterman á þriðjudagskvöld. Fréttablaðið/aP SkoðAnAkÖnnUn Sjálfstæðisflokk- urinn mælist með 36 prósenta fylgi, samkvæmt nýjum Þjóðar- púlsi Capacent Gallup sem kynntur var á RÚV í gær. Vinstri grænt er næststærsti stjórnmála- flokkurinn samkvæmt þessari könnun og segjast 24 prósent myndu kjósa flokkinn. Fylgi Samfylkingar er nú 23 prósent, Framsóknarflokks tíu prósent og Frjálslynda flokksins sjö prósent. Hringt var í rúmlega 4.600 manns allan febrúarmánuð og var svarhlutfall 61 prósent. Þessi niðurstaða Capacent er nánast samhljóða niðurstöðum fylgiskönnunar Fréttablaðsins sem birt var síðasta föstudag. Mest munar einu prósentustigi. - ss Fylgiskönnun Capacent: VG næststærsti flokkurinn vélar prufukeyrðar Prufukeyrsla á vélum nýrrar kalkþör- ungaverksmiðju á bíldudal er hafin. Stefnt er að því að framleiðsla hefjist í næstu viku. Um tíu manns munu starfa í verksmiðjunni fyrst um sinn. bíldudalur býflugur í árásarham Kona á fertugsaldri varð fyrir árás mörg hundruð býflugna í gær. Konan, sem er búsett í arisóna í bandaríkj- unum, segir engu hafa verið líkara en heimsendir hafi verið í nánd. hún hafi sig ekki getað hreyft og tunga hennar tekið að bólgna. Konan þykir hafa sloppið ótrúlega vel. bandaríKin UmhVeRFiSmál Mikill fjöldi trjáa, hefur verið felldur við Kópavogs- hæli, þar sem Arnarfell undirbýr byggingaframkvæmdir fyrir Kópavogsbæ, en þar stendur til að byggja um 230 íbúðir. Tré af öllum stærðum og teg- undum liggja á víð og dreif um byggingarsvæðið. Friðrik Bald- ursson, garðyrkjustjóri Kópa- vogsbæjar, segir að um tvö hundr- uð tré hafi verið fjarlægð í fyrra og gróðursett á nýjan leik. Hann hefur ekki tölu á þeim sem voru felld. „Það var alveg ljóst að það ættu að fara tré þegar samþykkt var deiliskipulag á þessu svæði,“ segir Friðrik. Ekki hafi verið hægt að flytja stærstu trén. Aðspurður hvort frágangur á svæðinu sé eðlilegur að hans mati, svarar Friðrik að þetta sé bygg- ingarsvæði, byggja eigi þar sem tré voru fyrir. Allt nýtilegt hafi verið tekið og annað ekki. Jón Loftsson skógræktarstjóri kannast ekki við að hafa veitt leyfi fyrir gerð rjóðursins á Kópa- vogstúni og segir málið verða rannsakað hið fyrsta. Hann taki síðan ákvörðun um framhaldið. - kóþ Mörg tré felld við Kópavogshæli án leyfis skógræktarstjóra: Trjágróðri hent á víð og dreif við KópavogShæli talsvert af trjágróðri liggur í kring um Kópavogshæli, þrátt fyrir að 200 tré hafi verið flutt og gróður- sett annars staðar. Fréttablaðið/Valli

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.