Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 6
6 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
KjörKassinn
www.lysi.is
Omega-3
F I S K I O L Í A
Gjöf náttúrunnar til þín
Má taka með lýsi.
Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið á
marga vegu og hefur jákvæð áhrif á:
Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3
fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur
lífsnauðsynlegar.
Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á
jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna.
sjón
hjarta og æðakerfi
blóðþrýsting
kólesteról í blóði
liði
rakastig húðarinnar
minni
andlega líðan
námsárangur
þroska heila og
miðtaugakerfis
á meðgöngu
Allstórir hópar fyrrverandi vistmanna
Breiðavíkurheimilisins annars vegar
og Byrgisins hins vegar hafa leitað
aðstoðar hjá Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi frá því að þjónustu fyrir
fólkið var hleypt af stokkunum. Hún
er í höndum fagaðila, sem ræða við
fólkið og leggja línur fyrir áframhald-
andi aðstoð við það innan heilbrigð-
iskerfisins.
Bjarni Össurarson, yfirlæknir á
vímuefnadeild LSH, segir að rúmlega
tíu manna hópur fyrrverandi vist-
manna í Byrginu hafi leitað til deildarinnar.
„Við tökum upplýsingar frá öllum þeim sem til okkar
leita og hafa verið í Byrginu. Þess ber að geta að ekki
nærri allir í þessum hópi eru konur sem hafa verið mis-
notaðar. Við leggjum hvað mesta áherslu á að aðstoða
þær,“ segir Bjarni. Hann bætir við að rætt sé við fólkið
og bráðavandi þess metinn, hvort það þurfi aðstoð
félagsfræðinga, hjúkrunarfræðinga eða lækna eða
afeitrun á deild. Þá sé verið að finna farveg fyrir frekari
sálfræðiaðstoð, einkum handa konunum sem hafi orðið
fyrir misnotkun.
Jón F. Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðdeild LSH,
sem leiðir teymið er tekur á móti fólkinu sem dvaldi í
Breiðavík, segir að allstór hópur hafi leitað sér aðstoðar.
„Það er reynt að bregðast eins fljótt við og auðið er
og með eins góðum úrræðum og auðið er,“ segir hann.
„Mennirnir koma úr ýmsum áttum, en það eru greinilega
fagaðilar úti á landbyggðinni sem sinna þeim líka, auk
þess sem félagsmálayfirvöld hafa tekið málið föstum
tökum.“
Símanúmer sem fólkið getur beðið um aðstoð í er
543 4074 virka daga milli klukkan 9 og 16 fyrir 31. mars
næstkomandi. - jss
Fólk sem dvaldi í Byrginu og Breiðavík hefur leitað til Landspítala:
Fyrrverandi vistmenn njóta aðstoðar
DÓMSMÁL Karlmaður á tuttugasta ári hefur verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa stungið
föður sinn í síðuna með flökunarhnífi á veitingastað
við Laugaveg síðastliðið sumar. Þar af eru nítján
mánuðir skilorðsbundnir til fimm ára og dregst
þriggja mánaða gæsluvarðhaldsvist mannsins frá
refsingunni.
Hæstiréttur kvað upp dóminn í gær og féllst á þá
niðurstöðu héraðsdóms að ósannað væri að maðurinn
hefði fyrirfram ætlað að drepa föður sinn.
Maðurinn var dæmdur í eins árs fangelsi, þar af
níu mánuði skilorðsbundna, í héraðsdómi. Hæstirétt-
ur þyngdi dóminn vegna þess hversu hættulegu og
stóru vopni maðurinn beitti þegar hann stakk föður
sinn, vegna þess að hnífurinn gekk tíu til fimmtán
sentimetra inn í síðu mannsins og vegna þeirra afleið-
inga sem hlutust af stungunni. Fimm dómarar kváðu
upp dóminn og vildu tveir þeirra staðfesta niðurstöðu
héraðsdóms. Hæstiréttur tók mið af ungum aldri
mannsins við ákvörðun refsingarinnar, auk þess sem
hann hafði ekki áður brotið lög.
Manninum var einnig gert að greiða allan sakar-
kostnað í málinu á báðum dómstigum. Honum var
einnig gert að greiða kostnað vegna geðrannsóknar
sem hann gekkst undir, sem og að sæta sérstöku
umsjónarskilyrði í eitt ár. - ifv
Hæstiréttur dæmdi karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps:
Stakk föður sinn með hnífi
hæstiréttur íslands
Karlmaður á tuttugasta ári var
dæmdur í tveggja ára fangelsi
í Hæstarétti í gær fyrir að hafa
stungið föður sinn í síðuna
með flökunarhníf.
HEILBRIGÐISMÁL Verið er að athuga hvort Götusmiðj-
an verði flutt í húsnæðið á Efri-Brú, þar sem Byrgið
var áður starfrækt, samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins. Annar möguleiki er að hún verði flutt í Arn-
arholt á Kjalarnesi, en húsnæðið þar stendur nú
autt.
Forstöðumaður fasteigna ríkissjóðs, Snævar Guð-
mundsson, fór að Efri-Brú í gær til að telja eignir
ríkisins innanstokks. Þar voru á sama tíma staddir
fulltrúi frá félagsmálaráðuneyti, forstöðumaður
Barnaverndarstofu, Guðmundur Angantýsson í
Götusmiðjunni og fleiri. Gengið var um húsnæðið
sem nú hefur verið tæmt að mestu og fékk blaða-
maður Fréttablaðsins að fylgja hópnum.
Á Efri-Brú eru samtals sex hús þar sem er svefn-
aðstaða fyrir 44-46 manns að meðtöldu starfsfólki.
Nánast allt sem er í húsunum er í eigu ríkisins, fyrir
utan persónulega muni sem fyrrverandi starfsmenn
Byrgisins hafa enn ekki sótt.
„Húsnæðið er að hluta til nýlegt og það þarf ekki
að fara út í miklar lagfæringar þar,“ sagði Snævar.
„En það þarf að gera því eitthvað til góða verði starf-
semi flutt þar inn, svo sem að mála og flikka lítillega
upp á það.“
Snævar sagði að verið væri að athuga möguleik-
ana á nýtingu húsanna í framtíðinni. Ef ekkert kæmi
út úr þeirri athugun yrði það selt.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur kallað eftir
framkvæmdaáætlun um úrbætur á húsnæði því sem
Götusmiðjan er nú starfrækt í að Akurhóli, sem áður
var gamla Gunnarsholt. Að sögn Elsu Ingjaldsdóttur,
framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitsins, er kom-
inn tími á viðhald á húsum þar og lúta athugasemd-
irnar að því.
„Þetta eru stærri og fjárfrekari úrbætur og því
förum við þá leið að kalla eftir framkvæmdaáætlun
og taka síðan afstöðu til þess hvort hægt sé að fallast
á þau tímamörk sem stjórnendur setja sér,“ sagði
hún.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins munu
þær lagfæringar sem gera þarf kosta tugi milljóna,
jafnvel hundruð milljóna. Því er verið að huga að
flutningi starfseminnar í annað og betra húsnæði.
jss@frettabladid.is
Skoðað hvort Byrgið
hýsi Götusmiðjuna
Forstöðumaður fasteigna ríkissjóðs taldi eignir ríkisins að Efri-Brú í gær. Með
í för var Guðmundur Angantýsson í Götusmiðjunni ásamt öðrum. Verið er að
skoða hvort Götusmiðjan, sem er í lélegu húsnæði, fái inni í gamla Byrginu.
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
EiGnatalninG Forstöðumaður fasteigna ríkissjóðs, Snævar
Guðmundsson, fór að Efri-Brú í gær til að telja eignir ríkisins.
Nánast allt reyndist vera í ríkiseigu.
GötusMiÐjan Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barna-
verndarstofu, var mættur á staðinn ásamt Mumma í Götu-
smiðjunni. FréttABLAðið / GVA
Bjarni
össurarson
LonDon, AP Hussein Osman, einn
sex sakborninga í réttarhöldum út
af misheppnuðum sprengjuárásum
á London árið 2005, segir að
árásirnar hafi aldrei átt að valda
tjóni á fólki. Markmiðið hafi aðeins
verið að vekja ótta og mótmæla
þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu.
Sprengjuefni, gerð úr blöndu af
hveiti og sýru, fundust í neðanjarð-
arlestum og strætisvagni 21. júlí
árið 2005, tveimur vikum eftir að
sjálfmorðsárásarmenn drápu
sjálfa sig og 52 farþega í London.
Talið var að árásirnar hefðu
mistekist, en Osman segir
sprengjurnar ekki hafa verið
raunverulegar sprengjur. - gb
Sakborningur í London:
Árásirnar voru
bara blekking
Á að refsa fyrir brot á skógrækt-
arlögum?
já 83%
nei 17%
spurninG daGsins í daG:
Finnst þér dómurinn í Bubba-
málinu réttlátur?
Segðu skoðun þína á vísir.is