Fréttablaðið - 02.03.2007, Síða 16
16 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
lÖGReGlUmál „Ég sagði þeim að ég
ætlaði að kæra lögregluna og að
ég vildi fá einkennisnúmerin
þeirra. Þá réðust fjórir lögreglu-
menn á mig og hentu mér í jörð-
ina. Ég missti meðvitund við högg-
ið. Þegar ég rankaði svo við mér
var ég kominn aftur inn í fanga-
klefann og nú handjárnaður með
hendur og fætur fyrir aftan bak
líkt og ég væri hryðjuverkamað-
ur,“ segir Manzoyoto Aba Mbom-
yo Nunez, 28 ára gamall spænskur
ríkisborgari, sem hefur kært lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins fyrir
ólögmæta handtöku og ofbeldi í
sinn garð.
Eftir samskipti hans við lög-
regluna var hann með kúlu á
vinstra gagnauga, kenndi eymsla í
baki, hálsi og öxl auk þess sem
hann hélt sig kinnbeinsbrotinn. Þá
segist hann hafa verið með rispur
eftir handjárnin á höndum og
fótum.
Manzoyoto hafði farið á tón-
leika með hóp af vinum sínum
aðfaranótt 3. febrúar síðastliðins-
og var á heimleið þegar ákveðið
var að koma við á skemmtistaðn-
um Pravda. Þar var honum mein-
aður aðgangur að staðnum vegna
klæðaburðar og þegar hann bað
um að fá að tala við yfirmann var
honum neitað. Í staðinn segir
Manzoyoto dyravörð staðarins
hafa ráðist á sig. „Hann henti mér
á bíl og var með mjög ógnandi til-
burði. Ég fékk áfall og það næsta
sem ég vissi þá var dyravörðurinn
með fótinn á bakið á mér og búinn
að snúa upp á hendina. Ég kallaði
til fólks sem horfði á að hringja á
lögreglu en enginn gerði neitt.
Sumir hlógu meira að segja.“
Lögreglan kom um síðir og
handtók þá Manzyoto án þess að
útskýra það frekar. Hann segist
hafa drukkið fjóra bjóra á nokkr-
um klukkutímum og alls ekki hafa
verið mikið ölvaður. „Mér var
síðan hent í fangaklefa án klós-
etts. Ég var mjög ringlaður og í
miklu uppnámi. Ég vildi fá útskýr-
ingar á veru minni þarna og fá að
hringja í konuna mína, spænska
konsúlatið og lögfræðing. Mér var
neitað um allt þetta.“
Eftir einhvern tíma kom lög-
reglumaður og hleypti Manzoyoto
út og hann hélt þá kröfum sínum
áfram. Hann segir lögreglumenn-
ina þá hafa ráðist á sig með fyrr-
greindum afleiðingum.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
segir ríkissaksóknara rannsaka
allan áburð um það að lögreglu-
menn hafi brotið af sér í starfi. Því
sé ekki eðlilegt að embætti hans
tjái sig um þau. Á skrifstofu ríkis-
saksóknara fékkst staðfest að
kæra vegna atviksins hefði borist
og að málið væri í rannsókn.
thordur@frettabladid.is
Sakar lögreglu
um ofbeldi
Manzoyoto Nunez, 28 ára spænskur ríkisborgari,
segir lögreglu hafa handjárnað sig á höndum og fót-
um. Hann hefur kært lögregluna fyrir harðræði.
Manzoyoto aba MboMyo nunez Segir lögregluna hafa beitt sig ofbeldi og vill að
lögreglumennirnir sem áttu í hlut verði reknir. Hann telur að um kynþáttafordóma
hafi verið að ræða.
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK
SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Antalya í Tyrklandi (E1)
14. – 24. apríl Uppseld
Antalya í Tyrklandi (E2)
24. apríl – 2. maí Nokkur sæti laus
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
Lúxushótel við ströndina þar sem allt er innifalið
allan daginn. Á meðal skoðunarferða er heimsókn
í eitt best varðveitta leyndarmál ferðamála,
Kappadokia þar sem kristnir bjuggu þegar á 2. öld.
Verð aðeins kr. 119.500 í tvíbýli
Ítalía (E3)
4. – 18. júní Sæti laus
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
Gist verður á góðum 3ja eða 4ja stjarna loftkældum
hótelum með morgunverðarhlaðborði. Heimsótt
verða Rómarborg, Vatíkanið, Pompei, Capri (blái
hellirinn), Flórens, Písa, Feneyjar og Gardavatn. 12
máltíðir innifaldar.
Verð kr. 179.000 í tvíbýli
Stóru eyjarnar þrjár: Korsíka,
Sardinía og Sikiley (E4)
11. – 25. júní Nokkur sæti laus
Fararstjóri: Guðmundur V. Karlsson
Eyjaferðin er spennandi nýung á íslenskum
ferðamarkaði. Í fyrsta sinn gefst tækifæri til að
heimsækja þrjár af stærstu eyjum Miðjarðarhafsins
undir stjórn staðkunnugs og ítölskumælandi
fararstjóra. Morgunverðarhlaðborð og 12
kvöldmáltíðir ætti ekki að svíkja á eyjunum þremur
og samtökin frægu á Sikiley gera allt til þess að
vernda ferðamennsku.
Verð kr. 199.500 í tvíbýli
Portúgal og Spánn (E5)
19. – 26. júní Sæti laus
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
Hótelið er lúxushótel við Spánarströnd, bæði
morgunverður og glæsilegt kvöldverðarhlaðborð
eru innifalin. Uppákomur og skemmtun standa
til boða flest kvöld á hótelinu. Skoðunarferðir
eru innifaldar, m.a. Sevilla og sigling upp eftir
landamæraá Spánar og Portúgals með grilli og
dans.
Verð kr. 84.500 í tvíbýli
Evropurutur
2007
Friðrik G. Friðriksson
Fararstjóri
Guðmundur V. Karlsson
Fararstjóri
Sérstaða Evrópurútanna felst í litlu stressi
og hefur m.a. þess vegna fallið í góðan
jarðveg hjá fólki sem vill njóta, án þess
að koma dauðþreytt heim, sannkallað frí.
Gist er á góðum hótelum, góður matur og
fræðandi tilsögn fararstjóra hefur engan
svikið undanfarin ár. Hægt er að skoða
myndasafn úr ferðum Friðriks á vefsíðunni
www.uu.is > „sérferðir“ > „Evrópurútur“.
Friðrik mun veita upplýsingar hjá ÚÚ að
Lágmúla 4 þriðjud. og fimmtud. Kl. 14 til
17 í febrúar og fram til 13. mars. Nánari
ferðalýsingar eru á heimasíðu Úrvals Útsýnar
og má líka biðja um að fá þær heimsendar
(Ásta Guðrún 585 4000).
KjARAmál Í stað tekjutengdra
greiðslna til mæðra verða
greiddir fæðingarstyrkir til
foreldra, samkvæmt ákvörðun
stjórnar Fjölskyldu- og styrktar-
sjóðs BHM, BSRB og KÍ.
Þetta hefur í för með sér að
fæðingarstyrkir til karla og
kvenna verða jafnháir, en
hliðsjón er höfð af starfshlutfalli.
Þetta nýja greiðslufyrirkomulag
fæðingarstyrkja má einkum
rekja til þeirrar ákvörðunar
stjórnvalda að breyta viðmiðun-
artímabili greiðslna úr Fæðingar-
orlofssjóði.
Breytingarnar taka gildi 1.
júní næstkomandi. - bem
Greiðslur í fæðingarorlofi:
Styrkir karla og
kvenna jafnháir
UTAnRíKiSmál „Noregur og Ísland eru smáþjóðir og
munu alltaf verða smáþjóðir. En þær verða minni
þegar þær eru fyrir utan Evrópusambandið,“ sagði
Erik Moen, framkvæmdastjóri Alþjóðasambands
hægriflokka (IDU), á hádegisverðarfundi Heimdall-
ar og Evrópusamtakanna á dögunum þar sem rætt
var um hvort hægrimenn ættu erindi í ESB.
Moen talaði á fundinum sem fulltrúi norska
Hægri flokksins, sem er fylgjandi aðild Noregs að
ESB. Ræddi hann meðal annars um aukið vægi ESB
í alþjóðakerfinu og sagði sambandið vera í auknum
mæli samnefnara Evrópu í huga fólks.
Að mati Moen er ólíklegt að spurning um aðild
verði formlega tekin fyrir á næstunni í Noregi nema
skoðanakannanir bendi til skýrs vilja almennings,
þar sem dýrkeypt yrði ef aðild yrði hafnað í þriðja
skiptið. Áður gerðist það árin 1972 og 1994.
Mikilvæg breyting hefur þó að sögn Moen orðið í
Noregi á afstöðu til ESB, sem kemur fram í nýrri
þverpólitískri þingskýrslu um mikilvægi ESB fyrir
Noreg. Segir Moen að flestir stjórnmálaskýrendur
hafi verið sammála um mikilvægi þessarar nýju
skilgreiningar.
Moen kvaðst bjartsýnn á að Noregur yrði
meðlimur í ESB fljótlega eftir árið 2010. - sdg
Fulltrúi norska Hægriflokksins telur aðild Noregs að ESB líklega upp úr 2010:
Smáþjóðir smærri utan ESB
erik Moen Segir flest-
ar þjóðir ESB smáar og
það mikilvæga sé að
fá sæti við borðið.
fréttaBlaðið/anton
búinn undir vígslu Þessi strákur á
Srí lanka bjó sig í gær undir að verða
tekinn í tölu búddamunka við hátíð-
lega athöfn. fréttaBlaðið/aP