Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 29

Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 29
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is heimili heilsa hús börn nám ferðir matur bílar tíska græjur tilboð langur laugardagur o.fl. góðan dag! í dag er föstudagurinn 2. mars, 61. dagur ársins 2007. sólarupprás hádegi sólarlag reykjavík 8.33 13.40 18.48 akureyri 8.22 13.25 18.29 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eldar stundum súpu úr afgöngum sem hún finnur í ísskápn- um hjá sér. Súpuna kallar hún naglasúpu. „Ég kalla súpuna naglasúpu því ég elda hana úr því sem til fellur heima hjá mér þegar ég gleymi að koma við í búðinni eða kemst ekki í búðina og þarf að búa eitthvað til í snarhasti,“ segir Ingi- björg. Súpan er mjög einföld og fljótlegt að elda hana að sögn Ingibjargar. „Allt sem ég þarf að eiga heima hjá mér er svolítið pasta og afgangsgræn- meti í ísskápnum. Ég tek grænmetið; gulrætur, lauk, púrru, chili og hvítlauk eða það sem til er og saxa það niður og steiki. Ég hræri einum pakka af minestronesúpu saman við grænmetið og set svona einn og hálfan lítra af vatni út í og svolítið af tómatpúrru. Síðan bæti ég út í kjötkrafti, papr- ikudufti og nýrri steinselju ef ég á hana. Ég set gjarnan líka chili út í svo að súpan rífi svolítið í. Að lokum set ég tvisvar handfylli af pasta og sýð allt saman í tíu mínútur, korter. Þá er komin alveg öndvegis súpa.“ Ingibjörg segir að þegar hún vilji hafa súpuna virkilega góða kaupi hún stundum eitthvað sér- staklega í hana. „Stundum kaupi ég út í súpuna svona ferskt pasta með fyllingu og ef ég á skinku eða beikon set ég það út í. Það er því svolítið breytilegt hvernig súpan er en yfirleitt notast ég bara við það sem til er. Það verður samt náttúru- lega alltaf að vera til eitthvert grænmeti svo ég geti eldað hana.“ Naglasúpan er mjög vinsæll réttur á heimili Ingibjargar að hennar sögn. „Svona súpa er bara alveg heil máltíð ef hún er borðuð með góðu brauði og smjöri og osti. Svo tekur bara örskamman tíma að elda hana þannig að þetta getur verið góð redd- ing fyrir upptekið fólk.“ emilia@frettabladid.is Öndvegis naglasúpa úr afgöngum Ingibjörg segir að nauðsynlegt sé að eiga eitthvert grænmeti í ísskápnum og smá pasta til að hægt sé að elda naglasúpuna. FréttablaðIð/anton blöðrudagar eru í herrafata- versluninni blaze á Selfossi dagana 2.-3.mars. Veittur er 5- 100 prósenta afsláttur. blaze er að austurvegi 9 á Selfossi. langur laugardagur er í miðbænum á morgun. Þá eru verslanir opnar lengur og sumar hverjar með góð tilboð. stjörnukokkurinn Michel- in Jean-Yves Johany, frá veitingastaðnum le Cagnard við Cagnes sur Mer á frönsku rívíerunni verður á Hótel Holti dagana 14.-18. mars. Í boði verður ljúffengur hátíðar- matseðill. allt hitt [ matur tilboð langur laugardagur Frjálst FiðurFé Kristinn Gylfi Jónsson rekur hænsnabú í Mosfells- bæ ásamt bróður sínum og mágkonu, þar sem vistvæn egg eru framleidd. matur Flug og bíll Tilboðsdagar standa yfir hjá Toyota þessa dag- ana. Með hverjum kaupum á bíl fylgir gjafabréf fyrir tvo með Icelandair. tilboð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.