Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 68

Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 68
 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR36 menning@frettabladid.is ! Kl. 13.00Félagar úr bresk-þýska listahópn-um Gob Squad fjalla um verk sín í málstofu á vegum leiklistardeildar LHÍ að Sölvhólsgötu 13. Hópurinn hefur unnið saman að gjörningum, innsetningum, kvikmyndum og lifandi viðburðum undanfarin 13 ár, þar sem skemmtanagildi, list- rænn metnaður og skýr og ákveðin hugmyndafræði haldast í hendur. Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Elísabet Waage hörpuleikari og Hannes Guðrúnarson gítarleik- ari halda tónleika í Salnum í Kópavogi á morgun. Tónleikarnir bera yfirskrift- ina „Náttúran í strengjum“ en efnisskráin lýsir ýmsum fyrir- bærum í náttúrunni en þau Elísa- bet og Hannes munu leika verk eftir Áskel Másson, hörpusólóið „Hrævareldar“ eftir Hasselman og verkið „Blóm“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson en það var upp- haflega skrifað fyrir gítar og sembal en Þorkell gerði á því smávægilegar breytingar svo að hægt væri að leika hlutverk sembalsins á hörpu. Að lokum leika þau Hannes og Elísabet verkið „Spirit of Trees“ eftir armensk-ameríska tónskáldið Alan Hovhaness, en verk hans heyrast sjaldan hér á landi. Hov- haness blandar þar saman strengjum hljóðfæranna á mjög fallegan hátt og hefur verkið örlítið austurlenskt yfirbragð. Elísabet og Hannes léku fyrst saman á tónleikum árið 2004 og héldu Háskólatónleika haustið 2005. Þau eru bæði kennarar við Tónlistarskólann í Kópavogi. Tón- leikarnir eru liður í tónleikaröð kennara Tónlistarskólans í Kópa- vogi. Nemendur Tónlistarskól- ans og forráðamenn þeirra fá frítt inn, auk þess er ókeypis fyrir öll börn 12 ára og yngri. Náttúra og strengir Kammerhópurinn Nordic Affect heldur tónleika í Bókasal á morgun. Tónleik- arnir bera yfirskriftina „Girni og viður“ en þar verður leikin tónlist frá barokk- tímabilinu, allt frá hinum framúrstefnulegu strengja- verkum Marinis og Merulas til eins frægasta flautuverks sögunnar, h-moll svítunnar eftir J.S. Bach. Nordic Affect er fyrsti hérlendi kammerhópurinn skipaður fólki sem hefur sérhæft sig í flutningi tón- listar á upprunaleg hljóð- færi. Hópurinn var stofnaður árið 2005 af Höllu Steinunni Stefánsdóttur barokkfiðlu- leikara og Karli Nyhlin lútuleikara en í honum eru í dag níu meðlimir. Hópurinn hefur komið fram á Norð- urlöndunum, þar á meðal á Sumartónleikum í Skálholti og Renaissance Musik Festi- val í Kaupmannahöfn og fengið góðar móttökur. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í fyrirhugaðri tónleikaröð hópsins í Þjóðmenning- arhúsinu sem styrkt er af Reykjavíkurborg, Glitni, Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur, Tónlistar- sjóði og Menningarsjóði FÍH. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.thjodmenning.is Girni og viður í Þjóðmenningarhúsi Leika á upprunaLeg hLjóðfæri Kammerhópurinn Nordic Affect heldur tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á morgun. FRéTTABlAðið/GvA > ekki missa af … ljósmyndasýningu finnsku listakonunnar Súsönnu Majuri í Norræna húsinu. Hún hefur sérhæft sig í að leita uppi und- arlegt andrúmsloft og liti sem leynir sér ekki í verkum hennar. Sýningunni lýkur um helgina. leikritinu Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu. verkið byggist á ástsælum bókum Guðrúnar Helgadóttur og hentar öllum aldurshópum. sýningum Íslenska dans- flokksins á verkum André Gingras og Robertos Oliván í Borgarleikhúsinu. Sköpunarfyrirtækið M/M er eina ferðina enn að koma að íslensku menningarlífi. Það átti samstarf við Björk með eftirminnilegum hætti bæði við bókina sem henni var helguð og eins myndbandið við Hidden Place – Leyni- staðinn. Það leiddi síðan til samstarfs M/M við Gabríelu Friðriksdóttur í frá- gangi prentgripa fyrir skála henn- ar í Feneyjum: bæði merki og hátalarastæði. Þá unnu þeir titla fyrir Sigurjón Sighvatsson fyrir heimildarmynd hans um Zidane sem hér var sýnd á kvikmyndahá- tíð. Á bak við þessi tvö emm standa þeir Mathias Augaustyniak og Michael Amzalag. Samsteypu sína stofnsettu þeir í París 1992: þeir neita að flokka sig sem hönnuði því viðfangsefni sæki þeir á svo vítt svið. Vefsíða þeirra leiðir það í ljós að þeir drepa víða niður fæti: sviðsmynd í óperur, veggspjöld, myndaramma, lampa, veggflísar og margt fleira. Af vef þeirra, www.mmparis.com, má hlaða niður í pdf-skjali nýjum bæklingi með veggspjöldum þeirra sem eru afar skrúðmikil og fræðast um fimmtán ára feril M/M. Einkenni á flestum þeirra verk- um er blanda af einföldum form- um með miklu munsturskrúði sem vísar beint í barokkið. Þeir hafa afar sérstæða litasýn sem sótt er í kviku samtímans og er stundum á skjön við venjubundna samsetningu lita. Og nú eru þeir komnir í Garðabæinn. Þar sátu þeir um síðustu helgi ásamt sam- starfskonu sinni Gabríelu Frið- riksdóttur og unnu drög að stóru myndverki sem mun verða sett upp á efsta punkti Urriðaholtsins og trúir sínu barokkska sniði mun verkið sem er hugsað sem tré skjóta rótum um nágrennið. Í tengslum við Franska vorið verða skissur þeirra þrímenninga sýnd- ar í Hönnunarsafninu í Garðabæ og verður sú sýning opnuð gest- um og gangandi frá og með sunnu- deginum. Þar gefst kostur á að sjá verkið í frumdrögum en sú mynd sem hér fylgir er samsett hugsýn um hvernig það gæti litið út. Það eru einkaaðilar sem hafa þróað byggingarhugmyndir í Urriðaholti um langt skeið í sam- vinnu við heimamenn og arki- tektastofu Johns Thompson. Sig- urður Gísli Pálmason er fyrir verkefninu sem hefur tekið nokk- urn tíma. Hann segir Urriðaholtið afar viðkvæmt svæði og menn hafi lagt sig í líma við að hanna þar byggð fyrir 3.600 íbúa sem ætlunin sé að rísi hægt – á nær tíu árum. Menn vilji fara varlega vegna nálægðar við vatnið sem öllum sé í mun að vernda. Tryggja þurfi að vatnsbúskapur vatnsins haldist, en það sé víða raun með vötn í byggð að þau deyi. Sigurður segir myndverk þeirra þremenn- inga vera táknlegt: það verði fyrsta mannvirkið sem muni rísa í þessu hverfi. Þau tali um tré og ætlunin sé að rætur þess liggi víða um hverfið. „Skipulagsyfir- völd og verktakar verði að fara að leggja meira til í undirbúningi og hugsun hverfa, það sem lengi skal standa skulu menn vanda sig við,“ segir Sigurður. Hann segir að verkið muni verða þrír til fjórir metrar á hæð og næst sé að þróa hugsýnina áfram, kanna efnivið í tréð og huga að burðargrind í verkið. Sigurður er ánægður með vinnu þremenninganna og og dregur ekki dul á það að honum og samstarfsfólki hans er metnaðar- mál að nýtt hverfi í Urriðaholti takist vel, tréð skal vera til merk- is um það. pbb@frettabladid.is M/M í Urriðaholtinu hræra sína strengi Elísabet Waage og Hannes Guðrúnarsson leika saman í Saln- um. FRéTTABlAðið/GvA Í dag skulu menn leggja við hlust- ir - skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir. Vindöld, vargöld, áður veröld steypist. Hér mun enginn maður öðrum þyrma. Svo segir völvan í þúsund ára gömlu ljóði sem hefur um langan aldur endur- nært norræna skynjun og hafa sindur af því kvæði löngum lýst mönnum leið. Í dag verður þetta frægasta kvæði íslenskt, Völuspá, enn tekið til flutnings í túlkun þeirra Sverris Guðjónssonar og sænska tónskáldsins Stens Sand- ell. Verður hljóðverk þeirra byggt á kvæðinu flutt samtímis á vegum útvarpsleikhúsa sænsku og íslensku ríkisútvarpanna kl. 16.13. Verkið, sem tekur um tuttugu mínútur í flutningi, er sent út í þættinum Hlaupanótunni. Það hefur verið lengi í vinnslu: þeir Sverrir og Sten tóku að vinna hljóðverk byggt á hinu forna kvæði fyrir tveimur árum. Tvær leikkonur bera uppi flutninginn af kvæðinu: Kristbjörg Kjeld hér heima en Stina Ekblad í Svíþjóð. Báðar eru þær kunnar fyrir dram- atískan leik sinn og fá nú það hlut- verk að gæða kvæðinu rödd. Sak- lausari parta í spá völvunnar túlka þær Kristbjörg María Jensdóttir, sonardóttir Kristbjargar, og Olivia Sandell. Völuspá skiptist í þrjá kafla: sköpun, ragnarök og nýtt upphaf, þá heimurinn rís að nýju eftir fall- ið. Kvæðið virðist geta kallast á við alla tíma og ekki skánar ástand- ið í framtíðarhorfum heimsins. Nokkurri undrun sætir að verkið skuli ekki vera frumflutt á kvöld- dagskrá og meira látið með það í kynningum á vegum RÚV. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tónskáld smíðar verk eftir kvæðinu. Það hefur komið við sögu bæði í tón- smíðum Jóns Leifs og Jóns Þórar- inssonar. Þessa útgáfu kalla höf- undarnir Völuspá - Raddir. - pbb Völuspá í útvarpi tónList Sverrir Guðjónsson tónlistar- maður. MyndList við tréð á Urriðaholti standa Halldóra Hreggviðsdóttir , Gabríela Friðriks- dóttir, Michael Amzalag og Sigurður Gísli Pálmason. lJóSMyNd M/M MATHiAS AUGAUSTyNiAK ARI JÓNS: söngur, trommur SVENNI GUÐJÓNS: söngur, hljómborð FINNBOGI KJARTANS: söngur, bassi GÚI RINGSTED: söngur, gítar SIGGI PEREZ: söngur, saxafónn, slagverk Misstu bara af þessu ef þú þorir! Föstudags- og laugardagskvöld

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.