Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 70
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR38
Með bréfunum frá Iwo Jima lok-
ast tvíleikur Clints Eastwood um
þessa mannskæðu árás Banda-
ríkjahers á japönsku eldfjallaeyj-
una í febrúar og mars árið 1945.
Iwo Jima var hernaðarlega mikil-
væg fyrir keisaraveldið sem taldi
nauðsynlegt að verja hana því ef
bandamenn næðu henni á sitt vald
var hægur leikur að ráðast á meg-
inland Japans þaðan. Þótt ekkert
skorti á baráttuþrekið hjá her-
mönnum keisarans voru birgðir
af skornum skammti og herinn
nánast óvígur sökum matar- og
skotfæraskorts.
Orrustan um Iwo Jima er einna
frægust fyrir ljósmynd Joes Ros-
enthal af sex Bandaríkjamönnum
sem reistu fána landsins á Sura-
bachi-fjallinu, hæsta tindi eyj-
unnar. Eastwood hefur þegar gert
hinum bandaríska hluta góð skil í
Flags of our Fathers en fannst
hlutur Japana ekki sýndur í sann-
gjörnu ljósi. Sagan er jú alltaf
skrifuð af sigurvegurum. Japan-
ar urðu fyrir gríðarlegu mann-
falli í þessari orrustu en ríflega
tuttugu þúsund féllu í bardögum
eða af sárum sínum.
Bréfin frá Iwo Jima byrjar á
kunnuglegum nótum. Hún hefst á
fundi japanskra fornleifafræð-
inga á poka með bréfum frá her-
mönnum á eyjunni. Þetta er kunn-
uglegt bragð úr smiðju
kvikmyndagerðarmanna þegar
þeir vilja gefa áhorfandanum þá
tilfinningu að allt sem gerist í
kjölfarið sé sögulega satt. Mið-
punkturinn er bakarinn Saigo
sem óvænt er kallaður í japanska
herinn en er hálfgerður aumingi,
getur varla skotið úr byssu og er
látinn í öll skítaverkin. Hann
þvælist á milli herdeilda, kynnist
þeim japönsku hermönnum sem
lögðu líf sitt að veði fyrir land og
þjóð en stendur að endingu uppi
sem eini eftirlifandinn í vörslu
óvinarins.
Clint Eastwood á vissulega
hrós skilið fyrir kvikmyndir sínar
um Iwo Jima. Hann leyfir sjónar-
hóli beggja aðila að njóta sín. Líkt
og í mörgum góðum stríðsmynd-
um eru tökurnar á köflum stór-
kostlegar, mikið gert úr byssu-
hvellum svo að áhorfandinn
kippist til í stólnum, aflimaðir lík-
amar og blóð fyrirferðarmikið en
minna púðri eytt í söguþráð. Enda
á styrjöldin ein og sér að nægja.
Áhorfandinn fær óvænta innsýn
inn í heim japanska hersins þar
sem heiðurinn skiptir öllu máli og
krafist var sjálfsvíga í stað þess
að flýja eða daga uppi sem stríðs-
fangi.
Bréfin frá Iwo Jima er tækni-
lega vel útfærð kvikmynd þar
sem hljóðvinnsla og klippingar
eru í hæsta gæðaflokki en hún
býður ekki upp á neitt nýtt í flokki
stríðsmynda. Kvikmyndahúsa-
gestir skyldu því ekki láta blekkj-
ast af hrifningu Óskarsakademí-
unnar enda er mikilvægt á
þessum viðsjárverðu tímum fyrir
stórveldið að sýnast pólitískt rétt-
þenkjandi. FreyrGígjaGunnarsson
Frá sjónarhóli óvinarins
kvikmyndir
LettersfromiwoJima
Leikstjóri: Clint Eastwood
Aðalhlutverk: Ken Watanabe og
Kazunari Ninomiya
HHH
Kvikmyndin er keyrð áfram af
kröftugri kvikmyndatöku og
hljóðvinnslu. Galli myndarinnar er
hins vegar sá að hún býður ekki
upp á neitt nýtt í stríðsmyndum og
því skyldi fólk ekki láta blekkjast af
hrifningu Óskarsakademíunnar.
HvAÐ?HvEnÆr?HvAr?
MARS
27 28 1 2 3 4 5
Föstudagur
n n TÓnLEikAr
c 21.30 Hljómsveitin Royal Fortune
heldur tónleika á Dillon. Ásamt
sveitinni spilar hinn síferski og
fjallmyndarlegi Helgi Valur sem
undirbýr upptökur á nýrri hljómplötu
þessa dagana. Að loknum tónleikun-
um munu plötusnúðarnir Silja og
Steinunn halda upp fjöri fram eftir
kvöldi með óaðfinnanlegum tónlist-
arsmekk og almennum ærslagangi.
n n LEikLiST
c 20.00 Leikfélag Kópavogs
frumsýnir leikritið Allt & ekkert í
Hjáleigunni í kvöld. Leikstjóri er
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson.
n n SkEmmTAnir
c Hljómsveitin Roof Tops leikur á
Kringlukránni.
n n FyrirLESTrAr
c 12.00 Guðrún Eva Mínervudóttir
rithöfundur flytur erindi í Norræna
húsinu á vegum Rannsóknaseturs
í fötlunarfræðum. Fyrirlesturinn ber
heitið: Hreinn andi í óhreinum lík-
ama í manngerðum heimi - Ljós
Slím Plast en í honum fjallar hún
um hvernig líkamsvitundin í nútím-
anum er klofin í ósættanlegar and-
stæður: Líkamsdýrkun annars vegar
og ógeð á líkamanum hins vegar.
n n SÝninGAr
c 10.00 Í Listasafni Reykjavíkur
á Kjarvalsstöðum stendur fyrir
sýningin K-þátturinn - Málarinn
Jóhannes S. Kjarval en þar leitast
sýningarstjórinn Einar Garibaldi
Eiríksson við að svipta hulunni af
goðsögninni Kjarval og hleypa áhorf-
andanum beint að verkum hans. Á
sama stað gefur einnig að líta sýn-
inguna Foss þar sem fjórir listamenn
kanna tengsl listar og náttúru.
c 12.00 Árleg ljósmyndasýn-
ing Blaðaljósmyndarafélags
Íslands stendur yfir í Gerðarsafni
í Kópavogi. Á sama stað má sjá
sérstaka sýningu á ljósmyndum sex
ljósmyndara sem ber yfirskriftina
Kárahnjúkar.
n n SÍÐUSTUFOrvÖÐ
c 13.00 Í Hafnarborg standa yfir
sýningar á verkum Hrafnhildar
Ingu Sigurðardóttur og Drafnar
Friðfinnsdóttur. Sýningarnar verða
opnar til 4. mars.
c 13.00 Kristín Guðmundsdóttir
sýnir á Café Karólínu á Akureyri.
Sýningin Barnslegar minningar +
löstur mannsins samanstendur af
textaverkum á glasamottur og veggi.
Sýningunni lýkur 9. mars.
c 17.00 Sýningin Ólátagarðurinn
í Kartöflugeymslunni
Ártúnsbrekku geymir verk lista-
manna sem eiga rætur sínar að rekja
til graffiti-listar. Sýningin er opin dag-
lega milli 17 - 20 og lýkur í dag.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR
MERICAÍS
THE HAPPY THEATER PRESENTS:
MIÐAPANTANIR
Í SÍMA 551 0343
AUKASÝNINGAR:
FÖS. 2.MARS KL. 20.30
LAU. 3.MARS KL. 20.30
LAU. 10.MARS KL. 20.30
TAKE THE TOUR WITH PARIS & TYRA
Unaðslegar
stundir
Rauða Húsið · Sími: 483-3330
Búðarstíg 4 · 820 Eyrarbakkka
www.raudahusid.is
með spennandi fjögurra
rétta kvöldverði á aðeins
3.900.- allar helgar
í janúar, febrúar og mars
&
Sunnudagur 4.mars kl:17 Uppselt
Sunnudagur 11.mars kl:17 örfá sæti laus
Sunnudagur 18.mars kl:17
����������������
�����������������������������������������������
���������������������������������������
�������������������������
�����������������
�������������������������������������
��������������������������������������� ����������������������������������
�����������������������