Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 78
46 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is HAnDbolTi Það er óhætt að segja að gengi þýska liðsins Gummersbach hafi vakið gríðarlega athygli í vetur. Liðið er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistara- deildarinnar og er aðeins einu stigi frá toppi þýsku deildarinnar þar sem Flensburg situr en Gummers- bach lagði toppliðið örugglega með sjö marka mun á miðvikudag. Alfreð Gíslason tók við stjórnar- taumunum hjá þessu fornfræga félagi síðasta sumar og miðað við þær mannabreytingar sem áttu sér stað voru ekki gerðar miklar kröfur til liðsins í ár. Það var almennt talið veikara en í fyrra. Þessi vetur átti að fara í að búa til gott lið en Alfreð hefur enn eina ferðina sýnt styrk sinn sem þjálf- ari í vetur. Þrátt fyrir að hafa lít- inn mannskap, misst marga menn í meiðsli og ekki með eins góða leikmenn og hin toppliðin gefur Gummersbach ekkert eftir og á góða möguleika á titlinum. Það sýndi liðið í leiknum gegn Flens- burg. „Þetta var ágætt og ég var bara nokkuð sáttur fyrir utan byrjun- ina,“ sagði Alfreð af einstakri hóg- værð en lið hans byrjaði leikinn illa en síðan kom 10-1 kafli hjá Gummersbach og liðið leit aldrei til baka. Mannskapurinn hefur oftar en ekki verið þunnur og Alfreð hefur á stundum aðeins haft níu útileikmenn til umráða. Gengi liðsins kom Alfreð á óvart í upphafi en gerir það ekki lengur. „Strákarnir voru búnir að æfa eins og skepnur þannig að þeir eru í mjög fínu formi. Við megum samt ekki við neinum skakkaföll- um. Þetta lið var ekki að spila neina taktík áður en það er annað uppi á teningnum nú og lykillinn að árangrinum er liðsheildin,“ sagði Alfreð en Guðjón Valur og Daniel Narcisse eru einu heims- klassaleikmennirnir í liðinu. Skyttur liðsins myndu tæplega fá mikið að spila með hinum stóru liðunum en þær blómstra hjá Alfreð. Það hafa verið fjárhags- vandræði hjá Gummersbach í gegnum árin og nú síðast um ára- mótin stefndi í óefni. Allt horfir nú til betri vegar og það er ekki síst gengi liðsins að þakka. „Það lítur vel út með fjármálin. Við spöruðum hátt í milljón evra (88 milljónir króna) fyrir tímabil- ið en erum samt að leika betur en á síðustu leiktíð. HM skilaði sínu og það er mikill handboltaáhugi á svæðinu og allir vilja vera með. „Það er frábært og þetta gengi hjálpar svo sannarlega til við að fá styrktaraðila. Ég er geysilega ánægður með gengið og það eru allir mjög glaðir. Það er samt stutt á milli og ef við töpum fyrir Gross- wallstadt þá fara allir í þunglyndi. Menn verða að vera á jörðinni,“ sagði Alfreð en liðið á 13 leiki eftir í deildinni.  henry@frettabladid.is Spörum milljón evra en erum að spila betur Alfreð Gíslason, þjálfari Gummersbach, hefur í vetur unnið þrekvirki með þýska liðið, sem hefur komið allra liða mest á óvart í þýsku Bundeslígunni. kraftaverkamaðurAlfreð Gíslason hefur sýnt enn og aftur í vetur að hann er einn besti þjálfari heims. fréttAblAðið/bonGArts Enski landsliðsmarkvörðurinn ben foster hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu hjá Watford í ensku úrvalsdeild- inni í vetur. Þar er hann í láni frá Manchester United, sem keypti hann frá stoke fyrir einu og hálfu ári. „Það reynir á foster í hverri viku í úrvalsdeildinni og alltaf stendur hann fyrir sínu,“ sagði Adrian boothroyd, stjóri Watford, um markvörðinn. „ég held að hann verði besti markvörður heims í framtíðinni. Hann er frábær mark- vörður,“ sagði boothroyd. sautján ára gamall gekk hann til liðs við stoke en það var Guðjón Þórðarson sem sá um að fá hann til félags- ins þá. „Þetta góða gengi hans kemur mér ekkert á óvart,“ sagði Guðjón aðspurður um foster. „Hann var horaður ungur drengur þegar hann kom til mín en vann með gömlum og reyndum markverði sem hann lærði mikið af. Ekki síður er hann gríðarlega duglegur og vinnu- samur, sem hefur reynst honum vel.“ foster lék með hverfisliði sínu, rC Warwick, þegar útsendarar stoke komu auga á hann. nú, tæpum sex árum síðar, er hann á mála hjá einu besta félagi heims og hefur þegar spilað sinn fyrsta landsleik. „Það voru einhverjar þreifingar uppi hjá stoke á sínum tíma að láta hann fara frá félaginu eftir að hann braut bátsbein í höndinni. ég taldi það þó vera óðs manns æði því hann væri með gríðarlega mikla hæfileika af náttúrunnar hendi. Það hefur svo komið í ljós.“ sir Alex ferguson keypti svo foster til United fyrir eina milljón punda sumarið 2005. „ég held að ferguson hafi verið að kaupa framtíðarmann, sem hefur nú komið á daginn. Þessi strákur verður bara betri með tímanum enda þannig manngerð. Hann er algerlega laus við allan hroka og stæla.“ Guðjón segist þykja vænt um að eiga smá hluta í velgengni fosters. „Hann er þakklátur fyrir okkar tíma hjá stoke og það voru til að mynda fagnaðarfundir hjá okkur þegar við hittumst síðast. ég fylgist auðvitað enn með honum og mun gera áfram.“ GUðjón ÞórðArson knAttspyrnUÞjálfAri: fékk bEn fostEr til stokE City á sínUM tíMA Hæfileikar Fosters komu snemma í ljós KÖRFUbolTi Marel Guðlaugsson, leikmaður Hauka, bætir leikja- met Guðjóns Skúlasonar í úrvalsdeild karla í kvöld. Haukar taka þá á móti ÍR á Ásvöllum í gríðarlega mikilvægum leik fyrir Hafnarfjarðarliðið í harðri fallbaráttu deildarinnar. Marel hefur leikið samtals 409 leiki, fyrir Grindavík (210), KR (44) og Hauka (155), en hans fyrsti leikur var gegn Njarðvík í Ljónagryfj- unni 18. mars 1988. Marel er þriðji leikmaðurinn til að eignast met á undanförnu ári því Guðjón sló met Teits Örlygssonar í Höllinni á Akureyri 26. febrúar 2006. Marel er 23. stigahæsti leikmaður deildarinn- ar frá upphafi, hefur skorað 8. flestu þriggja stiga körfurnar og aðeins fimm leikmenn hafa fengið fleiri villur en hann. -óój Leikjamet úrvalsdeildar: Marel bætir met Guðjóns 410.leikurinnMarel Guðlaugsson er að spila sitt 19. tímabil í úrvalsdeild karla. fréttAblAðið/Anton FóTbolTi Ný atvinnumannadeild í kvennaknattspyrnu verður sett á laggirnar á næsta ári. Sex lið verða í deildinni fyrst um sinn og þegar er ljóst hvar fimm þeirra verða: Los Angeles, Dallas, St. Louis, Chicago og Washington. WUSA-deildin lagði upp laupana árið 2003 eftir þriggja ára starf. Nú hefur staðan verið metin upp á nýtt og kostnaði haldið í hófi. Vonast er til að tvö lið bætist í hópinn árið 2009. -esá Bandarískur kvennabolti: Ný atvinnu- mannadeild >Stórleikuríkvennaboltanum lengjubikar kvenna í fótbolta hefst í kvöld með stórleik kr og breiðabliks en þessi félög hafa unnið þessa keppni átta sinnum á fyrstu ellefu árum hennar. kr vann reykjavíkur- mótið á dögunum og er til alls líklegt eftir að hafa skorað 53 mörk í 6 leikjum en breiðablik, sem vann deildarbikar- inn í fyrra, hefur fengið 10 stig af tólf mögulegum í fyrstu fjórum leikjum sínum í faxaflóamótinu. leikurinn hefst klukkan 19.00 í Egilshöllinni og strax á eftir mætast Valur og keflavík. Þá spila fylkir og stjarnan á fylkisvelli klukkan 19.00 FóTbolTi Skosk-íslenski knatt- spyrnumaðurinn Calum Þór Bett hefur samið við HK um að leika með liðinu í efstu deild karla næsta árið. Samdi hann til eins árs. Calum er bróðir Baldurs Bett sem hefur leikið með FH undan- farin ár en gekk í vetur til liðs við Val. -esá Calum Þór Bett: Semur við HK Iceland Express-deild karla: fjölnir-njArðVík 75-89 Stig Fjölnis: nemanja sovic 23, kareem johnson 22 (12 fráköst), Hörður Axel Vilhjálmsson 7 (9 frák- öst, 4 stoðs.), níels páll Dungal 6, Valur sigurðs- son 3, árni ragnarsson 3 (5 stoðs.). Stig njarðvíkur: jeb ivey 21 (7 stoðs., hitti úr 4 af 6 3j stiga), friðrik stefánsson 15 (9 fráköst), brent- on birmingham 14, igor beljanski 13, jóhann árni ólafsson 10, Egill jónasson 8, kristján sigurðsson 3, Halldór rúnar karlsson 2, Hjörtur Hrafn Einars- son 2, rúnar ingi Erlingsson 1. skAllAGríMUr-Þór Þ. 103-93 kEflAVík-tinDAstóll 107-98 Stig Keflavíkur: Magnús Þór Gunnarsson 17, sebastien Hermenier 16, sverrir Þór sverrisson 16, sigurður G. sigurðssoon 15, Gunnar Einars- son 10, Þröstur jóhannsson 10, tony Harris 9, jón Hafsteinsson 6, Halldór Halldórsson 4, sigurður G. Þorsteinsson 4. Stig Tindastóls: Milojica Zekovic 33, lamar karim 28, ísak Einarsson 16, Helgi Viggósson 10, Vladim- ir Vujcic 7, Gunnlaugur Erlendsson 4. snæfEll-GrinDAVík 83-74 STAðAn: 1. UMfn 20 18 2 1743:1571 36 2.Skallagr.20 16 4 1874:1714 32 3. kr 19 15 4 1689:1484 30 4.Snæfell 20 15 5 1646:1467 30 5. kEflAVík 20 12 8 1801:1697 24 6.grindavík20 10 10 1733:1653 20 7. ír 19 7 12 1597:1633 14 8.Hamar/Se.19 6 13 1439:1570 12 9. tinDAstóll 20 6 14 1751:1913 12 10.ÞórÞ. 20 5 15 1652:1835 10 11. fjölnir 20 4 16 1652:1808 8 12.Haukar 19 4 15 1544:1776 8 Vináttulandsleikur: íslAnD-slóVAkíA 26-34 Mörk Íslands: Hrafnhildur skúladóttir 7, Arna sif pálsdóttir 4, Dagný skúladóttir 3, ragnhildur Guðmundsdóttir 3, jóna Margrét ragnarsdóttir 2, Auður jónsdóttir 2, Hanna Guðrún stefánsdóttir 2, rakel Dögg bragadóttir 1, sólveig kjærnested 1, Drífa skúladóttir 1. ÚrSlit reykjavíkurmeiStararHaukur ingi Guðnason, fyrirliði fylkis, og félagar urðu reykjavíkurmeistarar í gær er þeir lögðu Víking í úrslitaleik, 3-1. fréttAblAðið/Anton KÖRFUbolTi Njarðvíkingar unnu sinn 13. leik í röð í Iceland Express deild karla í gær þegar þeir lögðu Fjölni, 75-89 í Grafarvogi. Njarð- vík tryggði sér þar með deildar- meistaratitilinn þrátt fyrir að tvær umferðir séu eftir af deild- inni og þetta verður fyrsta úrslita- keppnin í sex ár þar sem Njarðvík vann leikinn í gær örugglega, var 20 stigum yfir í fyrri hálfleik og leyfði sér að slaka aðeins á í lokin og þá kom Fjölnir muninum niður í 7 stig en lengra komust Fjölnis- menn ekki. „Við erum að koma úr svaka törn þar sem að við mættum Snæ- felli, Keflavík og KR og vorum kannski aðeins værukærari í dag. Það er þægilegt að vera búnir að klára þetta en mikilvægast er að við erum búnir að tryggja okkur heimavallarréttinn,” sagði Friðrik Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkur sem átti góðan leik. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, er búinn að búa til sterka liðsheild sem er til alls lík- leg í úrslitakeppninni. „Það var þvílíkur liðsbolti í gangi hjá okkur í sókninni,” sagði Einar sem var ánægður með ein- beitingu sinna manna í upphafi leiks. „Við erum með enga 30 stiga bombu í okkar liði, það eru sjö leikmenn hjá okkur sem geta skil- að stigum í sókninni og við erum með fullt af góðum varnarmönn- um. Það á að vera okkur styrkur,” segir Einar og hann segir að nægu að keppa í lokaleikjunum. Að vanda voru margir leik- menn að gera hlutina hjá Njarð- vík, Jeb Ivey var sínum gömlu félögum erfiður með 21 stig og 7 stoðsendingar og allir byrjunar- liðsmennirnir skoruðu yfir 10 stig. Fjölnisliðið átti ekki möguleika í hið geysisterka lið Íslandsmeist- aranna og verður að treysta á að ná í lífsnauðsynleg stig í síðustu tveimur leikjunum á móti Hamar/ Selfoss og Tindastól.  -óój Njarðvíkingur unnu sinn þrettánda leik í röð í Iceland Express-deild karla í gærkvöld: Njarðvík deildarmeistari í fyrsta sinn í sex ár jebiveyreyndist sínum gömlu félögum óþægur ljár í þúfu í gær. fréttAblAðið/Anton
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.