Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 82
50 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
FóTbolTi Enska úrvalsdeildarliðið
West Ham, sem er í eigu þeirra
Björgólfs Guðmundssonar og Egg-
erts Magnússonar, á gríðarlega
erfitt verkefni fyrir höndum ætli
það sér að halda sæti sínu í deild-
inni. Liðið er nú með tuttugu stig í
nítjánda sæti og sýnir sagan að
það sé illkleifur hamar að bjarga
sér frá falli í þeirri stöðu. Á síð-
ustu tveimur árum hafa tvö lið,
West Bromwich Albion árið 2005
og Portsmouth í fyrra, þó náð að
bjarga sér frá falli þrátt fyrir að
vera í verri stöðu hinn 1. mars
þessi ár. Það eru hins vegar einu
tilvikin á síðustu tíu árum ensku
úrvalsdeildarinnar að lið með 22
stig eða færri á þessum tíma-
punkti tímabilsins hafa bjargað
sér frá falli um vorið.
Bæði West Brom og Portsmouth
voru einungis með átján stig á
sama tíma á umræddum tímabil-
um og afrek þeirra Bryan Robson
og Harry Redknapp enn merki-
legri fyrir vikið. Báðir tóku þeir
við liðunum á miðjum tímabilun-
um, Robson hinn 9. nóvember 2004
og Redknapp 7. desember 2005.
Hinn 13. desember í haust tók
svo Alan Curbishley við West
Ham. Gengið síðan þá hefur
reyndar verið skelfilegt. Fyrst
kom ótrúlegur sigur gegn
Manchester United á heimavelli
en síðan þá hefur liðið ekki unnið
sigur í tíu deildarleikjum.
Það sem gerir það að verkum
að vonir West Ham eru svo veikar
er að liðið á afar erfiða leiki fyrir
höndum. Einungis níu leikir eru
eftir af tímabilinu og í þeim mætir
West Ham meðal annarra liðunum
sem sitja nú í fyrsta, öðru, fjórða,
fimmta og sjöunda sæti ensku
úrvalsdeildarinnar.
Tveir botnslagir eru eftir, gegn
Wigan og Sheffield United, og
verður West Ham að sigra í þeim
leikjum. - esá
Gríðarlega þungur róður fram undan hjá West Ham í ensku úrvalsdeildinni en ekki er öll nótt úti enn:
Kraftaverk Robson og Redknapp gefa von
hjálpaðu mér vinur Félagarnir Alan
Curbishley og Harry Redknapp.
noRdiC pHotos/getty
FóTbolTi Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, hefur enn á ný gagnrýnt
dómara vegna vinnubragða sem
hann er ósáttur við. Í þetta sinn
sakar hann aðstoðardómara í
úrslitaleik Chelsea og Arsenal í
deildabikarkeppninni um lygar.
Emmanuel Adebayor fékk að líta
rauða spjaldið eftir að aðstoðar-
dómarinn sagði dómara leiksins
að hann hefði kýlt til annars
leikmanns.
„Mér finnst að Adebayor hafi
ekki kýlt neinn. Þegar línuvörður-
inn segir það er hann að ljúga,“
sagði Wenger. - esá
Arsene Wenger:
Sakar línuvörð
um lygar
wenger Farinn að rífast við dómara
enn á ný. noRdiC pHotos/getty
HAnDbolTi Talant Dujshebaev,
þjálfari og leikmaður Evrópu-
meistara Ciudad Real, getur ekki
leikið síðari leikinn gegn Portland
San Antonio í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar. Dujsheba-
ev fékk rautt spjald í fyrri
leiknum er hann braut á Renato
Vugrinec og er því í banni.
Dujshebaev var hættur að
spila handbolta en tók fram skóna
á ný á þessari leiktíð þegar
aðalleikstjórnandi Ciudad, Uros
Zorman, meiddist alvarlega.
Góðu tíðindin fyrir Ciudad eru
þau að Zorman er orðinn heill
heilsu á ný og verður í leikmanna-
hópnum um næstu helgi. - hbg
Breytingar hjá Ciudad:
Dujshebaev út
en Zorman inn
talant dujshebaev sést hér á æfingu
með Ciudad. FRéttAblAðið/vilHelm
FóTbolTi Dean Kiley, markvörður
West Brom, segir að Alan
Curbishley geti vel bjargað West
Ham frá falli fái hann nægan
tíma til þess. „Ég efast um að
Curbishley hafi nokkru sinni
starfað hjá félagi þar sem
samhljómur er jafn lítill. Líkams-
tjáning hans segir mér að hann sé
vansæll. En hann þarf að gefa
rétta tóninn. Hann hefur hæfi-
leikana sem til þarf og mun ekki
yfirgefa liðið en ég óttast að hann
fái ekki þann tíma sem hann
þarf.“
Kiely lék undir stjórn Curbis-
hleys hjá Charlton í sjö ár. - esá
Dean Kiely um Curbishley:
Getur bjargað
West Ham
curbishley vansæll eftir tap gegn
Charlton um síðustu helgi.
noRdiC pHotos/getty
Hvaða blað ert þú að lesa? Kynntu þér frábær áskriftarkjör í síma ��� ����, á www.birtingur.is eða sendu okkur póst á askrift@birtingur.is
Tímaritið Hús og híbýli er að venju stórglæsilegt og að þessu sinni fjöllum við um allt sem tengist
eldhúsum. Við kíktum á fjölda eldhúsa og afraksturinn má sjá á myndum frá 30 himneskum eldhúsum.
Svölustu græjurnar, fögur áhöld og sama eldhúsið hannað á fjóra vegu. Sushi fyrir fagurkera og bakara-
meistari með góðan smekk. Frábærar hugmyndir og hentug ráð ásamt heitustu húsgögnunum. Þetta og
margt fleira í eldhúsblaði Húsa og híbýla.
HÚS OG HÍBÝLI
ELDHÚSBLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT!
Hús og h
íbýli
– tryggð
u þér
eintak!