Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 86
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR54
„Við munum svara bréfinu á allra
næstu dögum,“ segir Jóhannes Kr.
Kristjánsson, ritstjóri fréttaskýr-
ingaþáttarins Kompáss.
Herra Karl Sigurbjörnsson
biskup hefur sent Jóhannesi mikið
og afar harðort bréf þar sem hann
kvartar mjög undan efnistökum
Kristins Hrafnssonar fréttamanns
þegar hann fjallaði um þjóðkirkj-
una í Kompási 18. febrúar. Annað
eintak bréfsins var sent Ara
Edwald, forstjóra 365 miðla.
Í fréttaskýringu, sem var undir
yfirskriftinni „Er að fjara undan
þjóðkirkjunni?“, er meðal annars
rætt við Hjört Magna Jóhannsson
Fríkirkjuprest, sem fer býsna
nálægt því að telja þjóðkirkjunnar
menn beita ógnum og hótunum um
að allt fari til helvítis, í bókstaf-
legri merkingu, ef þjóðkirkjan
missir forréttindastöðu sína í sam-
félaginu og milljarða fjárframlög
frá ríki umfram önnur trúfélög.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins gagnrýnir biskup harð-
lega vinnbrögð Kristins í bréfinu,
telur hann draga taum þeirra
gagrýnisradda sem beindust að
þjóðkirkjunni í þættinum. Í bréf-
inu er Kristinn sakaður um
sleggjudóma og slagorðaglamur.
Kristinn segir að bréfinu verði
svarað ítarlega og efnislega í sam-
ræmi við umkvartanirnar.
„Ég hef á langri starfsævi setið
undir gagnrýni frá háum sem
lágum án þess að hafa misst yfir
því svefn. En það vekur með mér
hryggð að biskup skuli ekki
hafa dýpri skilning á eðli
fjölmiðla og hlutverki
þeirra í lýðræðislegri
umræðu. Eins og bréf hans
ber með sér,“ segir Krist-
inn. Hann ber sig furðu vel í
ljósi þess að biskupinn er
höfuð þjóðkirkjunnar.
„Ég hef alltaf staðið í
þeirri meiningu að biskup-
inn sé talsmaður boðskapar
þess almættis sem gerði
sig út fyrir ótæmandi
umburðarlyndi og skilning. Hvorki
nú né fyrr fer neitt sérstaklega um
mig.”
„Nei, okkur var ekki sérstak-
lega skemmt,“ segir Adda Steina
Björnsdóttir, talsmaður biskups,
aðspurð hvort þeim hjá Biskups-
stofu hafi gram- ist þáttur-
inn svo mjög. Hún segir
Karl gera í bréfinu
nokkrar alvarlegar
athugasemdir við
framsetningu frétta-
manns hvað varðar
orðanotkun, framsetn-
ingu og ójafnvægi í
vali á viðmælend-
um.
„Sem dæmi
talar hann um
Vinaleiðina
[dagskrá í
Garðabæ] og
segir hana
andsvar við
ríkiskirkju á fallandi fæti. Sem á
sér engan stuðning í þættinum
sjálfum.“
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Hvaðvarégaðspá?
LáréTT
2hirðing6 kyrrð 8 tilvera 9mæli-
eining 11 samanburðartenging 12
gælunafn 14 duglegur 16 tveir eins
17 móðuþykkni 18 fæða 20 í röð 21
óhljóð.
LÓðréTT
1ílát3 tveir eins 4 kvarta 5 málmur 7
ógæfu 10 sigti 13 þakhæð 15 nýtt ár
16 háttur 19 rykkorn.
LaUsN
„Helst vildi ég vera félagsráð-
gjafi hjá einhverjum sjeik í
olíulöndunum.“
Eiríkur Hauksson söngvari í
Pressunni 1989.
„Mig hefur greinilega dreymt um letilíf
þá líka. Draumurinn í dag er bara að
þetta fari að nálgast óðfluga. Mér líst
vel á þetta, ég hef greinilega verið mjög
framsýnn,“ segir Eiríkur í dag.
LáréTT:2rækt, 6 ró, 8 ævi, 9 ohm,
11 en, 12 geiri, 14 iðinn, 16 ll, 17 ský,
18 ala, 20 aá, 21 garg.
LÓðréTT:1trog, 3 ææ, 4kveinka, 5
tin, 7 óheilla, 10 mið, 13 ris, 15nýár,
16 lag, 19 ar.
krisTiNNHrafNssoNUndrast
skilningsleysi biskups á fjölmiðlum og
lýðræðislegri umræðu.
addasTeiNaKirkjunnar
mönnum er ekki skemmt
vegna umfjöllunar Kristins.
Kristinn Hrafnsson: sefur rótt þó í ónáð sé hjá biskupi
Karl sakar Kompás
um slagorðaglamur
HerrakarLsigUrbjörNssoNGerir alvarlegar athugasemdir og segir Kristin með
sleggjudóma um málefni kirkjunnar. fréttablaðið/vilHElM
Fyrirhuguð fegurðarsamkeppni á
Ísafirði, þar sem aukakíló, hrukk-
ur og húðslit munu teljast kepp-
endum til tekna, hefur vakið
athygli utan landsteinanna og
fréttir af henni hafa birst á
erlendum vefmiðlum. Þegar
Fréttablaðið talaði í gær við Matt-
hildi Helgadóttur, einn skipu-
leggjenda keppninnar, beið
útvarpsviðtal við hana útsending-
ar hjá BBC. „Ég hélt að þetta væri
símahrekkur þegar þau hringdu
frá BBC. En hún er búin að tala
við mig nokkrum sinnum, konan,
svo ég er orðin nokkuð viss um að
svo sé ekki,“ sagði Matthildur,
sem hefur varla haft vinnufrið
fyrir fyrirspurnum undanfarna
daga.
Hún segir athyglina hafa
komið skemmtilega á óvart, en
sýna greinilega að mikill áhugi sé
fyrir málefninu. „Grunnhug-
myndin hjá okkur er að sýna
fáránleikann í því að keppa í feg-
urð. Við erum ekki að segja neitt
sem hefur ekki verið sagt áður, en
kannski á nýjan hátt. Og kannski
er jarðvegurinn frjór núna. Tísku-
heimurinn er meira að segja far-
inn að spá í að það gæti verið til
eitthvað sem heitir of mjótt,“ sagði
Matthildur.
Athyglin hefur fleiri góðar
afleiðingar. „Með meiri umfjöllun
vilja fleiri taka þátt, og það er auð-
veldara að fá styrktaraðila,“ sagði
Matthildur. Það þykir aðstandend-
um keppninnar sérlega ánægju-
legt, þar sem allur ágóði mun
renna til Sólstafa, nýstofnaðra
systursamtaka Stígamóta á Vest-
fjörðum.
„Þetta er
mjög þarft
málefni og
við viljum
sýna virð-
ingu okkar í
verki,“ sagði
Matthildur.
-sun
BBC fjallar um ísfirska fegurðarkeppni
maTTHiLdUrHeLgadÓTTirfyrirhuguð fegurðar-
samkeppni hefur vakið athygli utan landsteinanna
og viðtal við Matthildi var sent út á bbC í gær.
veisTUsvarið
svör við spurningum á síðu 8
1 Hvítasunnudagur.
2 romano Prodi.
3 38 milljónir króna.
Glaumur og gleði ræður ríkjum á
Hótel Sögu í kvöld þegar þing-
heimur kemur þar saman og
skálar í hinni árlegu þingveislu.
Samkoman hvílir á gömlum
grunni þar sem þarf að virða
margar hefðir. „Hún á sér langa
hefð þessi veisla, var upphaflega
skilnaðarveisla þegar þingmenn
kvöddust að þingi loknu,“ segir
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis. „Forseti Íslands
og frú eru ávallt heiðursgestir.
Það er gömul venja að taki menn
til máls mæli þeir aðeins í bundnu
máli, forseti Íslands og forseti
Alþingis eru þeir einu sem tala í
óbundnu máli.“
Undir borðhaldi er boðið upp
á skemmtiatriði í menningarleg-
um dúr en að því
loknu fer þing-
heimur oftar en
ekki út á dansgólf
og tekur sporið.
„Þetta er í raun-
inni eins og hver
önnur árshátíð,“
segir Sigurður Kári
Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins. „Ég hef
reyndar bara farið
einu sinni áður og
það var mjög
skemmtilegt. Ég finn
fyrir flensuvotti
núna en ég
vona að ég
komist í kvöld.“ Sigurður Kári
segir að þegar í veisluna sé
komið leggi þingmenn yfirleitt
öll þrætumál á hilluna og
skemmti sér prýðilega. „Það er
aðallega á þingfundum sem menn
eru að karpa en ég held að pólit-
ískur ágreiningur sé ekkert að
þvælast fyrir þarna.“ Ólíkt því
sem gjarnan gerist á árshátíðum
venjulegra vinnustaða segist Sig-
urður Kári ekki hafa orðið við að
þingmenn fari að trúa hver
öðrum fyrir dýrmætum leyndar-
málum þegar líður á kvöldið. „Ég
held að það eigi sér engar stjórn-
armyndunarviðræður sér stað í
þessum veislum, en á kosninga-
vetri getur svo sem allt gerst.“
-bs
„Árshátíð“ alþingismanna á Hótel Sögu
sigUrð-
Urkári Þingmenn
leggja
pólitískan
ágrein-
ing til
hliðar og
skemmta
sér
prýðilega
saman.
HeLgiberN-
ÓdUssoN
skrifstofu-
stjórinn segir
þingveisluna
hvíla á göml-
um grunni og
menn virða
hefðirnar.
Þungavigtarmenn í listaheiminum
hafa gengið út frá því sem vísu að
verkið umtalaða eftir Kjarval, sem
slegið var í vikunni á metfé hjá
danska uppboðshaldaranum bruun
rasmussen (25 milljónir með
kostnaði), hafi komið beint úr dán-
arbúi dönsku hjónanna sem þáðu
myndina að gjöf uppúr þarsíðustu
aldamótum. nú er hins vegar
pískrað um að svo sé ekki heldur
hafi íslenskur lista- verka-
höndlari náð að
kaupa verkið
fyrir talsvert
miklu minna
fé og skotið
henni svo til
uppboðshaldar-
ans. og ávaxtað
vel sitt pund,
og stundið í
eigin vasa um
14 milljón-
um.
Þá eru menn forvitnir um að vita
hver raunverulega keypti Kjarvals-
verkið. Tryggvi Páll í fold keypti
en hann hefur sagt að það hafi
verið í umboði fyrir annan aðila. sá
sem helstur er nefndur til sögunnar
er Kjartan Gunnarsson listunn-
andi og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri sjálfstæðisflokks-
ins og það einkum haft
fyrir þeirri kenningu
að Kjartan og tryggvi
Páll eru náskyldir. En
samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum
frétta-
blaðsins
mun
Kjartan hins
vegar ekki vera
maðurinn á bak
við kaupin.
Miklar hræringar eru nú innan
fréttastofu stöðvar 2. Kristján Már
Unnarsson var gerður að vara-
fréttastjóra stöðvar 2 þegar Þórir
Guðmundsson hvarf til að stýra
vísi.is en þar eru miklar breytingar á
döfinni. Meðan
á þessum
hrókering-
um stendur
heyrist að
hætt séu á
fréttastofunni
þau Svavar
Halldórs-
son og
Rósa Björk
Brynjólfs-
dóttir.
-jbg
fréTTiraffÓLki
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is