Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 515 7506, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000
Nú er dollarinn alveg fáránlega lágur. 66 krónur, þegar þetta
er skrifað. Í fyrravor fór hann yfir
80-kall og allt fór til fjandans.
Verslanir hækkuðu verð, bíómið-
inn hækkaði og bensínið náttúr-
lega. Allt útaf háu gengi dollarans.
Það var míníkreppa í fyrravor.
Í DAG er andkreppa. Engin
kreppa. Allir í góðu stuði en eng-
inn lækkar neitt. Jú, reyndar
lækkaði sumt í gær, en það var
útaf virðisaukaskattslækkun, ekki
lágum dollara. Af hverju var ekki
löngu búið að lækka allt um leið og
dollarinn og evran lækkaði?
VIÐ Íslendingar erum samtaka
þegar kemur að yfirlýsingum um
að klám sé vont, glæpamenn eigi
að fara í fangelsi og að barnaníð-
ingar séu vondir. Við erum hópsál-
ir í siðgæðismálum. En handónýt í
neytendabaráttu.
SAMT eru staðreyndirnar marg-
tuggnar af formanni Neytenda-
samtakanna þegar hann talar í
fréttunum. En þá er enginn að
hlusta. Vegna þess að formaður
Neytendasamtakanna talar svo
hægt. Það er enginn æsingur í
honum. Maður sofnar áður en
hann hefur lokið máli sínu.
ÞAÐ er ekki við hann að sakast,
blessaðan. Hann er bara birtingar-
mynd ástandsins. Hann er eins og
við. Þótt við höldum að það sé
verið að svindla á okkur gerum
við ekkert í því. Við nennum því
ekki. Við erum seinþreytt til vand-
ræða og förum okkur hægt þegar
kemur að því að mótmæla.
OkkuR finnst líka eitthvað
kjánalegt við mótmæli. Sjáum nú
bara fríkin á Kárahnjúkum. Gríð-
arlega asnalegt lið í lopapeysum
étandi grænmetissúpu. Við viljum
ekki vera eins og þau. Þá er nú
skárra að sleppa þessu og borga
nokkrum krónum meira fyrir vör-
una.
AÐ vera Íslendingur gengur voða
mikið út á það að fá lítið fyrir
mikið. Við vinnum meira en aðrar
þjóðir og fáum hlutfallslega minna
fyrir. Og við borgum mikið fyrir
lítið. Því þurfum við að vinna þess
meira.
ÞETTA er okkar eigið sjálfskap-
arvíti. Minna framboð, meiri eftir-
spurn, borga meira. Eftirspurnin
er okkar vegna þess að við erum
svo samtaka í neyslunni. Við erum
líka samtaka í að taka lán og með
því hækka vextirnir. Þetta er allt
okkur að kenna. Er einhver séns á
að við verðum einhvern tímann
samtaka um að kaupa ekkert nema
brýnustu nauðsynjar? Ég held
ekki.
Samtaka nú
flugfelag.is
/ s. 570 3030
Grænland
Sumartilboð á netinu
Bókunartímabil 1. mars - 30. apríl.
Þrír áfangastaðir - sama flugfargjald
32,900 krónur*
Nuuk
/ Nuuk Seamens Home
http://www.soemandshjem.gl/nuuk/gl/
/ Hotel Hans Egede
www.hhe.gl
/ Nuuk Tourism
http://www.nuuk-tourism.gl/
Narsarsuaq
/ Hotel Narsarsuaq
http://www.airporthotels.gl/
/ Blue Ice Hostal and Excursions
www.blueice.gl
/ Destination South Greenland
www.southgreenland.gl
Kulusuk
/ Hotel Kulusuk
http://www.arcticwonder.com/
Hótelgisting Nuuk
Reykjavík
Narsarssuaq
usuk
*Innifalið: Flugfar og flugvallarskattar.
Grænland er spennandi ævintýraheimur fyrir
þá sem vilja kynnast einstæðri menningu
nágranna okkar í vestri og njóta stórkostlegrar
náttúrufegurðar á sólríkum sumardögum.
Ferðatímabil , jún, júl, ágú, sep.
Til Nuuk er flogið frá Keflavík.
MARKAÐURINN
Hafliði Helgason
í hádegisfréttum
Stöðvar 2 kl. 12:
alla virka daga