Fréttablaðið - 07.03.2007, Qupperneq 13
Rúmlega tvítugur
maður var handtekinn í Reykja-
vík í fyrrakvöld með talsvert
magn af fíkniefnum í fórum
sínum.
Á heimili hans fundust einnig
talsverðir fjármunir, hundruð
þúsunda króna í reiðufé sem
grunur leikur á að séu fengnar
með sölu fíkniefna.
Lögreglan lagði hald á um 250
grömm af hassi, nokkuð af
kókaíni, auk peninganna.
Maðurinn hefur komið við
sögu áður vegna fíkniefnabrota.
Málið telst upplýst og verður
sent í ákærumeðferð innan tíðar.
Hundruð þús-
unda í reiðufé
Innflutningur á kökum,
konditorstykkjum og brauði hefur
nánast tvöfaldast að magni til árið
2006 miðað við árið 2001. Innflutn-
ingurinn nam samtals rúmum 883
tonnum árið 2001 en nam tæpum
1.700 tonnum fyrstu ellefu mánuð-
ina í fyrra.
Aukningin var mest frá 2001 til
2004 en eftir það tók að hægja á
henni. Mest var aukningin milli ára
2003 til 2004 en þá jókst innflutn-
ingurinn um tæp 29 prósent og
næstmest var aukningin milli ára
2001 til 2002, eða tæp 19 prósent.
Innflutningur á brauði hefur
aukist mun meira en á kökum og
konditorstykkjum. Þannig hefur
innflutningurinn á kökum aðeins
aukist úr 370 tonnum í 514 tonn
meðan innflutningur á brauði hefur
aukist úr 513 tonnum í tæplega
1.200 tonn á fimm árum.
Geir Bjarnþórsson, fulltrúi bak-
ara í Matvís, segist hafa tekið eftir
þessari gríðarlegu aukningu og
kveðst hafa á tilfinningunni að
veltan á innfluttum brauðum sé
svipuð og í verksmiðjubakaríi hér
á landi.
„Við ráðum ekki við að keppa
við verðið, þess vegna er þessi inn-
flutningur og það er heldur ekki
hægt að stoppa hann,“ segir hann
og telur hráefniskostnað mun meiri
hér á landi en í Danmörku og launa-
kostnað sömuleiðis. Launakostnað-
inn hér telur hann vera um og yfir
40 prósent af veltu.
Yfir 500 tonn flutt inn af kexi
Iðnnemasamband
Íslands lýsir yfir ánægju á
hugmyndum um sameiningu
Iðnskólans í Reykjavík og
Fjöltækniskólans. Iðnnemasam-
bandið styður þær hugmyndir að
skólinn verði einkarekinn með
komu hagsmunaaðila að rekstrin-
um.
Iðnnemasamband Íslands telur
mjög mikilvægt að góð tengsl séu
á milli atvinnulífsins og skóla og
telur að því markmiði verði náð
með þessari breytingu, sem felur
í sér uppsetningu fagráða fyrir
hvert svið innan hins sameinaða
skóla.
Iðnnemasambandið fagnar
hugmyndum um stofnun faghá-
skóla hér á landi í þeirri mynd
sem fyrirfinnst á hinum Norður-
löndunum og það auki samkeppn-
ishæfni menntunar á Íslandi.
Fagnar samein-
ingu skóla
Þú tekur mynd með farsíma eða myndavél.
Sendir hana í tölvuna og þaðan
beint í Safnið.
Þú hefur aðgang að Safninu
gegnum Sjónvarp Símans.
Þú getur sent myndir úr Safninu til
Hans Petersen sem framkallar þær.
Kynntu
þér Safnið á siminn.is
Svona er
Safnið einfalt
„Hvernig kalla ég fram minningar sem hafa fölnað?“
Safnið er öruggasti geymslustaðurinn fyrir stafrænu gögnin þín
Við gerum minningar
þínar ódauðlegar í Safninu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
4
9
1
Geymdu stafrænu ljósmyndirnar þínar og önnur gögn
í Safninu, traustum stað þar sem reglulega eru tekin
afrit af þeim. Í Safninu getur þú valið hvort þú vilt skoða
myndirnar þínar í tölvunni eða á sjónvarpsskjánum.
Að auki gerir Safnið þér kleift að veita vinum og
vandamönnum aðgang að völdum myndum eða
senda þær beint í framköllun hjá Hans Petersen.
Gerðu þínar minningar ódauðlegar, fáðu þér Safnið.
Nánari upplýsingar
á næsta sölustað
Símans á siminn.is
eða í síma 800 7000
GJAFABRÉF
Verð frá kr.: 23.500
Aðrir söluaðilar:
Safapressa
FYRIR
HEILSUNA