Tíminn - 26.08.1979, Síða 9
MlM'Ull!
Sunnudagur 26. ágúst 1979.
9
Jón Sigurðsson:
Hnekkj um áró ðursherf er ðinni
SENNILEGA kemur þaö besta i
manninum þá helst fram þegar
hann lifir við bjargálnir og
verður talsvert fyrir tryggri af-
komu að hafa. Þeir sem til
þekkja eru á einu máli um að
örbirgð sé niðurlægjandi á flest-
an hátt, og allir þekkja dæmin
um þá spillingu sem leitt getur
af auðæfum. Eitt af þvi sem oft
fylgir of miklum efnum er iðju-
leysi, en þá vill það bera við að
fólk fari að leita sér afþreyingar
i afkáraskap. Og stundum er sá
afkáraskapur skaðlegur, ýmist
þeim sem I hlut á eða öðrum
sem ekkert illt hafa til unnið.
Eitt dæmið um þetta eru þær
öfgahreyfingar iðjulauss fólks
sem um þessar mundir hamast
hvað mest að þvi að brjóta niður
sjálfsbjargarviðleitni annarra
við veiðiskap. Þetta fólk lifir við
dágóða afkomu i menningar-
stórborgum og hefur ekki
minnstu hugmynd um það lif
sem lifað er i sjávarplássum
eða sveitum i fjarlægum lönd-
um. Þetta auðuga og yfirleitt
menntaða fólk litur á það sem
sjálfsagðan hlut að veiðimenn,
sjómenn eða bændur séu skiln-
ingslitlir og menningarsnauðir
dýradráparar sem aldrei skeyti
hið minnsta um skynsamlega og
hóflega nýtingu dýrastofnanna
og aldrei láti sig neinu varða
mannúðlegar aðfarir við veiðar.
Af þessum ástæðum gengur
þetta hugsjónalið hömlulaust
fram og án nokkurs tillits til
staðreynda. Ef þvi er bent á að
hvalveiðar Islendinga hafi um
áratugaskeið farið fram meö
samvinnu við visindamenn og
undir opinberri stjórnun og eft-
irliti, þá látast þeir ekki heyra.
Ef þeim er bent á, að selurinn
tekur til sin álika mikið af
þorski eins og maðurinn með
tæknibúnum flota sinum, þá
vilja þeir hvorki heyra slikt né
sjá.
Og ef þeim er bent á þá stað-
reynd að fjöldi fólks hefur alla
afkomu sina af veiðum þá yppta
þeir öxlum og láta sig engu
skipta. I hugarheimi þeirra er
vist ekkert sjálfsagðara en
þetta fólk fái sér atvinnu við git-
arleik, gardinusöng, leiklist,
bókmenntir, — eða þá tisku sem
gengur undir nafninu þjóðfé-
lagsfræði, sálarfræði eða upp-
eldisfræði.
Þessi afstaða til vinnandi al-
þýðu er út af fyrir sig ekkert
einkennileg, þvi að vitleysan lif-
ir og nærist á vitleysunni.
Selurinn
Gott dæmi um þetta fólk er
franska drósin Brigitte Bardot.
Þegar hún þroskaðist og varð
loks á miðjum aldri hin vænsta
kona álitum fann hún að nýja-
brumið var horfið af skrokknum
eftir viðfræga brúkun. Þá lenti
veiðir af þorski, né heldur hve
margir á byggðu bóli kynnu að
hafa viðurværi sitt af selveið-
um. Slikar hugleiðingar komu
auðvitað ekki til mála, vegna
nóg fjár, tima, aðstöðu og ekki
vantar þá gorgeirinn. Stoltið
sést best af þvi að þeir hamast
að Islendingum en láta Sovét-
menn og Japani i friöi.
Hvalur hf. hefur um áratugaskeið verið til hreinnar fyrirmyndar um nána samvinnu við visindamenn
og stjórnvöld til að tryggja hófiega og skynsamlega nýtingu hvalastofnanna.
húnenn I slagtogi með strákum,
sem ekki er umtalsvert eða að-
finnsluvert út af fyrir sig, en i
þetta skiptið voru það hugsjóna-
þyrlar og angurgapar sem hún
lagði lag sitt við, þvi að sækjast
sér um likir.
Dellan sem nú var upp tekin
til þess að hljóta af nokkra frið-
þægingu og afþreyingu I senn er
sú að ekki megi veiða sel. Og
aldeilis bar vel I veiði
hjá hugsjónamönnunum þegar
þeir höfðu gómað svo áhrifa-
mikla tiskudrós. Með sniðugri
auglýsingamennsku var frú
Bardot nú brúkuð til þess að
eyðileggja sem allra flesta
markaði fyrir selskinn.
Ekki datt þessu liöi i hug að
kynna sér hvfllk ósköp selurinn
þess að hópurinn ákvaö aö selur
mætti veiða þorsk, en maður
ekki sel.
Hvalurínn
Grænfriðungar þeir sem hafa
að undanförnu verið að koma ó-
orði á Islendinga eru annað
dæmi um þetta uppþemda ill-
þýði sem allt þykist mega og
geta. Þeir hafa að þvi er virðist
Grænfriðarhyskið brýtur hér
öll lög og allar reglur sem það
nennir. Og það nennir ýmsu á
þvi sviði. Hinu nenna grænfrið-
ungar ekki, og það er að kynna
sér hvernig tslendingar hafa
staðið að hvalveiðum allt frá þvi
að þær hófust að nýju skömmu
eftir siðari heimsstyrjöldina.
Þeir hafa engan áhuga á að
vita af þvi að tslendingar eru
frumkvöðlar i hvalvernd og hóf-
legri og skynsamlegri nýtingu
hvalastofnanna. Þeir hafa eng-
an áhuga á þeirri staðreynd að
opinberir aðilar hafa haft
stjórnun og eftirlit, svo sem
áður sagði, með hvalveiðum og
meðferð aflans um áratuga-
skeið. Þeir hafa engan tima til
menn og málefni
að kynna sér þá starfsemi Hvals
hf., sem um langt skeið hefur
beinst að stuðningi við visinda-
legar rannsóknir og fyrir-
greiðslu við fræðimenn á þessu
sviði.
Aftur á móti hafa grænfriðar-
menn nægan tima og fé til þess
að ófrægja tslendinga i erlend-
um sjónvarpsstöðvum, þvi að
þessi hópur kann að koma fram
i fjölmiðlum. Sýndarmennskan
er honum i blóð borin. I þessu
stórborgarliði er ekkert ekta,
heldur allt saman uppblásið
glamúr. Og það er alveg eins og
menningardótið i öllum löndum,
upp fullt með tillitsleysi viö al-
múgann og fyrirlitningu á hög-
um hans. Það vill peninga og
það vill styrki og það vill alls
konar verndun, en hugsar aldrei
nokkra hugsun um allan kostn-
aðinn eða þá sem þurfa að vinna
fyrir öllu draslinu og kosta það
með sköttum sinum.
Það gildir einu hvort talað er
um húskumbalda,selieða hvali,
— eða hvað annað það sem þetta
fólk þarf að finna sér til dundurs
i iðjuleysinu.
Ný sókn
tslendingar verða að hefja
öfluga kynningarsókn til þess að
hrinda atlögum af þessu tagi af
höndum sér. Við verðum að
mæta grænfriðarliðinu með
þeim einu vopnum sem okkur
eru gefin, rökum og staðreynd-
um. Ef okkur hafa orðið á mis-
tök verðum við að viðurkenna
þauog bæta fyrir þau. Hvað það
varðar gildir einu hvort um er
að ræða dýrastofna eða menn-
ingarleg verðmæti. tslendingar
eiga allt undir skynsamlegri
nýtingu dýrastofnanna sem við
lifum á, og undir þvi að vel sé
búið að menningarlegum verð-
mætum.
En það verður þá að sýna
fram á að um mistök hafi verið
aðræða. Og það er fráleitt aö ts-
lendingar fari að láta einhverja
gikki segja sér fyrir verkum á
þvi sviði.
Nú stendur yfir á erlendri
grund áróðursherferð á hendur
okkur og þvi er haldið fram að
við séum frekir og óbilgjarnir,
fullir af drápsfýsn og fantaskap.
Með markvissri kynningarher-
ferð verðum við að snúa þessari
sókn á undanhald.
Við eigum ekki að láta neina
útlendinga sitja yfir okkar hlut,
hvorki i þessum málum né öðr-
um. Við höfum hreinan skjöld,
að þvi er færustu og fróðustu
visindamenn telja, og þess
vegna á ekkert hik að verða á
okkur að finna.
JS
Styrkið Tímann
Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans
í pósthólf 370, Reykjavik
Eg undirritaður vil styrkja Timann með
þvi að greiða i aukaáskrift
Q heila Q hálfa á mánuði
Nafn ’ ___________________________________
Heimilisf.-----------------------------------
Sfmi
Alternatorar
1 Ford Bronco,
Maverick,
Chevrolet Nova,
Blaser,
Dodge Dart,
Play mouth.
Wagoneer
Land-Rover,
Ford Cortina,
Sunbeam,
Fiat,
Datsun,
Toyota,
VW, ofl. ofl.
Verð frá
19.800.-
Einnig:
Startarar,
Cut-Out,
Anker,
Bendixar,
Segulrofar,
M iðstöAvamótorar
ofl. i margar
teg. bifreifta.
Póstsendum.
Bilaraf h.f.
S. 24700
Borgartúni 19.