Tíminn - 26.08.1979, Blaðsíða 27

Tíminn - 26.08.1979, Blaðsíða 27
Sunnudagur 26. ágúst 1979. 27 ! Sovésk kvikmyndagerð ! I 60 ára I Um þessar mundir minnist MIR/ Menningartengsl Islands og Ráöstjórnarríkj- anna, aðóOár eru liðin frá upphafi sovéskrar kvikmyndagerðar. Haldiö verður upp á afmæliö með tvennum hætti. Dagana 25.— 27. ágúst veröa sýndar þrjár kvik - myndir í MIR-salnum við Laugaveg, en síðar er fyrirhugað að sýna 5 myndir til viðbótar i kvikmyndahúsi í Reykjavik. Ohætt er aö fullyrba aö hlutur sovéskrar kvikmyndageröar er mjög fyrir borð borinn i islenskum kvikmyndahúsum miöað viö efni og aðstæður. Sovéskar kvikmyndavikur hafa verið haldnar af og til i Reykja- vik, en þvi miður þefur ekki verið nægilega vel' staðið að kynningu á þvi sem þar hefur verið boðið upp á. Afleiðingin hefur orðið sú að kvikmyndaá- hugamenn hafa misst af mörg- um lostætum bitanum. Upphaf rússneskrar kvikmynda gerðar Þótt nú sé minnst 60 ára af- mælis sovéskrar kvikmýnda- gerðar var byrjað að filma þó nokkru fyrr i riki Rússakeisara Stenka Razin sem gerð var árið 1908 af Alexander Drankov, er talin fyrsta rússneska kvik- myndin af fullri lengd. Myndin hláut mjög góðar viðtökur og stuðlaði að frekari landvinning- um Rússa á þessu nýja lista- sviði. Meðal athyglisverðra kvikmynda sem gerðar voru fyrir byltingu má nefna sauöt ivans grimma, Liðnir tfmar i Kashira, Pétur mikli, Evgeni Onegin og Vörn Sebastopol, báðar gerðar af Alexander Khanzhonkov og tvær myndir leikstýrðar af Drankov Glæpur ogrefsing og 1812. Ahrif októberbyltingarinnar uröu þau að flest allir kvik- myndageröarmenn flúðu land. Bolsjevikarnir létu það ekki á sig fá ef dæma má orð Lenins sem lýsti þvi yfir, „að kvik- myndin væri mikilvægasta list- greinin fyrir okkur”. Þann 9. nóvember 1917 var sett á laggirnar sérstök kvik- myndanefnd sem heyrði undir menntamálaráðuneytið og starfaöi undir formennsku Krupskaya, en hún var kona Lenins. Arin næstu á eftir voru umbrotatimar. Fram kom ný kynslóð kvikmyndagerðar- manna sem áttu eftir að leggja grunninn aö sovéskri kvik- myndalist. Af þessum braut- ryðjendum má fræga telja Pud- ovkin, Dovzkenko, Vertov, Ei- senstein, Trauberg og Koz- intsev. A afmælishátðið MIR verða sýndar kvikmyndir eftir þrjá siðast nefndu. Eisenstein Að öllum öðrum ólöstuðum er Sergei Eisenstein einn allra mesti listamaður kvikmynd- anna. Hann var fæddur i Riga árið 1898. Foreldrar hans voru miðstéttar Gyðingar. Eftir verkfræðinám i Petrograd gekk hann 'i Rauða herinn. Aö her*, þjónustu lokinni gerðist hann' leikmyndateiknari og leikstjóri við Alþýðuleikhúsið og Frjálsa leikhúsið i Moskvu. Fyrsta kvikmyndin sem Eisenstein gerði var Verkfall (1924), en hún fjallar um dráp lögreglu- þjóna á verkfallsmönnum. Ariö eftir kom fyrir augu manna frægasta mynd hans Beitiskipið Potemkin um uppreisn'sjóliða gegn yfirboðurum sinum vegna þess að þeim var ætlað maðkaö fæði. 1 Potemkin fylgir Eisen- stein út i ystu æsar kenningum sinum um mikilvægi mynd- skiptingar (montage) i kvik- myndagerð og þýðingu klippinga. Beitiskipið var gerð i <Jr kvikmyndinni Æska Maxims anda byltingarinnar og á sinum tima talin hafa mikið pólitiskt áróðursgildi fyrir nýju valdhaf- ana I Kreml. Atriði úr fyrstu kvikmynd Eisensteins Verkfail (1924). Kozintsév og Trauberg Allar kvikmyndirnar sem verða sýndar i MlR-salnum eru gerðar af þeim félögum Grigori Kozintsév (1905 — 1973) og Leonid Trauberg (1902). Sam- vinna þeirra hófst árið 1921 með stofnun kvikmyndafélags. Þri- leikurinn Æska Maxims (1935), Maxim snýr aftur (1937) og Viborgarhverfið (1939) er talinn hápunktur samvinnu Aðrar kvikmyndir sem sýndar verða á næstunni í tilef ni 60 ára af mælis sovéskrar kvikmyndagerðar: SEIGLA (1976) eftir Larissu Shepitko VERKFALL (1925) eftir Sergei Eisenstein HÉR RIKIR KYRRÐ I DÖGUN (1972) eftir Stanislav Rostotskí SPARTAKUS (1975) HAMLET (1964) eftir Grigori Kozintév. (sýningartími og staður óákveðinn) Sýningartími kvikmyndanna sem sýndareru í MIR-salnum við Laugaveg: Laugardaginn 25. ágúst kl. 15: ÆSKA MAXIMS Sunnudaginn 26. ágúst kl. 16: MAXIM SNÝR AFTUR Mánudaginn 27. ágúst kl. 20.30: VIBORGARHVERFIÐ (aðgangur er ókeypis)J þeirrá og um leið sigildur i sovéskri kvikmyndasögu. Það er án efa mikill fengur fyrir islenska kvikmyndaáhugamenn að fá tækifæri til að sjá þessar myndir sem fjalla um ungan, dálitið ábyrgðarlausan verka- mann sem verður byltingar- sinni. Hvar eru ngju kvikmgndirnar? Þvi er ekki að leyna að bað veldur nokkrum vonbrigðum aö w ekki skuli fleiri nýjar kvik- I myndir sýndar á afmæiishátið- I inni. Sjálfsagt er aö nota sllkt I tækifæri til að kynna það nýj- asta sem er að gerast i sovésk- I um kvikmyndaheimi. Yngsta ' myndin, Seigla, er þriggja ára. # Hún er gerð af úkrainskri konu, ■ Larissu Shepitko. Larissa er ein I af fáum konum sem vakið hefur I verulega athygli á kvikmynda- I sviðinu i Sovétrikjunum. Seigla er fjórða kvikmyndin sem hún I gerir á 15 árum. Hún gerist i £ seinni heimsstyrjöldinni um ■ vetur og er um baráttu sovéskra hermanna við að halda lifi. Einn kemst þannig að orði: „Að I deyja er auðveldasti hlutur i heimi, en við verðum að lifa I þrengingarnar af.” ^ Tvær aðrar kvikmyndir verða . sýndar i tilefni afmælisins, en þvi miður hefur undirrituðum ekki tekist að afia nánari upp- I lýsinga um þær. Þessar myndir I eru: Ballettmyndin Spartakus I (1975) og Hér rikir kyrrð I dög- _ un (1972) leikstjóri Stanislav “ Rostotski. gk I Valentma Chendrikova og Grigori Kozintsev. Myndin er tekin árið 1970 þegar Jivikmyndun LÉS KONUNGS stóð yfir. Fulltrúi ungu kynslóðar sovéskra kvikmvndagerðarmanna sem á mynd á afmælishátið MIR er Larissa Shepitko. Myndin er tekin þegar hún var að vinna að gerð kvikmyndarinnar ÞC' OG ÉG. Hamiet (1964) i kvikmynda- gerð Kozintsévs veröur sýnd slðar i haust, en ýmsir telja þá útgáfu bestu kvikmyndina sem gerö hefur verið eftir verkum Shakespeare. Kvikmyndahornið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.