Tíminn - 26.08.1979, Blaðsíða 13

Tíminn - 26.08.1979, Blaðsíða 13
Sunnudagur 26. ágúst 1979. 13 Þaö kostar aðeins um 200þús. aölœra að fljúga — á meðan vcium r 1U5M1110 u«i bílpróf- ið er komið í 120 þúsund krónur Texti: Eiríkur Myndir: Tryggvi Flugmenn og flugmál á islandi hafa verið mikið í sviðsljósinu á undanförnum mánuðum og kemur þar margt til. Alvarleg átök hafa átt sér stað innan Flugleiða h.f. á milli flugmanna félagsins/ sem eins og kunnugt er tilheyra tveim stéttarfé- lögurrt/ og eins hefur rekstrarstaða Flugleiða sjaldan eða aldrei verið eins erfið og nú. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Flugleiðir hafa sagt upp aragrúa af starfsfólki og atvinnumöguleikar fiugmanna á islandi f dag verða að teljast harla litlir. Stöðugt bætast þó við nýir f lugmenn, en að öllu óbreyttu eru litlar líkur á því að f lugið verði annað en tómstundagaman hjá þeim. — En hvað kostar að læra að fljúga? Hér áður fyrr fóru miklar sögur af því hve flugnám væri óheyrilega dýrt og var það mál manna að það væri aðeins á færi ríkisbubba eða mjög vel stæðra manna að fara út í slíkt nám, sem flugnámið er. En skyldi þetta hafa breytst? Til þess að fá úr því skorið snerum við okkur til Flugtaks h.f., sem rekur flugskóla í Reykjavík, og ræddum þar við örn Baldursson. Við öfluðum okkur einnig uppfýs- inga um það hvað kostaði að taka bílpróf i dag — og satt best að segja komu niður- stöður þessarar athugunar okkur mjög á óvart. Sólóprófið kostar 200 þúsund krónur Flugtak h.f., sem er til húsa i gamla flugturninum á Reykja- vikurflugvelli, hefur starfaö i fjögur ár, en auk þess sem fyrir- tækið rekur flugskóla, Ieigir þaö út flugvélar og stendur fyrir út- sýnisflugi. Samkvæmt upplýsingum Arnar Baldurssonar hjá Flugtaki h.f. kostar nú hver flugtimi 14.200 krónur, ef keyptir eru 10 eða fleiri flugtimar saman. Sagöi örn aö til þess aö standast hiö svo kallaöa sólópróf sem flugmaöur, þyrfti viökomandi nemandi aö taka a.m.k. 15 flugtima, en sjálft próf- ið væri fólgiö i 2-3 flugtökum og lendingum. Nemandinn þyrfti einnig aö kunna skil á undirstöðu- atriöum i flugreglum og hafa næga þekkingu á eiginleikum þeirrar flugvélar sem flogiö væri hverju sinni. Ef nemandinn upp- fyllti þessi skilyrði og stæöist ná- kvæma læknisskoðun hjá trúnað- arlækni Flugmálastjórnarinnar, þá yrði hann þar með handhafi skirteinis flugnema, en það veitir viðkomandi rétt til þess að fljúga einn I samráöi við og undir eftir- liti flugkennara. Samkvæmt þessu kostar sólóprófiö rúmar 200 þúsund krónur, sem trúlega er töluvert miklu lægri upphæð, en menn heföu Imyndaö sér að óreyndu. Einkaflugmaður fyrir milljón En sólóprófiö er bara einn á- fangi i flugnáminu og fáir láta sér nægja aö hafa þaö eitt og stefna þvi I flestum tilfellum ótrauöir á A-prófiö, eða einkaflugmanns- prófiö svokallaöa, en handhafi skirteinis einkaflugmanns þarf aö hafa lokið a.m.k. 60 flugtimum, sem skiptast i æfingarflug, land- flug og undirstöðuatriöi i blind- flugi. Auk þessa þarf nemandinn að sækja 10 vikna bóklegt kvöldnám- skeið hjá Flugmálastjórn, en á þvi eru kennd eftirtalin 5 fög: Flugreglur, flugvélarfræði, flug- eðlisfræði, veöurfræði og sigl- ingafræöi. Að loknu námskeiöinu veröur nemandinn aö þreyta próf hjá Fiugmálastjórn, en til þess aö standast þaö þarf hann að fá a.m.k. 70% i meðaleinkunn. Hið eiginlega flugpróf er siöan fólgið i ákveðnum flugþrautum. Reikna má með þvi að 60 flugtimar kosti 852 þúsund krónur, en ýmis annar kostnaður bætist þó við, þannig að þaö lætur nærri að einkaflug- mannsprófið kosti um 950 þúsund krónur. 1 smá fjölriti sem Flugtak h.f. gaf út fyrir skömmu segir m.a. um möguleika einkaflugmanns: „Einkaflugmönnum eru allir vegir færir. Þeir geta flogiö með sig og sina hvert sem hugurinn girnist, svo fremi aö öllum lögum og reglum sé fylgt. Viö einkaflug- réttindin má siöan prjóna nætur- og blindflugsréttindum sé áhugi og aðstæður fyrir hendi. Einka- flugmaður má ekki stunda flug I atvinnuskyni”. Bilprófið kostar um 120 þúsund krónur I samtali okkar viö örn Baldursson hjá Flugtaki kom fram aö ekki er óalgengt að menn taki sig saman og kaupi litlar flugvélar, 4-6 manna, i félagi, en verðið á slikum flugvélum mun nú vera á bilinu 6-8 milljónir króna. Það væri þvi ekki fráleitt að ætla að fyrir 2-2.5 milljónir króna væri hægt aö fá bæöi einka- flugmannspróf og eignast hlut i flugvél. Eins og fram kom hér að fram- an, leituðum viö einnig upplýs- inga um það hvað kostar að taka bilpróf i dag. Samkvæmt upplýs- ingum Þórðar Arnasonar hjá ökukennarafélagi Islands kostar hver ökutimi i dag 5940 krónur — er semsagt 8260 krónum ódýrari en flugtiminn. Að sögn Þóröar er ekki óalgengt að teknir séu 17 ökutimar, en verðið á þeim mun þá vera rúmar 100 þúsund krón- ur. Ekki er þá allt talið þvi að ökuskólinn kostar 12 þúsund krónur og skirteinis- og prófgjald er 7300, þannig að allt i allt kostar það um 120 þúsund krónur að taka bflpróf i dag og er þá miöað viö að nemandinn sé 17 ára. Sagði Þórö- ur að það væri ekki óalgengt að einum ökutima væri bætt við fyrir hvert ár sem væri fram yfir 17 ár, en það væri að sjálfsögðu öku- kennaranum i sjálfsvald sett hvaö hann ætlaöi nemendunum marga ökutima. -ESE Lagt upp I æfingarflue

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.