Tíminn - 26.08.1979, Page 10
Sunnudagur 26. ágúst 1979.
Steypustoð Steiniöjunnar á tsafiröi. Fyrirtækiö hefur einnig rekiö byggingaverktakastarfsemi og röraog hellusteypu.
Steiniðjan h.f. á Isafirði:
Sér öllum norðanverðum
Vestfjörðum fyrir steypu
— Rætt við Jón Þórðarson, forstjóra
AM— Steiniðjan hf. á isafirði er eitt blómlegasta iðn-
fyrirtæki á Vestf jörðum og annast rekstur steypustöðv-
ar sem framleiðir steypu fyrir öll byggðarlögin á
norðanverðum Vestfjörðum, auk þess sem hún hefur á
liðnum árum verið með fjölþætta byggingarverktaka-
starfsemi og byggði meðal annars hina glæsilegu heima-
vTst menntaskólans, þar sem rekið hefur verið
Edduhótel og þeir kannast við, sem þar hafa gist, sem
afburða og fagra og vandaða byggingu.
Við ræddum nýlega við Jón Þórðarson, forstjóra Stein-
iðjunnar, um upphaf fyrirtækisins og vöxt á einu mesta
uppgangs og framfaraskeiði á Vestfjörðum, en óvíða er
hérlendis að finna aðra eins uppbyggingu og þar.
Hve langt er frá þvi þú hófst
þina starfsemi hér i Grænagaröi,
Jón?
„Nú munu liöin ein 20 ár frá þvi
viö byrjuðum hér i fjörunni. Við
byrjuðum hér með holsteinagerö,
sem svo þróaðist upp i steypu á
rörum og hellum og á endanum
færðum við út kviarnar og
byrjuðum okkar byggingarstarf-
semi. Vegna þess að viö vorum
hér með ýmsar nýjungar i þeirrj
grem, náðum við ekki samstarfi
við trésmiði hér og komum þvi
upp okkar eigin trésmiðaverk-
stæöi.
Ég verðað koma þvi hér að.að á
þessum áfanga i starfsemi fyrir-
tækisins gerðist atburður sem
breytti miklu fyrir okkur, en hann
var sá að 1969 lentum við i snjó-
flóði hér ofan úr Eyrarfjallinu
sem olli miklum skaða á húseign-
um okkar. 1 þann tið var engan
Viölagasjóð að hafa til þess að
gráta framan i, en viö fengum lán
úr Bjargráðasjóöi, sem sist skal
vanþakkaö. Þá fórum við út I það
aö byggja og selja og öfluðum
okkur ýmissa tækja, fengum bæði
býggingarkrana og hrærivél. En
þessi tæki úreltust og þá fóru að
heyrast raddir um að koma þyrfti
upp steypustöð. öllum var aug-
ljós þörf á slfku fyrirtæki, en
meöalaldur húsa hér á Vestfjörð-
um er hæstur á öllu landinu.
Fjóröungssamband Vestfjarða
stóö fyrir könnun vegna þessa
máls og ritaði um það bil 40
aöilum, en þvl miður komu ekki
svör nema frá fjórum. Sem fyrr
segir voru tækin okkar orðin úrelt
og nú sneri það að okkur að
endurnýja þau með sams konar
áhöldum eða koma sjálfir upp
steypustöð. Vegna ágætrar fyrir-
greiðslu og skilnings Útvegs-
bankans hér tókst þetta og við
réðumst i fyrirtækið.
Rekstur steypustöövar hér
vestra er þó miklu erfiöari en á
Reykjavikursvæðinu og stafar
þaö bæði af miklum flutnings-
kostnaði og eins hinu.hve bygg-
ingartimi hér er litill hluti af
árinu en fastakostnaður mikill af
dýrum tækjum sem þarf til þess
að anna toppunum, og er miklu
meiri en þetta markaðssvæði
leyfir”.
Jón Þóröarson, forstjóri.
Fyrirtækiö á fimm steypubfla,
sem sjást á myndinni fyrir aftan
Jón.
Hvaöan er aflaö byggingarefnis
hér?
„Hér hafa oröið með okkur
nokkrar breytingar i sambandi
við steypuframleiösluna, svo sem
malaröflunina, en hér var allt
efni uppurið, sem hægt var að fá á
landi. Undanfarin ár höfum viö
þvi dælt öllu efni úr sjó og hefur
Björgun i Reykjavik annast það
fyrir okkur. Núna siðast tókum
viö um 20 þúsund rúmmetra af
efni i einu, en augljóslega er það
einn bagginn sem steypustöö úti á
landi verður aö bera, að þurfa að
liggja með svona mikið af efni.
þvi þetta gæti stöö fyrir sunnan
Keypt eftir hendinni.”
Nú er mikiö rætt um gæöi bygg-
ingarefnis. Hvernig er þetta efni,
sem þiö fáiö hér úr sjó?
„Jú, sá kostur er þó þessu
fylgjandi, að við höfum betra efni
en syðra. Það fær að rigna hér og
hreinsast og alkalivirkni hér er
sögð engin, eða vel fyrir neðan
mörkin. Við erum hér með prufu,
sem reyndar er aöeins sjö
mánaöa, en þarf að vera tólf
mánaöa, en hún lofar mjög góðu.
Við höfum hér okkar eigin
hafnargarð, sem dæluskipið getur
r""1... ...... .................
DIESEL
Getum útvegað nokkra Datswn diesel bila sem óttu að ffara
til Belgiu. Upplýsingar um verð og ffl. geffur Stoffón Magnússon
f sfma 25922 kl. 2.00 - 5.00 efftir hódegi mánudag og þriðjudag
Innkaupasamband Bifreiðastjóra
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1