Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 56
hús&heimili
fyrir blómin
Heima hjá Orra Árnasyni arkitekt
hangir stórt málverk af honum
sjálfum og tveimur félögum hans
spekingslegum á svip sem vekur
vanalega mikla lukku meðal gesta.
Orri segir að myndin hafi orðið til
eftir kvöldlangar rökræður við
listamanninn sjálfan.
„Ég var nýkominn heim frá
Spáni eftir tíu ára dvöl og sat inni
í stofu í minni fyrstu íbúð ásamt
félögum mínum,“ segir Orri en
þeirra á meðal var listamaðurinn
Birgir Snæbjörn Birgisson.
„Við vorum að spjalla saman um
list og listamenn og ég hafði það á
orði að mér þættu þessir listamenn
oft heldur stórir upp á sig. Þeir
gætu aldrei tekið við pöntunum
heldur vildu bara fara eigin leiðir,“
segir Orri og bætir við að Birgir
hafi ekki verið sammála þessu. „Ég
spurði hann því hvort hann vildi
ekki mála mynd af mér. Hann var
til í það og við sömdum um kaup og
kjör. Þetta var einhver blanda af
gríni og mikilmennskubrjálæði,“
segir Orri og hlær.
„Þegar til kom fannst mér hálf
kjánalegt að vera bara einn á mynd-
inni og fékk félaga mína sem sátu
með okkur þarna um kvöldið til
þess að slást í hópinn,“ segir Orri.
Þeir félagar veltu lengi fyrir
sér hvaða uppstilling væri heppi-
legust og fundu loks málverk af
Leó X eftir Rafael þar sem hann
situr ásamt tveimur ráðgjöfum
sínum og skoðar bók. „Ég hafði ný-
lega lesið Moby Dick og var alveg
heillaður af henni. Hún var bara
bókin í mínum huga,“ segir Orri
og nefnir að sér hafi þótt magnað
hvernig Ahab skipstjóri var tilbú-
inn að leggja allt í sölurnar til að
ná hvalnum, jafnvel þótt hann hafi
á endanum orðið að lúta í lægra
haldi. „Við félagarnir erum því
að glugga í Moby Dick á málverk-
inu,“ segir arkitektinn. Orri segir
að valið hafi staðið á milli þess að
hafa hana eða Don Kíkóta með á
myndinni en Moby Dick hafi orðið
ofan á.
„En það er allt í lagi. Ég er með
styttu af Don Kíkóta á skrifstofunni
hjá mér svo ég reddaði þessu.“ - árá
Málverkið spekingslega
Orri Árnason arkitekt og málverkið sem varð til fyrir tilviljun. Vinirnir tveir á málverkinu eru þeir Kristinn Jóhannsson og Arnar
Matthíasson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÆTIR BOLLAR Þessir eru nýkomnir í versl-
unina BoConcept. Bollarnir geta nýst undir bæði te
og kaffi, eru handfangslausir og fagurlega skreyttir
í svörtu og gylltu. Stykkið kostar 690 krónur.
VATNSÚÐARINN litli er
bæði sætur og nytsamlegur. Með
annarri hendi er hægt að halda á
honum og sprauta úða yfir uppá-
halds pottablómið. Fæst í Hús-
gagnahöllinni á 490 kr.
Páskatilboð
Sidebiters®
til varnar og
bætir grip
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
Radíal-dekk
Vinsælustu 38“ dekkin á markaðnum í dag
• Standast mjög vel mál.
• Leggjast einstaklega
vel við úrhleypingu.
• Mjög hljóðlát.
• Gróft snjómynstur
• Sterkar 3ja
laga hliðar
• 6 laga sóli,
sérlega sterkur
• Nákvæm
framleiðsla
• Langur
endingartími
Þú kaupir þrjú 38“ MTZ dekk og færð það fjórða frítt.
4 fyr
ir 3
Skólavörðustíg 21
Sími 551 4050 • Reykjavík
Ný sending af
sængurfatnaði
Ný mynstur og nýjar gerðir
TEPPI Á STIGAHÚS
- gott verð -
komum og gerum verðtilboð
30. MARS 2007 FÖSTUDAGUR8