Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 8
Hvers konar tímamót urðu á
Reyðarfirði á miðvikudag?
Hvaða íslenski söngvari sat
nýverið fyrir svörum blaða-
manns stórblaðsins Newsweek?
Hver lenti í öðru sæti í opn-
um flokki á Grand Prix móti í
borðtennis um síðustu helgi?
8.000kr.SPARAÐU 8.000kr.SPARAÐU 8.000SPARAÐU
8.000kr.SPARAÐU 8.000kr.SPARAÐU
Vnr.50632102
ELEGANT UNION gasgrill með tveimur brennurum,
pottjárn í grillgrind, 8,6kW. Grillflötur 50x41 cm.
Neistakveikjari, hitamælir, efri grind og fitubakki.
Mjög auðvelt að hreinsa. Þrýstijafnari og slanga fylgir.
16.900
24.900
Aðeins eitt grill á mann!
„Það þarf að upp-
lýsa þá sem leita til tannlækna
betur um þá þjónustu sem þeir
þiggja og kostnaðinn við hann,“
segir Anný Dóra Hálfdánardótt-
ir móðir þriggja ára stúlku. Anný
er ósátt við reikning sem hún
fékk frá tannlækni dóttur henn-
ar. Reikningurinn hljóðaði upp á
12.500 krónur.
„Þegar ég fór yfir reikning-
inn sá ég að 6.500 krónur voru
fyrir skoðunina sjálfa en þar fyrir
utan greiddi ég 3.500 krónur í at-
ferlismeðferð og 3.500 krónur í
fræðslu,“ segir Anný. Hún segist
ekki hafa beðið um annað en skoð-
un og að barnið hafi ekki þurft á at-
ferlismeðferð að halda. „Hefði svo
verið hefði ég látið fagaðila sjá um
að veita barninu hana. Fræðslan
sem ég þurfti að greiða fyrir held
ég að hafi falist í því að tannlækn-
irinn sagði mér að það væru marg-
ir sykurmolar í gosdrykkjum. Og
að ég þyrfti að bursta tennurnar í
henni vel. Það vissi ég vel fyrir og
tel mig ekki þurfa að greiða mörg
þúsund fyrir slíkar leiðbeiningar,“
segir Anný. Hún hvetur fólk til að
kynna sér hversu háar upphæð-
ir tannlæknar leggja ofan á fasta-
gjaldið sem gefið er upp.
Ólafur Höskuldsson, barnat-
annlæknirinn sem Anný leitaði
til, segir að ekki sé hægt að gera
ráð fyrir því að fólk viti hvernig
best sé að hirða um tennur barna.
„Það er til einskis að vera að gera
við tennur ef fólk veit ekki hvað
það á að gera til að fyrirbyggja
skemmdir,“ segir Ólafur þegar
hann er spurður um fræðsluna.
Atferlismeðferðina segir hann
vera til að aðlaga börn komum á
tannlæknastofur. „Yfirleitt þakk-
ar fólk fyrir fræðslu en kvartar
ekki,“ segir hann um aðfinnslur
vegna reikningsins.
„Dóttir mín er mjög róleg og
var ekkert hrædd við heimsókn til
tannlæknisins. Hann ætti að geta
metið hvaða börn þurfa á slíkri
þjónustu að halda og boðið for-
eldrum að veita hana meti hann
þörf á slíkri meðferð. Það er alger
óþarfi að gera hlutina svona óum-
beðið,“ segir Anný.
Sigurjón Benediktsson, for-
maður Tannlæknafélags Íslands,
segir fræðslu nauðsynlegan þátt
í tannlækningum. Hann tekur
undir með Ólafi að ekki sé hægt
að gera ráð fyrir því að þekkja
rétta umhirðu tanna og að eins og
aðrar stéttir vilji tannlæknar fá
greitt fyrir þá þjónustu sem þeir
veita. Hann bendir einnig á að á
öllum tannlæknastofum eigi að
vera listi með yfirliti yfir þjón-
ustu og verð sem sjúklingar geti
kannað við komu.
Ósátt við þjónustu
barnatannlæknis
Upplýsingum um þjónustu og kostnað á tannlæknastofum er ábótavant að
mati móður sem nýverið fór með dóttur sína til barnatannlæknis. Hún er ósátt
við að greiða fyrir óumbeðna meðferð. Tannlæknir furðar sig á viðbrögðunum.
Bresk stjórnvöld ósk-
uðu í gær eftir stuðningi öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna við yfir-
lýsingu þar sem varðhald bresku
hermannanna fimmtán í Íran er
fordæmt og tafarlausrar lausnar
þeirra krafist.
Íranar birtu í fyrradag mynd-
band af eina kvenkyns fanganum í
sjónvarpi og þykir það, ásamt því
að Bretar hafa leitað til öryggis-
ráðsins, merki um að deilan hafi
harðnað til muna.
Erindrekar hjá öryggisráðinu
töldu líklegt að Rússar og fleiri
gætu andmælt yfirlýsingunni
þar sem í henni segi að Bretarn-
ir hafi „verið við aðgerðir í íraskri
lögsögu“ sem írönsk stjórnvöld
rengja.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að bresk
stjórnvöld myndu ekki semja
um lausn bresku hermannanna.
Sagði hann að í samskiptum við
aðila á borð við írönsk stjórnvöld
væri nauðsynlegt að útskýra með
þolinmæði hvað þurfi að gera og
um leið gera ljóst að gripið verði
til frekari aðgerða séu þeir ekki
tilbúnir til að sýna skynsemi.
Íranskir námsmenn söfnuðust
saman með skilti fyrir framan
breska sendiráðið í Teheran, höf-
uðborg Írans, í gær og kröfðust
þess að bresku hermennirnir yrðu
leiddir fyrir íranskan rétt. Á einu
skiltanna var aftöku krafist yfir
hinum „fimmtán bresku árásar-
mönnum“.
Bretar leita til öryggisráðsins
Launakjör
Indónesanna þrjátíu sem starfa
hjá austurríska verktakafyrir-
tækinu Va Tech á Kárahnjúkum
eru enn til skoðunar hjá Sam-
starfsnefnd um virkjanasamning-
inn. Þorbjörn Guðmundsson, for-
maður nefndarinnar, segir að ekki
sé komin niðurstaða í málið en
býst við að niðurstaðan liggi fyrir
um miðja næstu viku.
„Vinnuveitendurnir gátu ekki
veitt okkur þær upplýsingar sem
við höfðum óskað eftir. Þeir óskuðu
eftir fresti til 3. apríl til að skila
þessum gögnum,“ segir Þorbjörn.
„Það eru okkur mikil vonbrigði
hvað þetta tekur langan tíma.“
Vinnuveitand-
inn fékk frest
Siv Friðleifsdóttir, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
segir að möguleg afdrep fyrir reyk-
ingamenn hafi mikið verið rædd á
fyrstu stigum reglugerðarsetning-
ar um reykingabannið, sem sett
verður í sumar.
Veitingamenn hafi á endanum
sjálfir lagst gegn slíkum hugmynd-
um, þar sem sýnt þótti að einungis
sumir þeirra gætu komið upp slíku
rými. „Þeir vildu hafa jafnræði í
þessu þannig það yrði ekki leyft,“
segir Siv og bendir á að þetta falli
einnig að sjónarmiðum vinnu-
verndar, því
starfsfólk þurfi
að þrífa í reyk-
herbergjum sem
öðru rými. Að
auki sýni reynsl-
an að torvelt sé
að halda reyk-
rýmum aðskild-
um frá hinum.
Öll rök hafi því
komið saman
gegn reykrýmum innan dyra.
Hins vegar sé væntanleg reglu-
gerð sem skýri hvernig reykrými
utandyra skuli háttað. Leyft verði
að setja upp afmörkuð skýli með
allt að þremur veggjum.
Forsvarsmenn Ölstofunnar
íhuga nú málaferli vegna laga-
setningarinnar og segjast aldrei
hafa verið spurðir álits á henni.
Siv hafnar þeirri umkvörtun og
segir að helstu hagsmunasam-
tök hafi verið fengin til umsagn-
ar. Nefnir hún sem dæmi Samtök
ferðaþjónustunnar. Í þeim séu
sannarlega krár, til dæmis Grand
Rokk.
Vertar höfnuðu reykrýmum