Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 2
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
leggur til að stofnað verði 240 manna launað vara-
lið lögreglunnar, sem kallað verði til ef þörf kref-
ur vegna öryggis ríkisins. Þetta nefndi hann í ræðu
sinni á fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna
samvinnu í gær.
Í ræðunni sagði hann að varaliðsmenn yrðu kall-
aðir til starfa úr röðum björgunarsveitarmanna,
slökkviliðsmanna, sjúkraliðsmanna, öryggisvarða,
friðargæsluliða og fyrrverandi lögreglumanna eftir
sérstaka þjálfun á vegum ríkislögreglustjóra.
Talið er að stofnkostnaður við að koma varalið-
inu á fót verði um 244 milljónir króna, og árlegur
rekstrarkostnaður í kringum 222 milljónir.
„Mér finnst þetta afar óskynsamleg hugmynd,“
segir Stefán Pálsson sagnfræðingur. „Það er óljóst
að hverjum hún beinist og ég get ekki ímyndað mér
að hún sé gerð með sérstökum vilja þeirra sem fara
fyrir lögreglumálum.“
Hann segir að við erfiðar aðstæður sé augljóslega
betra að vera með öfluga og vel æfða lögreglusveit
en ekki hóp viðvaninga. Með þessu sé lítið gert úr
störfum lögreglumanna.
„Við fengum enga
kvittun en við fengum ljósrit af
einum reikningi og erum að vinna
í því núna að fá frumritið,“ segir
Karl Ottó Karlsson, framkvæmda-
stjóri Múrbúðarinnar, en verslun-
in auglýsti eftir kvittunum sem
sýndu að keyptir hefðu verið 10
lítrar af málningu í BYKO á 7.399
krónur.
BYKO hefur nú um nokkurt
skeið auglýst tilboð á málningu.
Málningin kostar 4.990 kr. á til-
boði og fram kemur í auglýsing-
um að upprunalegt verð sé 7.399
kr. „Okkur grunaði að uppruna-
lega verðið væri tilbúningur og
vildum athuga hvort einhverjir
hefðu keypt málningu í BYKO á
þessu verði,“ segir Karl og bætir
því við að viðbrögðin við auglýs-
ingunni hafi verið jákvæð. „Fólk
veitti þessu framtaki athygli enda
er allt of oft verið að blekkja neyt-
endur,“ segir Karl.
Viðskiptavinurinn sem kom með
ljósritið af reikningnum í Múrbúð-
ina í gær á von á að vinna helgar-
ferð til London reynist reikning-
urinn ófalsaður. „Þar sem það er
utanlandsferð í boði hefði mátt
búast við að fjöldi fólks kæmi með
kvittanir. Það gerðist hins vegar
ekki svo okkur þykir líklegt að
málningin hafi aldrei verið seld á
þessu verði sem um ræðir,“ segir
Karl.
Ekki náðist í Ásdísi Höllu Braga-
dóttur, forstjóra BYKO, vegna
málsins.
Kormákur, þýðir eitthvað að
bera fyrir sig skjöld?
Aðeins ein kvittun skilaði sér
Tollurinn í Hafn-
arfirði, sem fram að áramót-
um heyrði undir embætti sýslu-
mannsins, seldi þrjá báta á upp-
boði sem ekki höfðu gæðavottun
en ólöglegt er að setja slíka báta á
markað. Innflutningur á bátunum
var stöðvaður í tollinum þar sem
þeir uppfylltu ekki fyrrnefnd skil-
yrði. Bátarnir voru seldir í októb-
er í fyrra.
Þeir voru geymdir á svæði í eigu
Eimskips þar til þeir voru seldir.
Að sögn Björns Hjálmtýsson-
ar, fulltrúa hjá sýslumannin-
um í Hafnarfirði, sem hafði um-
sjón með uppboðinu, voru bátarn-
ir seldir vegna kostnaðs sem af
geymslu þeirra hlaust. „Bátarn-
ir voru seldir til þess að hafa upp
í kostnað. Þeir voru seldir með
þeim fyrirvara að þeir fengjust
ekki skráðir.“
Siglingamálastofnun gerði at-
hugasemdir við uppboðið með
bréfi þar sem hún taldi sölu á bát-
unum inn á markað ólöglega.
Stefán Pálsson, lögfræðingur
á stjórnsýslusviði Siglingamála-
stofnunar, segir stofnunina hafa
lagt fram fyrirspurn til tollsins þar
sem það sé á könnu stofnunarinnar
að hafa eftirlit með sölu báta inn á
markað. „Við fengum þau svör til
baka að það væri algengt að far-
artæki og ýmislegt annað, sem
ekki uppfyllti skilyrði lögum sam-
kvæmt, væru seld á uppboðum.
Því var auk þess borið við að bát-
arnir hefðu verið seldir til þess að
hafa upp í kostnað vegna geymslu.
Það er skýrt í lögum að farartæki
sem ekki uppfylla gæðavottunar-
skilyrði mega ekki vera seld inn á
markað.“
Stefán sagðist þó líta svo á „að
þetta væri ekki eðlilegt starfslag“.
Bíla- og vélasalan Geisli í Borg-
arnesi keypti tvo af bátunum og
eru þeir til sölu þar. Það staðfesti
Arilíus Dagbjartur Sigurðsson,
starfsmaður sölunnar, í gær.
Þeir sem fluttu bátana inn til
landsins, og borguðu fyrir þá er-
lendis, voru ekki hafðir með í
ráðum þegar bátarnir voru boðn-
ir upp.
Tollurinn seldi báta
ólöglega á markað
Tollurinn seldi báta ólöglega inn á markað hér á landi í október. Innflutningur
á bátunum var stöðvaður í tollinum þar sem bátarnir höfðu ekki nauðsynlega
gæðavottun. Siglingamálastofnun gerði athugasemdir við sölu bátanna.
Tveir voru fluttir á slysa-
deild í gær eftir harðan árekstur
á Miðhúsabraut á Akureyri.
Þar rákust saman fólksbíll og
jepplingur.
Í fólksbílnum voru fjórir far-
þegar og slösuðust tveir þeirra
lítillega. Ökumaður jepplings-
ins var einn í bílnum og slapp
ómeiddur. Flytja þurfti fólksbíl-
inn á brott með kranabíl.
Tveir fluttir á
slysadeild
Verð á laxveiðileyfum
fer síhækk-
andi og er-
lendir stórlax-
ar eru tilbúnir
að borga háar
fjárhæðir fyrir
veiði í íslensk-
um ám. „Menn
eru að borga
2 til 3 þúsund
dollara fyrir
daginn. [Allt að
200 þúsund krónum íslenskum.]
Ég hef af þessu miklar áhyggj-
ur en nú er kominn sá tími að
stór hópur Íslendinga á enga
möguleika á að komast í topp-
veiði. Enga. Nema menn séu í
boði stórfyrirtækja,“ segir Ingvi
Hrafn Jónsson, staðarhaldari við
Langá á Mýrum.
Ingvi Hrafn segir hér mark-
aðinn að verki og hann greiði nú
50 milljónir fyrir leiguréttinn
en sú tala hafi verið 20 milljónir
fyrir fimm árum. Íslendingum
hafi auðnast að halda svo vel á
málum að laxveiði á Íslandi sé
ekki bara lúxus hér heldur lúxus
á heimsmælikvarða. „Því miður
fyrir veiðimenn, til allrar ham-
ingju fyrir bændur, er verðið
orðið venjulegum mönnum al-
gerlega ofviða. Það er ekkert
öðruvísi.“
Veiðileyfin
rjúka upp
Sigurður Líndal prófess-
or við telur að á
brattann verði
að sækja í hugs-
anlegum mála-
ferlum Ölstof-
unnar gegn rík-
inu. „Það eru
hugsanlega ein-
hverjir fletir á
þessu, ef [bann-
ið] kemur sérstaklega illa við ein-
hverja aðila umfram aðra, þannig
að ekki sé gætt jafnræðis,“ segir
Sigurður.
Hins vegar séu til fordæmi á
hinn veginn. „Það eru til dómar
um það sem flokkast undir hættu-
lega eða óæskilega starfsemi og
þá hefur verið talið sem svo að
löggjafinn hafi nokkuð rúmar
heimildir til að setja atvinnufrelsi
manna og atvinnuréttindum nokk-
uð þröngar skorður.“
Efins um brot á
meðalhófsreglu
Íbúum í Hafnarfirði
hefur fjölgað um 426 á síðustu
fjórum mánuðum. Þann 1.desem-
ber 2006 voru íbúar bæjarins
23.674 en í dag eru þeir 24.100.
Uppbygging í Hafnarfirði síð-
astliðin ár hefur verið hraðari
en svæðisskipulag höfuðborgar-
svæðisins gerir ráð fyrir. Reikn-
að var með að Hafnfirðingar yrðu
22.000 árið 2012 en þeir höfðu náð
þeirri tölu árið 2004.
Enn fjölgar í
Hafnarfirði
Rúmlega þrjátíu
fjár á bænum Neðstahvammi í
Dýrafirði var fargað í gær vegna
ills aðbúnaðar og vannæringar.
Fénu var fargað að beiðni héraðs-
dýralæknisins á Vestfjörðum.
Að því er kom fram í útvarps-
fréttum RÚV í gær barst í febrú-
ar kæra um slæma meðferð á
skepnunum. Um sextíu fjár voru
á bænum.
Eftir að kæran barst varð lítið
um úrbætur, en steininn tók úr
þegar nýlega flæddi í fjárhús-
in í miklum leysingum og féð fór
á flot. Því var ákveðið að farga
helmingn fjársins í húsunum.
Fé fargað vegna
ills aðbúnaðs