Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 39
Oddur Örn Halldórsson fram-
leiðandi horfir með saknaðar-
augum á þá peninga sem hurfu
í gin hnakkamaskínunnar.
Honda Civic, gullkeðjur og
ljósakort kostuðu skildinginn.
Lífið skiptist í tímabil sem sum
eru betri en önnur. Oddur Örn tók
út sitt hnakkatímabil á mennta-
skólaárunum og þó svo að hann
hafi skemmt sér konunglega
blæddi veskinu á meðan því stóð.
„Ég held að mín alverstu kaup
hafi verið Honda Civic hnakka-
bíll dauðans. Þetta var rándýr bíll
sem ég hafði engan veginn efni á,“
segir Oddur. „Ég þurfti að fá víxil
til að sjá um útborgunina, sem er
náttúrlega algjör vitleysa.“
Þó svo að bílakaupin hafi verið
verið slæm ákvörðun fjárhags-
lega urðu til nokkrar góðar sögur.
„Við fórum eitt sinn í sumarbústað
yfir helgi og mér tókst að keyra
bílinn á skurðarbakka þar sem
hann vó salt. Það var blindbylur
og þar sem ég helt að væri vegur
var skurður,“ segir Oddur og hlær.
„Svo voru einhverjir vitleysingar í
næsta bústað sem fannst það rosa
fyndið að taka eitt dekkið undan
bílnum, sem gerði björgunarað-
gerðir enn erfiðari.“
En hnakkavitleysurnar eru
ekki upp taldar. „Á Halló Akur-
eyri keypti ég mér svakalega gull-
keðju, mig minnir að hún hafi
kostað fimmtán þúsund krónur, og
týndi henni svo klukkutíma síðar,“
segir Oddur. „Svo fór auðvit-
að fúlga í ljósatíma en ég held að
ljósin hafi grillað eitthvað meira
en bara húðina. Kannski það sé
ástæðan fyrir bílakaupunum.“
Oddur hefur sagt skilið við
hnakkamenninguna og vinnur nú
sem framleiðandi hjá Truenorth.
„Bestu kaupin mín eru í tengsl-
um við vinnuna en í fyrsta sæti
verð ég að setja Truenorth-úlp-
una mína,“ segir Oddur. „Hún var
ekki ódýr, kostaði 35 þúsund, en
var vel þess virði. Hún hélt á mér
hita í þrjú ár við allar tökur og
slíkt, jafnvel uppi á jökli. Nú er ég
búinn að fá mér nýja, alveg eins
nema í öðrum lit, og ég efast um
að ég kaupi nokkurn tímann öðru-
vísi úlpu.“
Hnakkatímabilið fór illa
með fjárhaginn