Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 10
Nýbakaðir foreldrar geta misst allt að tvo mánuði úr svefni fyrsta árið í lífi barnsins sam- kvæmt nýrri könnun meðal fimm- hundruð foreldra. Þriðjungur sagðist að jafnaði missa 90 mínút- ur úr svefni hverja nótt sem jafn- gildir rúmlega heilli nótt í hverri viku og 68 nóttum á ári. Tæplega helmingur foreldra sögðust rífast yfir hvort fái minni svefn. Frétta- vefur BBC greinir frá könnunni. Alls sögðust 42 prósent mæðra bregðast við næturgráti barna sinna innan 30 sekúndna og tæp 70 prósent mæðra sögðu að það taki föðurinn fimm mínútur eða lengur. Aðeins eitt prósent mæðra sögðust geta sofið þegar barn- ið þeirra gréti og rúm 40 prósent þeirra sögðu föðurinn sofa værum blundi á meðan. Fimmtungur foreldra sagðist vakna fjórum sinnum eða oftar á hverri nóttu fyrsta mánuðinn eftir fæðingu barnsins. Við eins árs aldur eru 38 prósent barnanna enn að vakna upp á nóttunni og 15 pró- sent foreldra með börn á aldrinum eins árs til tveggja ára sögðust enn ekki ná órofnum svefni yfir nótt- ina. Sumir foreldranna sögðu þessa reynslu frelsandi á þann hátt að þau gerðu sér grein fyrir því að þau þyrftu ekki jafn mikinn svefn og þau höfðu áður talið. En flest sögðu að svefnleysið hefði haft varanleg áhrif á þau. Tæplega 60 prósent sögðust sofa lausar sem afleiðing þess að hlusta eftir börnunum sínum og ellefu prósent sögðust hafa átt erfitt með svefn eftir að þau urðu foreldrar. Fjórðungur foreldra sagði að svefnleysið ylli álagi á samband þeirra. „Að vakna upp með grát- andi barn nokkrum sinnum yfir nóttina getur verið einmanaleg reynsla, sérstaklega ef þú færð engan stuðning,“ sagði ein móðirin sem tók þátt í könnuninni. Það sem margir sögðu hjálplegt var að koma á fastri venju áður en börnin færu í háttinn, á borð við bað eða sögustund. Missa tveggja mánaða svefn Börn ræna foreldra allt að tveggja mánaða svefni fyrsta æviárið. Mæður segjast missa meiri svefn en feður. Svefnleysið hefur varanleg áhrif á helming foreldra. Vegagerðin ákvað að setja þungatak- markanir á vegi um allt land í vikunni vegna hættu á slitlagsskemmdum. Var þá ásþungi takmarkaður við tíu tonn. Þungatakmarkanir eru á sumum vegum landsins í fimmtíu til sextíu daga á ári sem veldur miklum kostnaðarauka fyrir flutningafyrirtæki. Samtök atvinnulífsins (SA) segja takmarkanirnar skapa óvissu og auka kostnað. Þær hafi í för með sér að afhending vöru tefst, vöruverð sé hærra en ella og skapi alls kyns óvissu og óþægindi með gríðarlegum kostnaði og fyrirhöfn sem leggist fyrst og fremst á fólk og fyrirtæki á landsbyggðinni. Gámar og bílar eru hlaðnir samkvæmt ákveðnum stöðlum og reynist þeir of þungir samkvæmt úttekt vegaeftirlitsins þarf að umstafla til að ná réttri öxul- þyngd. Í mörgum tilvikum er verið að flytja innsigl- aða gáma en flutningafyrirtækin hafa ekki heimild til að rjúfa innsigli. Gunnar Jónsson, akstursstjóri hjá Landflutningum, segir það rétt að þungatakmarkanir hafi mikil óþægindi í för með sér. „Við höfum búið við þetta lengi og dagarnir eru alltof margir miðað við það ástand sem ætti að vera á vegum landsins.“ Veturinn 2004 til 2005 voru þungatakmarkanir á veginum milli Akureyrar og Reykjavíkur í 49 daga og 57 daga í fyrravetur. Neytendasamtök- in hafa sent forsætisráðherra og landbúnaðarráðherra bréf og mótmælt því harðlega að leggja eigi tolla á innflutt grænmeti frá löndum utan Evrópusambands- ins í kjölfar aðgerða til að lækka matvælaverð sem hafi verið allt- of hátt. Í bréfinu segir stjórn Neyt- endasamtakanna að það komi verulega á óvart að stjórnvöld hafi fallist á í samningum við Evrópusambandið að tollar verði á nýjan leik lagðir á grænmeti og minnt á að það hafi ekki verið til- viljun að tollar hafi á sínum tíma verið felldir niður á grænmeti. Stjórn Neytendasamtakanna hvetja stjórnvöld til að beita sér fyrir því að þessum samningum verði breytt þannig að engir toll- ar verði lagðir á grænmeti. Mótmæla tolli á grænmeti Akvegum í Heiðmörk er af ásettu ráði haldið lítið við. Tilgangurinn er sá „að auka ekki umferð að nauðsynjalausu“ að því er segir í minnisblaði sem um- hverfissvið Reykjavíkurborg- ar gerði í kjölfar þess að elds- neyti lak úr vörubíl sem lenti þar utan vegar. Bílinn var á vegum Klæðningar sem vinnur að umtal- aðri vatnslögn fyrir Kópavogsbæ. Vegna þessa viðhaldsleysis segir umhverfissviðið það vera spurn- ingu hvort og hvernig vegirnir í Heiðmörk þoli umferð stórra flutn- ingabíla, ekki síst á vetrum þegar gæta þurfi ýtrustu varúðar. Á móti umferð bíla í Heiðmörk ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 69 17 3 /0 7 ‘07 70ÁR Á FLUGI Það er bæði þroskandi og gaman að sjá sig um í heiminum. Gjafabréf frá Icelandair, full greiðsla eða innborgun upp í flugfargjald, er fermingargjöf sem opnar nýjar leiðir. Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi til allra áfangastaða Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum. + Pantaðu fermingargjöfina á icelandair.is/gjafabréf GEFÐU FERÐALAG Í FERMINGARGJÖF
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.