Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 104
Stúdínur ætla ekk-
ert að gefa eftir í undanúrslita-
einvígi sínu á móti Íslands- og
bikarmeisturum Hauka. Þær
tryggðu sér oddaleik með 87-77
sigri í fjórða leik liðanna í Kenn-
araháskólanum í gær.
Haukarnir komust í 2-11,
32-37 og 51-59 en í öll skipt-
in komu Stúdínur til baka. Það
var ekki síst að þakka frábærri
frammistöðu þeirra Casey Rost
og Signýjar Hermannsdóttur.
ÍS lagði grunninn að sigrinum í
tíu mínútna kafla í lok þriðja og
byrjun fjórða leikhluta 20-4 og
komst átta stigum yfir, 71-63.
Fyrirliði Hauka, Helena Sverr-
isdóttir, átti frábæran leik líkt og
í hinum tapleiknum en 34 stig og
sjö þriggja stiga körfur henn-
ar voru ekki nóg því aðrir leik-
menn klikkuðu á 38 af 53 skotum
sínum.
„Þetta var langbesti leikur
seríunnar og mér fannst bæði lið
spila sinn besta leik. Ég er mjög
ánægður með að vinna Haukana
þegar þær eru að spila vel því
það sýnir gríðarlegan styrk hjá
okkur. Nú er bara að vona að
stelpurnar komi jafn tilbúnar
í næsta leik eins og þær voru í
dag því annars er þessi leikur til
einskis,“ sagði Ívar Ásgrímsson,
þjálfari ÍS, glaður í leikslok.
Casey Rost átti stórleik með
ÍS, skoraði 37 stig, tók 10 fráköst
og gaf 8 stoðsendingar. Hún hitti
meðal annars úr 5 af 7 þriggja
stiga skotum sínum. „Casey er
búin að vera stigvaxandi í þess-
um leikjum. Hún spilaði ekki
vel í fyrsta leik og faldi sig. Nú
er hún að taka af skarið og það
er ekki nóg með að hún skori vel
yfir 30 stig því hún er að gera
allar góðar í kringum sig. Hún
tekur mörg fráköst og spilar
vörnina á Helenu og kemur henni
í mikil vandræði,“ sagði Ívar um
Kanann sinn. Ívar var sérstak-
lega ánægður með framlag Lov-
ísu Guðmundsdóttur. „Þetta var
langbesti leikur Lovísu og varn-
arleikur hennar í þessum leik
kveikti í hinum stelpunum,”
sagði Ívar að lokum.
Stúdínur tryggðu
sér oddaleikinn
Njarðvík getur klárað
einvígið gegn Grindavík í næsta
leik en Njarðvík leiðir einvígið
eftir tveggja stiga sigur í gær, 89-
87. Grindavík var ekki fjarri því
að stela sigrinum í lokin.
Bæði lið mættu grimm til
leiks, spiluðu fínan sóknarbolta
en varnarleikur beggja liða var
frekar dapur mestan part fyrsta
leikhlutans. Brenton Birming-
ham skoraði níu stig í leikhlut-
anum sem voru góð tíðindi fyrir
heimamenn enda hefur Brenton
ekki skorað mikið í síðustu tveim
leikjum. Munurinn var tvö stig
eftir fyrsta leikhlutann, 26-24
fyrir heimamenn.
Liðin héldu áfram að bjóða upp
á leiftrandi sóknarleik í öðrum
leikhluta. Hvergi var gefið eftir
og munurinn lítill. Páll Axel
bar Grindavíkurliðið á bakinu í
öðrum leikhluta en það var veru-
legt áhyggjuefni fyrir Njarðvík
að Jeb Ivey komst ekki á blað í
fyrri hálfleik. Brenton bætti það
þó upp með afbragðsleik. Munur-
inn í leikhléi var fjögur stig, 48-44
fyrir Njarðvík.
Varnarleikur beggja lið batnaði
strax í upphafi seinni hálfleiks og
lítið var skorað fyrri hluta þriðja
leikhlutans. Njarðvíkingum gekk
þó betur að koma boltanum ofan
í körfuna og þeir náðu mest tíu
stiga forystu í leikhlutanum, 60-
50. Grindvíkingar komu til baka
og munurinn var fimm stig fyrir
síðasta fjórðunginn, 63-58.
Njarðvíkingar voru sterkari á
lokakaflanum og gestina vantaði
sárlega framlag frá fleirum en
Páli Axel og Griffin. Dauðakipp-
ir gestanna voru þó góðir og þeir
náðu að minnka muninn í eitt stig,
88-87, í lokin en lengra komust
þeir ekki.
„Ég veit ekki hvað gerist í lokin.
Ætli við höfum ekki viljað spila
fyrir fólkið. Gera þetta spenn-
andi,“ sagði Jóhann Árni Ólafs-
son brosmildur en hann átti enn
og aftur fínan leik fyrir Njarðvík.
„Við lítum svo á að síðasti leik-
ur hafi verið undantekning frá
reglunni. Við spilum ekki aftur
svona og klárum þetta í næsta
leik.“
Páll Axel Vilbergsson átti stór-
leik fyrir Grindavík og hann var
að vonum svekktur. „Það má telja
ýmislegt til í dag hjá okkur sem
ekki gekk upp. Við hefðum getað
gert betur og ég hefði viljað fara
héðan með sigur. Ég er hund-
svekktur með þessa niðurstöðu.
Við verðum að gera betur í næsta
leik,“ sagði Páll.
Njarðvík lét tapið í Grindavík um daginn ekki slá sig út af laginu og sýndi sínar
réttu hliðar í gær. Unnu leikinn með tveim stigum, 89-87, eftir að hafa gert leik-
inn óþarflega spennandi. Njarðvík getur tryggt sig inn í úrslitin á mánudaginn.