Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 66
BLS. 10 | sirkus | 30. MARS 2007
É g hef alltaf haft mikinn áhuga á fötum, skóm og tísku yfirhöfuð,“ segir Hugrún
Árnadóttir, eigandi verslananna Kron
og KronKron. Hugrún er lærður
fatahönnuður og lærði í París. Hún
hefur verið með skóverslunina Kron
frá 2000 og fataverslunin KronKron
fylgdi í kjölfarið árið 2004. „Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á skóm,“
segir Hugrún og bætir við að það hafi
legið beinast við að nýta áhugann og
menntunina. „Mig langaði líka að
koma á framfæri hversu margir ungir
snilldarhönnuðir væru erlendis og
vildi kynna þá fyrir Íslendingum og
viðtökurnar hafa verið mjög góðar,“
segir Hugrún og bætir við að
tískuvitundin sé afar sterk á Íslandi.
„Það hefur orðið gífurleg vakning í
tískunni hér á landi á ótrúlega
stuttum tíma enda erum við
Íslendingar oftast nær snögg að
hlutunum ef við ætlum okkur
eitthvað. Hér er frábær listaháskóli
og gróskan í tónlistinni og listalífinu
hefur verið mikil og tískan fylgir
ósjálfrátt í kjölfarið.“
Hugrún hefur vakið athygli fyrir
fallegan og sérstakan fatastíl.
Aðspurð hvernig hún geti lýst sínum
stíl segir hún hann kvenlegan.
„Stíllinn minn er mjög fjölbreyttur og
getur verið mjög breytilegur frá degi
til dags, en ég er svoddan dama inn
við beinið og hún brýst svolítið út í
gegnum klæðaburð minn.“
Hugrún er með margt á prjónun-
um en vill lítið segja til um hvað
framtíðin beri í skauti sér. „Maður er
alltaf eitthvað að grúska og það er
margt spennandi í gangi. Við erum
flest menntuð sem fatahönnuðir sem
erum að vinna saman í fyrirtækinu
og þetta er sterkur hópur sem er að
þessu af hugsjón og við ætlum að
gera eitthvað skemmtilegt saman.
Það kemur hins vegar í ljós síðar
hvað það verður.“
indiana@frettabladid.is
HUGRÚN ÁRNADÓTTIR ER ÁN EFA EIN BEST
KLÆDDA KONA LANDSINS. HUGRÚN LEYFÐI
SIRKUS AÐ SKOÐA FATASKÁPINN HENNAR.
ELEY KISHIMOTO Einn af
uppáhaldshönnuðum Hugrúnar en
Kishimoto, sem er margverðlaun-
aður fyrir textíl og hönnun.
DROTTNING TÍSKUNNAR „Það er
alltaf auðvelt að klæðast Vivienne
Westwood-flík, hún er óumdeilanlega
drottning bresku tískunnar.“
PETER JENSEN
„Silkikjóll með
ótrúlega einföldu
og fallegu munstri
og svolítið barnslegur.
Peter er líka í miklu
uppáhaldi hjá mér,“ segir
Hugrún.
HUMANOID „Hrikalega
notaleg peysa og tilvalin
fyrir íslenska veðráttu, efnin
yndisleg, fingerð og hlý.“
CHIE MIHARA „Ég
bara elska þessa
skó,fallegir og
þægilegir,“ segir
Hugrún.
PRJÓNAPEYSA Í UPPÁHALDI
Hugrún heldur mikið upp á
þessa prjónapeysu sem er
eftir kraftmikinn ungan
hönnuð sem heitir Henrik
Vibskov.
HUGRÚN ÁRNADÓTTIR Hugrún
opnaði Kron þegar hún kom
heim frá París. KronKron var
opnuð fjórum árum síðar.
DAMA INNI
VIÐ BEINIÐ