Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 2
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Mikill meirihluti lands-
manna, eða 75 prósent, telur 35,72
prósenta skatt á tekjur einstakl-
inga of háan. Þetta kemur fram í
nýrri könnun Capacent Gallup
sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið
og Morgunblaðið. Einungis 1,5
prósent telja tekjuskattinn of
lágan.
Þá telja tæp tuttugu prósent að
tíu prósenta fjármagnstekjuskatt-
ur sé of hár, um 53 prósent að
hann sé hæfilegur og tæp 28
prósent að hann sé of lágur.
Um 23 prósent telja að 18
prósenta skattur á fyrirtæki sé of
lágur, 58 prósent að hann sé
hæfilegur og 19 prósent of hár.
Flestir vilja
lægri tekjuskatt
Landssamtök
landeigenda á Íslandi ítreka í
fréttatilkynningu ósk sína um
svör frá frambjóðendum og
flokkum um þjóðlendumálið.
Samtökin kölluðu í byrjun
mánaðar eftir skriflegum svörum
frá stjórnmálaflokkum um hvort
þeir hygðust beita sér fyrir
breytingu á lögum um þjóðlendur
eða framkvæmdum þeirra laga. Í
tilkynningu segir að engin svör
hafi enn borist samtökunum.
Í tilkynningu segir að ályktanir
af flokksþingum og landsfundum
dugi ekki til, kallað sé eftir
yfirlýsingu um áform flokkanna í
þjóðlendumálum.
Krefjast svara
um þjóðlendur
Lífeyrissjóðirnir hafa
hagnast um 170 milljarða frá
árinu 2002 vegna kaupa á
hlutabréfum bankanna. Þetta
segir Illugi
Gunnarsson,
frambjóðandi
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík, í
grein í
Fréttablaðinu
í dag.
„Því hefur
verið haldið
fram að
þjóðin hafi
verið hlunn-
farin þegar ríkið seldi bankana
og verðhækkun þeirra nýtist nú
einungis fámennum hópi eigenda
þeirra. Þetta er auðvitað rangt.
[...] Þessi glæsilegi árangur
lífeyrissjóðanna er árangur
okkar allra,“ segir Illugi, sem
vísar því á bug að ójöfnuður hafi
aukist í tíð núverandi ríkis-
stjórnar.
Lífeyrissjóðir
hagnast mikið
Samningaviðræður um kaup borgarinnar á
lóðunum að Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 hefjast í
vikunni. Kaupverðið er ekki ljóst en á lóðinni við
Austurstræti er byggingarréttur fyrir stærra hús en
var fyrir. Talið er að verðmæti byggingarréttarins á
Austurstrætislóðinni einni nemi hátt í 200 milljónir
króna.
Verðhugmyndir hafa ekki enn verið nefndar en Ást-
ráður Haraldsson, lögmaður eigendanna að Austur-
stræti 22, segir byggingarréttinn mjög verðmætan. Á
lóðinni megi reisa stórhýsi upp á 1.700-1.800 fermetra.
Jón Guðmundsson fasteignasali áætlar að endanlegt
söluverð geti numið um 400 milljónum króna. Inni í
þeirri tölu sé kostnaður við kaupin, endurbyggingin
og svo hagnaður byggingaraðilans.
Borgaryfirvöld funduðu með eigendum og fulltrú-
um tryggingafélaganna í gærmorgun. Hanna Birna
Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs, segir að
ákveðið hafi verið að ganga til samningaviðræðna við
eigendur lóðanna. Garðar Hannes Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri fasteignafélagsins Eikar sem á
Lækjargötu 2, segir að Eik komi til viðræðnanna með
opnum hug gagnvart Reykjavíkurborg. Ástráður Har-
aldsson telur að það geti að sumu leyti verið heppilegt
að borgin hafi full umráð yfir framkvæmdum á lóðun-
um. Austurstræti 22 hefur verið í eigu sömu fjöl-
skyldu frá 1915.
Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður borgar-
stjóra, segir að brunarústirnar séu „svöðusár í hjarta
borgarinnar“. Vinna við endurbygginguna þurfi að
hefjast sem fyrst og ákvörðun um það sé á hendi
borgarstjóra. Málið þurfi ekki að fara fyrir borgar-
stjórn fyrr en niðurstaða hafi fengist um kaupverð.
Þá verði kaupsamningur gerður og hann lagður fyrir
borgarstjórn. Hanna Birna segir að stefnt sé að því að
byrgja brunasárin með einhverjum aðlaðandi hætti á
næstunni. Þar komi ýmislegt til greina en ekkert hafi
verið ákveðið enn. Erlendis tíðkist til dæmis að reisa
veggi umhverfis svona svæði, jafnvel með myndum
af húsunum sem þar voru. Net hefur þegar verið
strengt yfir brunasvæðið til að varna foki.
Kostar borgarsjóð
hundruð milljóna
Samningaviðræður um kaup á Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 hefjast í
vikunni. Verðmæti byggingarréttarins í Austurstræti nemur 200 milljónum
króna. Kaup og endurbygging getur kostað borgina um 400 milljónir.
Eftirlitsmenn á vegum
Evrópusambandsins gagnrýndu
framkvæmd forsetakosninganna
í Nígeríu í gær harðlega. Margir
af 120 þúsund kjörstöðum í
landinu voru opnaðir mörgum
klukkutímum of seint og
kosningaþáttaka var víða afar
lítil. Tilraun var gerð til að
sprengja aðalkosningaskrifstof-
una og sjö lögreglumenn létu
lífið í fyrirsát í Nassarawa-
héraði, skammt frá höfuðborg-
inni Abuja.
Kosningabaráttan stendur
helst milli Atiku Abubakar,
varaforseta, Umaru Yar’Adua
frambjóðanda stjórnarflokksins
og Muhammadu Buhari, sem
tapaði fyrir sitjandi forseta,
Olusegun Obasanio, í kosningun-
um 2003.
Óeirðir og tafir
á kjörstöðum
Rúmlega þrítugur
karlmaður var handtekinn í
heimahúsi í Þorlákshöfn um
hádegisbil í gær eftir að hafa
ráðist á annan mann með hnífi og
barið hann með stól. Fórnar-
lambið, sem einnig er rúmlega
þrítugt, slapp mjög vel að sögn
lögreglunnar á Selfossi. Hann
hlaut þó skurð á handlegg sem
sauma þurfti fyrir.
Ekki er ljóst hver aðdragandi
árásarinnar var, en að sögn
lögreglu kom upp ósætti á milli
mannanna sem leiddi til þess að
annar þeirra barði hinn með stól í höfuð og líkama, greip síðan
borðhníf, lagði til hans og stakk í handlegg. Sá sem ráðist var á hlaut
skurð á handlegg og þurfti að sauma fyrir það á sjúkrahúsinu á
Selfossi. Lögregla segir báða mennina hafa verið undir áhrifum
áfengis, en þó ekki dauðadrukkna.
Lögregla handtók árásarmanninn skömmu eftir árásina. Vettvang-
urinn var skoðaður og var maðurinn yfirheyrður í gærkvöldi. Ekki
liggur fyrir um hvað mennirnir deildu svo heiftarlega.
Fjölskylda Seung-hui
Cho, sem skaut 32 til bana og
fyrirfór sér í Virginia Tech-háskól-
anum í Bandaríkjunum á mánu-
dag, baðst á föstudag fyrirgefn-
ingar á eyðileggingunni sem Cho
olli. „Hann hefur grætt heiminn.
Við lifum í martröð,“ segir systir
hans, Sun-kyung Cho, í skriflegri
yfirlýsingu frá fjölskyldunni. Sun-
Kyung hefur haldið sig til hlés
ásamt foreldrum sínum og systur
síðan á mánudag. Fjölskyldan
hafði ekki tjáð sig um hörmulega
atburði mánudagsins fyrr en á
föstudag.
Sun-kuyng segir fjölskylduna
biðja fyrir öllum fórnarlömbum
bróður síns, og nefnir þau öll á
nafn. „Við syrgjum með fjölskyld-
unum, Virginia Tech-samfélaginu,
Virginíuríki og þjóðinni allri. Og
heiminum,“ skrifar hún. „Við
erum úrkula vonar, hjálparvana
og týnd. Þetta er manneskja sem
ég ólst upp með og elskaði. Nú
finnst mér að ég þekki þessa
manneskju ekki,“ skrifar Sun-
kuyng um bróður sinn. „Við hefð-
um aldrei getað ímyndað okkur að
hann væri fær um svona mikið
ofbeldi,“ segir hún.
Hátt í tylft jarðarfara og minn-
ingarathafna um fórnarlömbin
Cho fóru fram í Blacksburg og
víðar í Bandaríkjunum í gær.
Við lifum í martröð
Þorgrímur, þarf að fara að
banna þig börnum?
Lögreglan á
Djúpavogi fékk tilkynningu í
gærmorgun um að bíll lægi
hálfur í flæðarmálinu við þorpið.
Þegar lögregla kom á vettvang
var bíllinn mannlaus.
Lögreglan hafði uppi á eigand-
anum, manni á þrítugsaldri, og
kom í ljós að hann hafði misst
stjórn á bíl sínum með þeim
afleiðingum að hann steyptist
fram af vegkanti við fjöruborðið
og lenti á hjólunum í flæðarmál-
inu.
Ökumaðurinn meiddist ekki en
bíllinn mun vera mikið skemmd-
ur. Lögreglu grunar að maðurinn
hafi verið ölvaður undir stýri. -
Ók fram af veg-
kanti og út í sjó