Fréttablaðið - 22.04.2007, Side 34

Fréttablaðið - 22.04.2007, Side 34
Á hverju ári sækir fjöldi fólks um störf hjá sumar- búðunum í Reykjadal og Laugalandi í Holtum. „Þetta er að flestu leyti sambærilegt hefðbundn- um sumarbúðum, nema að tekið er tillit til sérþarfa hvers og eins,“ segir Alda Róbertsdóttir, forstöðu- maður sumarbúða í Reykja- dal og Laugalandi í Holtum fyrir fötluð börn og ung- menni. „Starfsemin snýst mikið um útiveru og leiki,“ heldur Alda áfram. „Hér eru kajakbátar, hestar, sundlaug og íþróttahús til afnota. Svo ekki sé minnst á náttúruna í kring, sem er óspart notuð í fjallgöngur, veiðitúra, rat- leiki og það sem kann að veita krökkunum ánægju.“ Að sögn Öldu eru sumar- búðirnar opnaðar um miðj- an maí og þeim lokað aftur um miðjan ágúst. „Tekið er á móti samanlagt 250 börn- um og ungmennum á aldrin- um sex til átján ára. Hvert þeirra fær úthlutað einni til tveimur vikum og er raðað niður í hópa eftir aldri og skerðingu. Svo er ungmenn- um á aldrinum 18 til 25 ára boðið upp á sumarnámskeið og verður Jónsi Í svört- um fötum meðal annars með tónlistarnámskeið í ár. Síðan er boðið upp á helgar- dvöl á veturna.“ Eins og gefur að skilja þarf stóran hóp til að halda utan um búðirnar og segir Alda 70 starfsmenn tekna inn á sumrin. „Það er gríðarleg aðsókn hingað, yfirleitt 200 umsóknir, og við getum því valið úr úr- valsfólki. Yfirleitt er þetta skólafólk á aldrinum 18 til 28 ára, sem er að mennta sig á uppeldissviði. Við tökum inn þá sem hafa brennandi áhuga og uppfylla kröfur um menntun og hæfni. Þeir sitja síðan þriggja daga skyldunámskeið, þar sem allt sem viðkemur starfinu er kennt. Starfsmennirn- ir fá síðan vinnu yfir vetur- inn og hafa sumir unnið hér í heil sex ár.“ Alda telur gott orðspor vera helstu ástæðuna fyrir ofangreindri aðsókn. Vel sé látið af sumarbúðunum og fólki finnist heiður að vinna með krökkunum. Svo spilli útiveran og leikirnir heldur ekki fyrir. Alda bendir á að laun séu greidd samkvæmt kjara- samningum Eflingar. „Þau eru í samræmi við laun ann- arra uppeldisstétta. Starfs- fólk vinnur langa daga og við það hækka launin.“ Að sögn Öldu ríkir mikil eftirvænting hjá starfsfólki að hefja störf enda spenn- andi og lærdómsríkt sumar fram undan. Sjá www.slf.is Margir vilja vinna í sumarbúðum Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða bifreiðarstjóra í framtíðavinnu sem og sumar afleysingar. Hægt er að fylla út Umsóknareyðublöð á www.teitur.is Eins má senda umsókn á E-Mail starf@teitur.is Upplýsingar í síma: 515-2700 Mán-Föst 09-16 Einar eða Ágúst Fasteignasala - skjalagerð ug og rótgróin fasteignasala á Höfuðborgarsvæðnu óskar að ráða löggiltan fasteignasala og/eða lögmann til samninga- og skjalagerðar. Umsækjandi þarf að vera nákvæmur, glöggur og góður í mannlegum samskiptum. ð hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknir skulu berast á box@frett.is fyrir 26. apríl merkt: Skjalagerð - 101 Nova leitar eftir verk- og tölvunarfræðingum, vefurum og netstjórum í ýmis störf á tækni- sviði. Klárir og áhugasamir munu starfa við þróunarvinnu, kerfishögun, vefhönnun og margvíslegan net- og kerfisrekstur. Allar nánari upplýsingar um Nova á www.nova.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.