Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 11
Fyrir nokkrum árum var reist yfir
Reykjanesbraut, rétt ofan Blesu-
grófar, 100 metra löng vindharpa
með tvö þúsund lóðréttum hljóm-
blöðum. Lengd hljómblaðanna er
alls fjórir
km.
Hörpunni
var þannig
lýst í Frétta-
blaðinu að:
„í stífum
suðlægum
vindi berast
ómar henn-
ar upp á Bú-
staðaháls.
Ríkjandi
tónar eru F, G, A og H undir háa C-
i. Stundum slær harpan sér niður
um nokkrar áttundir og myndar þá
djúpa breiða vofutóna, sem hræða
börn.“ Sagt var að slagur hörpunn-
ar ylli ískri í hlustatækjum heyrnar-
skertra og slíkri skelfingu hjá hund-
um að þeir fengju niðurgang og
skriðu ýlfrandi undir rúm. Sá kost-
ur fylgdi þó, sagði í Fréttablaðinu,
að mýs þyldu illa hátíðnihljóð og
flýðu svæðið þó bjartur dagur væri.
Vindharpan er jafnframt ætluð sem
göngubrú yfir Reykjanesbraut.
Íbúar norðan vindhörpunnar
kvörtuðu sáran undan óþægindum
og svefnleysi, sem óhljóð hennar
ollu. Vegagerðin brást drengilega
við og dembdi krossviði innan við
hljómblöðin. Harpan þagnaði, og
hönnuðir nöguðu handarbökin og
hugsuðu – vitlaust.
Að ráðum Línuhönnunar, sem
hannaði vindhörpuna, var kross-
viðurinn fjarlægður í haust er leið
og í hans stað settar gataðar plötur
úr ryðfríu stáli. Í hverri plötu eru
4.300 göt 1 cm í þvermál. Plöturn-
ar eru 66 og heildarfjöldi gatanna
því 283.800.
Fáum til undrunar en flestum
til ama gerist það nú í suðlægum
áttum að þessi 283.800 göt breyt-
ast í púkablístrur, sem væla og ýla
eins og tónstiginn spannar. Þegar
það ærandi blístur kemur saman
við veinið úr tvö þúsund hljóm-
blöðum vindhörpunnar, þá verður
það að árás á almannaheill.
Nú hafa svefnvana íbúar grátbeð-
ið Vegagerðina að létta þessum
ósköpum af og koma aftur með
gamla lúna krossviðinn. En allt
kemur fyrir ekki. Það er eins og
blístrið hafi ært úr henni heyrn-
ina. Þolendur hremminganna hug-
leiða nú að skenkja samgönguráð-
herra og vegamálastjóra nokkra
skammta af þeirra eigin graut. Það
yrði gert þanneginn, að hljóðrita
ærandi blístur og vein mannvirk-
isins, og endurflytja það svo um
nætur í íbúðahverfum þeirra.
Það er vitað að þolendur hremm-
inganna eiga talsmenn innan Vega-
gerðarinnar. Vonandi auðnast þeim
talsmönnum að ná fram úrbótum
og fría þannig samgönguráðherra
og vegamálastjóra og saklausa
nágranna frá þeirri raun og háð-
ung að ná ekki svefni sínum vegna
eigin óhljóða.
Þess ber að geta að í frásögn
Fréttablaðsins, sem vitnað er til
hér að ofan, var tekið fram sérstak-
lega að Línuhönnun sú, sem um er
rætt, er ekki tengd Línu Langsokk.
Höfundur er íbúi í Stjörnugróf.
283 þús-
und púka-
blístrur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
53
62
0
4/
07
Aldraðir hafa átt allan okkar stuðning í áratugi.
Taktu þátt því þörfin er brýn.
Einfaldur miði kostar aðeins 1.000 kr.
Opið um helgina í aðalumboðinu
Tjarnargötu 10, kl. 12:00 - 18:00.
Hringdu núna í síma 561 7757 - Kauptu miða á www.das.is
V-
RO
DHarley6x
+ 3 milljónir
í bakpokann
á tvöfaldan miða!
+ 6,3 milljónir í skottið
á tvöfaldan miða!
6xLexus GS 300
Miðasalan er hafin
-vinningur í hverri viku
768
skattfrjálsar
milljónir
í peningum
á árinu
Vinningarnir ver
ða til sýnis
í Smáralindinni
um helgina
Smáralind
um helgina
Nýtt happdrættisár - enn glæsilegri vinningar!
Ekki fara heim
með ókunnugum!
Þú getur treyst TOYO dekkjunum
til að koma þér öruggum heim.
Sími 561 4110
Vagnhöfða 23 - S: 590 2000