Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 8
Markmið sjóðsins er að styðja við bakið á menningar- og listalífi, auk þess að hlúa að mannréttinda- og líknarmálum. Það verður m.a. gert með framlögum til stofn- ana, samtaka og félaga á Íslandi, sem hafa framangreind málefni sem aðaltilgang sinn. Formaður stjórnar sjóðsins er Jóhannes Jónsson en aðrir stjórnarmenn eru Hreinn Loftsson og Ingibjörg S. Pálmadóttir. Ritari stjórnar sjóðsins er Soffía Lárusdóttir. Áhugasamir aðilar sem uppfylla ofangreind skilyrði eru hvattir til að senda inn umsókn. Lengd umsóknar skal takmarkast við eina vélritaða síðu (A4). Umsóknarey›ublö› má finna á heimasí›u Baugs Group hf., www.baugurgroup.com. Umsóknum skal skila› fyrir 11.maí á styrktarsjodur@baugurgroup.com Einnig má skila umsóknum til: Styrktarsjóðs Baugs Group hf., Túngötu 6, 101 Reykjavík Úthlutun fer fram í júní. STYRKTARSJÓÐUR BAUGS GROUP HF. AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI ÚR SJÓÐNUM. hz et a eh f Fjórða úthlutun P IP A R • S ÍA • 7 0 5 38 >>Kennaraháskóli Íslands sími 563 3800 >www.khi.is Í samræmi við ákvæði 3. gr. reglugerðar um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla, nr. 327/1999 og samstarfssamning Kennaraháskóla Íslands og Umferðarstofu um ökukennaranám auglýsir Kennara- háskóli Íslands eftir umsækjendum um nám fyrir verðandi ökukennara á vegum sérstakrar stofnunar innan skólans Símenntunar – rannsókna – ráðgjafar. Fáist næg þátttaka er að því stefnt að námið hefjist á komandi hausti og ljúki í maí árið 2009. Námið er skilgreint sem 30 eininga nám á háskólastigi. > Inntökuskilyrði eru þessi: Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun Að hafa ekið bifreið (bifhjóli) að staðaldri síðustu þrjú árin Líkamlegt og andlegt heilbrigði fyrir ökumenn í hópi 2, sbr. reglugerð nr. 501/1997 Að hafa ekki hlotið dóm skv. ákvæðum 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga Við inntöku í námið verður auk þessa litið til starfsreynslu umsækjenda, einkum á sviði uppeldis- og kennslumála, ökuferils en umsækjendur mega ekki hafa fengið refsipunkta vegna brota á umferðarlögum undanfarin þrjú ár. Lögð er áhersla á að konur jafnt og karlar sæki um námið. Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð sem má nálgast á vef stofnunarinnar, http://srr.khi.is/. Þar er ennfremur að finna ýmsar upplýsingar um námið, s.s. námskrá og kennsluskrá ásamt nánari upplýsingum um hvenær kennsla fer fram. > Nauðsynlegt er að afrit prófskírteina fylgi umsókn. Ökukennaranám til b-réttinda Umsóknarfrestur er til 6. maí 2007. Námskostnaður er kr. 990.000 (sjá nánar í kennsluskrá). Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri ökukennaranáms, Arnaldur Árnason, í síma 5634888 milli kl. 9 og 12 virka daga og utan þess í síma 8925213. Einnig má senda tölvupóst á netfangið arnarnas@khi.is. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segist hlakka til að kom- ast með starf- semi fyrirtækis- ins í Reykjavík í betra hús- næði. Með öðrum orðum fagnar hann áformum um byggingu sam- göngumið- stöðvar í Vatns- mýri. „Og ekki vanþörf á,“ segir hann. Núverandi flugstöð félagsins var reist á stríðsárunum og er löngu úr sér gengin. Til stendur að reisa samgöngu- miðstöðina í einkaframkvæmd og eiga framkvæmd og rekstur að standa undir sér. Árni segir mikilvægt að það verði gert á sem hagkvæmastan hátt svo mið- stöðin íþyngi ekki farþegum með þeim hætti að fargjöld hækki. Og hann er bjartsýnn á að það sé hægt enda margvísleg starfsemi fyrirhuguð í miðstöðinni sem styrki stoðir hennar og dreifi kostnaði. Á það beri einnig að líta að far- þegar félagsins standi í dag straum af rekstri núverandi flug- stöðvar. „Þó hún sé frekar lítil og úr sér gengin kostar viðhald óheyrilega mikið enda húsið gamalt. Sá kostnaður hefur aukist á síðustu árum en hann myndi falla niður. Þetta þarf því ekki að verða dýrara fyrir okkur.“ Árni er hlynntur því að sam- göngumiðstöðin verði byggð þó að flugvöllurinn kunni að flytjast úr Vatnsmýri; Reykjavík þurfi miðstöð samgangna til og frá borginni hvort sem er í flugi eða með öðrum leiðum. En hann efast reyndar stórlega um að flug- völlurinn fari. „Það á eftir að gera veðurathuganir á Hólms- heiði og í skýrslu starfshóps um Reykjavíkurflugvöll kemur ekkert fram um hvort nýtingar- hlutfall vallar þar sé ásættanlegt. Ég held að vegna veðurs verði nýting hans mun verri og þegar allt er tekið til hljótist mikill kostnaður af að vera þar upp frá vegna mikillar niðurfellingar á flugi. Og um Löngusker er það að segja að sú framkvæmd er dýr og henni fylgir mikil röskun á landslagi. Ég hef því fulla trú á að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni þegar allt hefur verið skoðað.“ Vill aðhald svo fargjöld hækki ekki Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands fagnar áform- um um byggingu samgöngumiðstöðvar en hvetur til aðhalds svo ekki þurfi að hækka fargjöld. Hann efast um flugskilyrði á Hólmsheiði. Eldvarnir í Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 voru fullnægj- andi miðað við aldur húsanna. Svo virðist sem reykskynjari og slökkvitæki hafi ekki verið til staðar í söluturninum Fröken Reykjavík þar sem eldsins varð fyrst vart. Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð- inu, segir að slík tæki hefðu haft lítið að segja í brunanum. „Nú var ég ekki á staðnum sjálf- ur en miðað við lýsingarnar hugsa ég að handslökkvitæki hefði mátt sín lítils í þessum bruna. Eldurinn virðist hafa byrjað að loga innan þilja og er orðinn að báli þegar menn verða varir við reykinn,“ segir Bjarni. Í gömlum húsum er erfitt að uppfylla nútíma reglugerðir um brunavarnir. Í báðum húsunum höfðu verið settar gifsplötur í loft í eldvarnarskyni og að sögn eig- anda Lækjargötu 2 voru einnig slíkar plötur í lofti Fröken Reykja- víkur. „Brunavarnir miða auðvit- að fyrst og fremst að því að vernda líf og limi þeirra sem eru í húsinu. Gifsplötur hindra að eldur nái að breiðast út en þær gera lítið gagn þegar upptök eldsins eru á bak við þær eins og virðist vera í þessu til- felli,“ segir Bjarni. Ekki reykskynjari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.